Fotbolti.net
Besta deildin
@gummi_aaGuðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Besta karla
HS Orku völlurinn
Sól og smá vindur
Keflavík
Keflavík
1 - 1
Stjarnan
Stjarnan
Muhamed Alghoul 41'1 - 01 - 149' Andri Rúnar Bjarnason
Dómari: Gunnar Freyr Róbertsson

SKÝRSLAN: Átti að skora þrjú eða fjögur og pressa í Garðabænum

Hvað réði úrslitum?

Bæði lið fengu sín færi. Stefan Ljubicic nagar sig líklega í handarbökin að hafa ekki klárað þetta en hann sjálfur safnaði í 1,03 í xG einn síns liðs. Hann hefði átt að skora tvö, þrjú eða jafnvel fjögur mörk í þessum leik miðað við færin sem hann var að fá. Bæði lið áttu sín augnablik og sín færi, og eru líklega bara bæði svekkt með þessi úrslit. Mér fannst Keflavík spila mjög vel og þeir eru kannski ögn svekktari að hafa ekki náð að vinna í fyrsta sinn á heimavelli í sumar.

Bestu leikmenn

1. Þorlákur Breki Baxter (Keflavík)

Vann mjög vel fyrir Keflavíkurliðið á miðsvæðinu. Lagði upp markið með flottri sendingu og skapaði fleiri færi. Er mikill drifkraftur inn á miðsvæðinu.

2. Jóhann Árni Gunnarsson (Stjarnan)

Besti leikmaður Stjörnunnar í þessum leik. Lagði upp markið sem Andri Rúnar skoraði og var að tengja vel við liðsfélaga sína.

Atvikið

Það er líklega bara það þegar Stefan Ljubicic slapp í gegn undir lokin en Árni Snær sá við honum. Það var frábært færi en saga leiksins fyrir Ljubicic sem var duglegur að koma sér í færi en náði ekki að klára. Svo fékk Stjarnan reyndar líka gott færi í lokin en Ásgeir Orri náði að loka mjög vel í marki Keflavíkur á móti hinum 16 ára gamla Bjarka Hrafni Garðarsyni.

Hvað þýða úrslitin?

Keflavík er að gera betur en búist var við fyrir mót og mögulega ættu þeir að vera með fleiri stig. Eru í sjöunda sæti með átta stig en Stjarnan er með stigi minna í níunda sæti. Stjarnan hefur ekki unnið í síðustu fimm leikjum sínum og það er komin mikil pressa á Jökul Elísabetarson jafnvel þó svo að hann tali um að hann sé ekkert að spá í því.

Vondur dagur

Árni Snær átti klárlega að gera betur í markinu sem Keflavík skoraði. Það var slakt hjá honum en annars átti hann fínan leik. Birnir Snær var ósýnilegur áður en hann var tekinn út af og komst ekki í mikinn takt við leikinn. Svo átti Stefan Ljubicic bara að klára þennan leik með öllum þeim færum sem hann fékk.

Dómarinn - 7

Mér fannst Gunnar Freyr komast vel frá þessu. Ekkert brjálæðislega erfiður leikur að dæma svo sem.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.