Fotbolti.net
@SEinarssonSverrir Örn Einarsson
Lengjudeild karla
Stakkavíkurvöllur
Grindavík
Grindavík
3 - 1
Völsungur
Völsungur
Haraldur Björgvin Eysteinsson 3'1 - 01 - 117' Dagbjartur Búi DavíðssonHeiðar Snær Ragnarsson 52'2 - 1Rafael Alexandre Romao Victor 66'3 - 1
Dómari: Hreinn Magnússon
Leik lokið!
Grindavíkursigur staðreynd hér. Eftir jafnan fyrri hálfleik tóku heimamenn völdin og sigldu heim sanngjörnum 3-1 sigri. Þökkum fyrir okkur í dag.
Grindavík
90. mín
InnAndri Karl Júlíusson Hammer
ÚtRafael Alexandre Romao Victor
Grindavík
90. mín
InnViktor Guðberg Hauksson
ÚtGunnleifur Orri Gunnleifsson
90. mín
Rafael Victor með ágæta tilraun úti til vinstri en skrúfar boltann fram hjá markinu.
Völsungur
88. mín
InnÝmir Hjálmsson
ÚtDavíð Leó Lund
Völsungur
88. mín
InnIndriði Ketilsson
ÚtElmar Örn Guðmundsson
83. mín
Christian Bjarmi með hörskuskot af talsverðu færi. Jochum með fingur á bolta og Grindavík fær horn.
Völsungur
82. mín
InnAndri V. Bergmann Steingrímsson
ÚtDagbjartur Búi Davíðsson
Grindavík
82. mín
InnValur Þór Hákonarson
ÚtHeiðar Snær Ragnarsson
Grindavík
82. mín
InnLárus Orri Ólafsson
ÚtMikael Máni Þorfinnsson
79. mín
Völsungur fær aukaspyrnu í góðri fyrirgjafarstöðu.
75. mín
Gestirnir fá hornspyrnu. Ekkert kom út úr henni.
Völsungur
72. mín
InnAron Bjarki Kristjánsson
ÚtSteinþór Freyr Þorsteinsson
Grindavík
72. mín
InnRúnar Ingi Eysteinsson
ÚtIngi Þór Sigurðsson
Grindavík
66. mín
MARK!

Rafael Alexandre Romao Victor (stoðsending: Ingi Þór Sigurðsson)

Varnarleikur Völsunga klikkar illilega þarna. Grindvíkingar vinna boltann hátt á vellinum og boltinn beint inn á teiginn. Mikael Máni í rangstöðu lætur boltann vera, varnarlínan gerir enga tilraun til að ráðast á boltann sem Rafael nýtir sér til fullnustu og skorar af stuttu færi.
64. mín
Hætta við mark heimamanna
Röð skota frá Dagbirti og Xabier sem Grindvíkingar henda sér fyrir hvert af öðru.
61. mín
Hættulegt skot!
Boltinn á Bjarka Fannar fyrir utan teig og hann hikar ekkert og lætur vaða. Skotið fast og mér sýndist hann hreinlega hafna í stönginni og út.
60. mín
Gestirnir fá hornspyrnu.
59. mín
Ingi Þór með boltann úti til vinstri, leikur inn völlinn og lætur vaða frá vítateigslínu en boltinn beint í fang Jochums í markinu.
58. mín
Gestirnir að bíta frá sér á ný en færin ekki að falla fyrir þá.
Grindavík
52. mín
Mark!

Heiðar Snær Ragnarsson (stoðsending: Haraldur Björgvin Eysteinsson)

Haraldur Björgvin þræðir Heiðar Snæ í gegn hægra megin í teignum. Heiðar gerir listavel og snýr boltann laglega í hornið fjær framhjá Jochum í marki Völsungs.
52. mín
Damir reynir skot úr aukaspyrnu af löngu færi en neglir boltanum langt yfir markið.
51. mín
Það er smá hiti og menn aðeins að ýta hvor við öðrum eftir að brotið var á Haraldi Björgvin á vallarhelmingi Völsunga. Bara vel að menn séu aðeins upptjúnaðir.
48. mín
Gestirnir að byrja síðari hálfleikinn af krafti og setja Grindvíkinga undir pressu.
46. mín
Síðari hálfleikur hafinn
Gestirnir sparka okkur af stað á ný.
45. mín
Allt jafnt hér í hálfleik og það verður að teljast nokkuð sanngjarnt bara. Heimamenn byrjuðu ögn betur og héldu boltanum betur framan af en gestirnir unnu sig vel inn í leikinn og voru ráðandi aflið síðari hluta hálfleiksins. Tökum okkur smá pásu og mætum á ný eftir korter eða svo.
Völsungur
45. mín
Gult spjald

