Chelsea og Arsenal vilja Kroupi - Man Utd bjartsýnt á að landa Ederson og Tonali - Inter hefur áhuga á Kepa
Besta karla
Stjarnan
LL 0
1
Fram
Lengjudeild karla
ÍR
LL 3
1
HK
Lengjudeild karla
Leiknir R.
LL 0
0
Grindavík
Besta karla
Breiðablik
LL 6
3
KR
Lengjudeild karla
Afturelding
LL 4
3
Þróttur R.
Besta karla
Víkingur R.
LL 5
0
FH
Besta karla
Keflavík
LL 1
0
Þór
Besta karla
KA
LL 0
1
Valur
Stjarnan
0
1
Fram
0-1 Róbert Hauksson '71
Bjarki Hauksson '87
22.05.2026  -  19:15
Samsungvöllurinn
Besta karla
Dómari: Þórður Þorsteinsson Þórðarson
Byrjunarlið:
12. Árni Snær Ólafsson (m)
5. Guðmundur Kristjánsson (f)
6. Sindri Þór Ingimarsson
8. Jóhann Árni Gunnarsson
11. Birnir Snær Ingason
17. Haukur Örn Brink ('70)
18. Guðmundur Baldvin Nökkvason
19. Daníel Finns Matthíasson ('65)
27. Damil Serena Dankerlui ('82)
32. Örvar Logi Örvarsson
99. Andri Rúnar Bjarnason ('70)
- Meðalaldur 28 ár

Varamenn:
1. Darri Bergmann Gylfason (m)
3. Gustav Kjeldsen
4. Þorri Mar Þórisson ('65)
14. Bjarki Hauksson ('70)
30. Markús Andri Daníelsson Martin
33. Bjarki Hrafn Garðarsson ('70)
35. Bjarki Friðjón Sæmundsson
36. Arnar Breki Björnsson
37. Benjamín Björnsson ('82)
- Meðalaldur 19 ár

Liðsstjórn:
Jökull I Elísabetarson (Þ)
Alex Þór Hauksson
Emil Atlason
Rajko Stanisic
Egill Atlason
Hákon Ernir Haraldsson
Garpur I Elísabetarson
Hrannar Bogi Jónsson
Orian Burzic

Gul spjöld:
Daníel Finns Matthíasson ('48)
Haukur Örn Brink ('67)
Jökull I Elísabetarson ('71)

Rauð spjöld:
Bjarki Hauksson ('87)
Leik lokið!
Váááááá Þetta er búið, Fram á þetta skilið.

Pressa á Jölla? Hver veit.

Viðtöl á leiðinni.
93. mín
Gummi Kri með svakalegan sprett í 93 mín, þegar Már og Atli ætla í skyndisókn.
92. mín
Ægir Jarl með háa sendingu inn í teig en sendingin er yfir markið.
90. mín
Dauðafæri Þorri með sendingu inn í teig á Bjarka sem nær boltanum og er alveg komin við stöngina en skotið er lélegt og beint á Viktor.

Þarna var tækifærið!
90. mín
+4 mín, ekki að flækja þetta.
89. mín
11 skot hjá Stjörnunni og Fram með 13.

Mér líður eins og Fram er búin að vera með töluvert fleiri skot.
87. mín Rautt spjald: Bjarki Hauksson (Stjarnan)
Bjarki sparkar aftan í Atla þegar hann er að breika í skyndisókn, dómarinn segir beint rautt.

Virtist soft við fyrstu sýn en þegar kveikt er á sjónvarpinu þá var þetta klárt rautt, reynir ekki við boltann.
85. mín Gult spjald: Freyr Sigurðsson (Fram)
85. mín
Már Ægisson skellur í Sindra.

Sindri fer niður á jörðina, en stígur fljótt upp aftur.
85. mín
Lítið svo sem að gerast, báðir þjálfarar með skiptingar.
84. mín
Inn:Bjarni Páll Linnet Runólfsson (Fram) Út:Fred Saraiva (Fram)
Vá hvað Fred er búin að vera góður í dag.
82. mín
Inn:Már Ægisson (Fram) Út:Róbert Hauksson (Fram)
82. mín
Inn:Benjamín Björnsson (Stjarnan) Út:Damil Serena Dankerlui (Stjarnan)
80. mín Gult spjald: Israel Garcia (Fram)
79. mín
Örvar rífur í treyjuna hjá Fred sem missti boltann fyrir brotið segir dómarinn, heppin að fá ekki gult þarna.
76. mín
Þorri með skalla úr horni sem fer yfir markið.
75. mín
Það er nóg að gera. Sjáum til hvernig Stjarnan svarar en þetta er búið að vera mikið þrot hjá þeim.
72. mín
Inn:Israel Garcia (Fram) Út:Jakob Byström (Fram)
72. mín
Inn:Atli Þór Jónasson (Fram) Út:Kyle McLagan (Fram)
71. mín Gult spjald: Jökull I Elísabetarson (Stjarnan)
Jölli, þjálfari Stjörnunnar fær gult fyrir að kvarta yfir markinu.
71. mín MARK!
Róbert Hauksson (Fram)
Stoðsending: Freyr Sigurðsson
Það hlaut að koma, þeir eiga þetta skilið.

