SKÝRSLAN: Vestri með endurkomusigur í Þorlákshöfn
Hvað réði úrslitum?
Vestramenn voru ekki tilbúnir í byrjun seinni hálfleiks en voru mikið betri aðilinn mest allann leikinn og náðu að koma tilbaka með mörkum frá Elmari og Ibra
Bestu leikmenn
1. Elmar Atli Garðarsson
Elmar var virkilega flottur varnarlega og skoraði stórkostlegt mark til að jafna leikinn og það breytti miklu fyrir Vestramenn.
2. Guðmundur Páll Einarsson og Ibrahima Balde
Guðmundur Páll Einarsson var mjög öflugur og var með Harley Willard í vasanum í þessum leik en sleppti honum greinilega úr vasanum í hálfleik en setti hann þangað aftur eftir 30 sekúndur í seinni hálfleik. Ibrahima Balde skoraði gott sigurmark þess vegna set ég hann líka í 2.sætið
Atvikið
Markið hanns Elmars var frábært og gaf Vestra von um að geta farið og sótt sigur í þessum leik.
Hvað þýða úrslitin?
Vestri kemst upp í 2.sætið en eru búnir að spila einu fleiri leik en hin liðin og Ægir sitja ennþá i neðsta sæti með 0 stig eftir 4 leiki.
Vondur dagur
Átti enginn vondann dag í Þorlákshöfn í dag Ægismenn voru ágætir og Vestramenn góðir meiri hluta leiks en ef maður þyrfti að gefa einhverjum þetta þá væri það bara Markús Máni sem var tekinn útaf í hálfleik en held nú að það hafi verið meira taktísk breyting en ekki útaf hann var að standa sig eitthvað illa.
Dómarinn - 8
Stefán Ragnar Guðlaugsson þurfti ekki að taka neina stóra ákvörðun en það sem hann dæmdi var allt rétt að mínu mati.