Steinþór Freyr Þorsteinsson

Fer af krafti í Arnór Gauta á miðjum vellinum og uppsker fyrir það gult spjald.
43. mín
Gestirnir sækja hratt
Fernando keyrir upp hægri kantinn, Steinþór er að mæta í hlaupið inn á teiginn og reynir Fernando að finna hann í hlaupinu en sendingin full framarlega fyrir Steinþór og rennur færið út í sandinn.
42. mín
Dagbjartur með lúmska tilraun að marki frá vinstri vængnum. Reynir að lauma boltanum í hornið nær en Hjörvar vel vakandi og handsamar boltann.
37. mín
Fertugur í fullu fjöri
Stálmúsin fær boltann við teig Grindavíkur eftir lélega sendingu frá Damir út úr vörninni. Keyrir á átt að marki og reynir skotið úr nokkuð þröngri stöðu vinstra megin við markið. Hjörvar Daði lokar og gestirnir fá horn.
34. mín
Verið ansi rólegt yfir þessu síðustu mínútur. Stúkan ekkert að ærast heldur en það er gaman að heyra fuglasöng af og til frá fiðruðum áhorfendum leiksins.
26. mín
Heiðar Snær með fyrirgjöf frá hægri fyrir heimamenn. Gestirnir hreinsa í horn.
21. mín
Boltinn inn á teig Völsungs á Rafael Victor sem tekur boltann vel niður. Nær þó ekki að snúa að marki undir pressu og brýtur af sér í tilraun til þess.
Völsungur
17. mín
Alvöru mark!

Dagbjartur Búi Davíðsson

Boltinn á Dagbjart fyrir utan teig vinstra megin, hann tekur boltann til sín og snýr að marki og neglir honum í hornið nær óverjandi fyrir Hjörvar Daða í marki Grindavíkur.
15. mín
Heimamenn örlítið ofaná það sem af er. Gestirnir þó átt sín upphlaup.
9. mín
Mbye vinnur boltann á vallahelmingi Grindavíkur og leikur í átt að marki, lætur vaða úr D-boganum en setur boltann yfir.
4. mín
Ætla Völsungar að svara strax?
Vinna sínu fyrstu hornspyrnu. Mbye fyrstur á boltann eftir hornið en nær ekki að stýra honum á markið.
Grindavík
3. mín
MARK!

Haraldur Björgvin Eysteinsson (stoðsending: Stefán Jón Friðriksson)

Ekki lengi gert hjá heimamönnum. Virkilega góð hornspyrna frá vinstri tekinn inn á markteiginn þar sem Haraldur fær frían skalla og setur hann í netið.
3. mín
Heimamenn sækja fyrstu hornspyrnu dagsins
Koma boltanum fyrir markið frá hægri en gestirnir hreinsa í horn.
1. mín
Þetta er farið af stað í Grindavík. Það eru heimamenn sem hefja hér leik.
0. mín
0. mín
Þriðja liðið
Hreinn Magnússon er með flautuna hér í dag. Honum til aðstoðar eru Þórður Arnar Árnason og Þráinn Jón Elmarsson. Viðar Helgason sinnir svo eftirliti að hálfu KSÍ.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
0. mín
Amin spáir
Amin Cosic, sem hefur verið einn besti leikmaður Bestu deildarinnar í sumar, spáir í leikina að þessu sinni. Grindavík 4 - 0 Völsungur Held að Grindavík rústi þessum leik 4-0, eru búnir að vera öflugir í bikar og mjög fínir í deildinni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
0. mín
Grindavík
Taplausir en hafa heldur ekki unnið. Grindvíkingar hafa gert jafntefli í öllum þremur leikjum sínum til þessa í deildinni og eru því nokkuð augljóslega með þrjú stig eftir þrjár umferðir. Varnarleikur liðsins klárlega verið þeirra helsti styrkleiki í þessum fyrstu leikjum en sóknin hefur ekki náð sama flugi. Grindavík var í maraþonleik við ÍA í mjólkurbikarnum sem fór alla leið í vítaspyrnukeppni þar sem ÍA hafði að lokum sigur. Spurning hvort að sá leikur sitji enn í mönnum og muni hafa áhrif á liðið í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
0. mín
Völsungur
Tvö jafntefli í fyrstu tveimur leikjum liðsins gegn Leikni og Aftureldingu hafa skilað tveimur stigum í pokann góða til þessa hjá Húsvíkingum. Þeir þurftu þó að gera sér að góðu að lúta í gras 3-0 á heimavelli í síðustu umferð þegar lið Þróttar kíkti í heimsókn norður í land. Það verður þó að segjast að Húsvíkingar koma mun betur undan vetri en margir reiknuðu eflaust með eftir mjög svo áhugarvert undirbúningstímabil. Það er því spurning hvort að fyrsti sigur sumarsins komi í Grindavík í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
0. mín
Leikdagur í Grindavík
Heil og sæl kæru lesendur og verið hjartanlega velkomin í þessa beinu textalýsingu Fótbolta.net frá leik Grindavíkur og Völsungs í Lengjudeild karla.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.