SKÝRSLAN: Ekkert gengur upp hjá FH
Hvað réði úrslitum?
Rauða spjaldið hjá Kristjáni snæ leikmanni FH breytti leiknum FH komu sér í fleiri færi heilt yfir í leiknum en fannst þeir aldrei nógu sannfærandi. Svo nýttu KA færin sýn og gerðu vel
Bestu leikmenn
1. Jeppe Pedersen
Fannst Jeppe Pedersen stýra miðjunni vel. Hann skoraði jöfnunarmark KA og var flottur bæði varnarlega og sóknarlega
2. Benjamín Bæring Þórsson
Benjamín Bæring fékk tækifæri í byrjunarliðinu og nýtti það vel skoraði og skapaði mikla hættu.
Atvikið
Rauða spjaldið hjá Kristjáni Snæ breytti leiknum. Leikurinn var í járnum í fyrri hálfleik en eftir rauða spjaldið þurftu FH að fara aftar á völlinn.
Hvað þýða úrslitin?
KA menn virðast vera komnir í gang. Þeir hafa unnið 3 leiki í röð núna og góður andi hjá þeim. Meðan FH sitja ennþá í 11 sæti deildarinnar með 2 stig. Þeir virðast ætla vera í bullandi fallbaráttu í allt sumar
Vondur dagur
Ætla gefa Kristjáni snæ þetta fyrir rauðaspjaldið og varnarleik FH að koma honum í þessa stöðu þegar Hallgrímur Mar slapp einn í gegn.
Dómarinn - 8
Arnar dæmdi þennan leik mjög vel var að fljóta mjög vel eina spurningar merkið var vítið sem FH vildu fá en mér fannst ekki mikið í því