Freyr pikkar boltann upp á miðsvæðinu og kemst framhjá Birni og Örvari og er alveg einn á hægri kantinum.

Rennur svo boltanum framhjá markinu og á Róbert sem er alveg einn og potar honum inn
70. mín
Inn:Bjarki Hauksson (Stjarnan) Út:Haukur Örn Brink (Stjarnan)
70. mín
Inn:Bjarki Hrafn Garðarsson (Stjarnan) Út:Andri Rúnar Bjarnason (Stjarnan)
70. mín
Andri Rúnar tekinn niður í teignum af tveimur Fram leikmönnum, dómarinn segir nei við víti.
69. mín
Kennie kemur með háa fyrirgjöf inn í teig en Fred rétt missir af honum, boltinn dettur svo á Frey sem lætur vaða nema beint í Fred, óvart auðvitað.
68. mín
Kennie kemur með boltann inn í teiginn en það er enginn Framari til þess að pota honum inn.
67. mín Gult spjald: Haukur Örn Brink (Stjarnan)
65. mín
Kennie með skot í hliðarnetið.
65. mín
Inn:Þorri Mar Þórisson (Stjarnan) Út:Daníel Finns Matthíasson (Stjarnan)
64. mín
Dauðafæri Róbert aftur.

Árni sendir á McLagan klaufalega sem sendir Róbert einn á móti Árna, Róbert skýtur svo á markið en Árni ver og boltinn fer rétt framhjá.
62. mín
Kennie með háan á Róbert Hauks sem er galopin og einn í teignum, flottur skalli en beint á Árna sem ver fyrir horn.

Hornið fer svo ekki neitt.
61. mín
Mark dæmt af Fred keyrir inn í teiginn og kemst framhjá Gumma, Fred endar svo að missa boltann og tæklar Jóhann Árna sem fer niður og boltinn fer svo á Róbert sem skorar en dómarinn dæmir brot á Fred.
59. mín Gult spjald: Haraldur Einar Ásgrímsson (Fram)
57. mín
Jóhann Árni með skot frá aukaspyrnu rétt fyrir utan D bogann, skotið er að fara læðast inn í neðra vinstra hornið en Viktor ver framhjá.
56. mín
Sigurjón fær tiltal fyrir að rífa í Andra.
55. mín
Fred með horn, boltinn fer beint á Sigurjón sem skallar yfir.
54. mín
Dauaðfæri Dankerlui kemst framhjá vörn Fram og er komin við endalínuna.

Dankerlui kemur svo boltanum fram fyrir markið á Andra sem reynir hælskotið með galopið markið en Sigurjón nær að blokka boltann og Viktor tekur boltann upp.
52. mín
Haukur Brink fær boltann við D bogann og er að leika listir við vörn Fram, en Fram nær svo að stoppa hann og koma boltanum burt.
50. mín
Örvar kemur með háa sendingu inn í teig, sendingin er skölluð burt en boltinn dettur á Danna Finns sem tekur volley en yfir markið.
48. mín Gult spjald: Daníel Finns Matthíasson (Stjarnan)
47. mín
Danni Finns kemur með háan inn í teiginn sem Viktor grípur.
47. mín
Byrjar hægt. Bæði lið mjög róleg.
46. mín
Ég vil MARK!
46. mín
Seinni hálfleikur Stjörnumenn byrja.
45. mín
Hálfleikur
Sjáumst eftir korter. Ég var að vona eftir meiri markaleik.
45. mín
Birnir á vinstri kantinum kemur með sendingu inn í teig, boltinn er að skoppa inn í teignum og Stjarnan nær ekki að nýta sér færið og að skjóta á markið.
45. mín
+1

Dómarinn er ekki að flækja þetta.
42. mín
Haukur Brink keyrir inn í teig Fram. Kemur svo með sendingu fyrir markið en Viktor lemur hann burt.

Boltinn dettur svo á Danna Finns sem lætur vaða langt frá, en boltinn fer langt langt framhjá.
38. mín
Algjör ping pong bolti núna þar sem bæði lið eru að missa boltann til hvorn annan aftur og aftur.

Róbert Hauks í fínu færi en missir boltann þegar hann komst í boxið.
37. mín
Danni Finns að keyra á vörn Fram, sendir svo á Birni sem missir boltann.
35. mín
Hár bolti á Róbert sem nær boltanum og lætur vaða en skotið fór í varnarmann og fyrir horn.

Hornið fer beint á D bogan þar sem Freyr er, Freyr tekur svo skotið sem fer yfir markið.
34. mín
Jóhann Árni með sendingu inn í teiginn, Viktor lemur hann burt en endar á Þorra sem fór niður en stóð upp svo fljótt aftur.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
31. mín
Fred sendir Róbert Hauks í gegn.

Róbert með pressu frá Sindra nær samt að skjóta en Árni ver.
29. mín
Byström kemur með háa sendingu inn í teigin sem er svo skölluð af Gumma.

Boltinn fer svo á Sigurjón sem lætur vaða en skotið fór framhjá.
25. mín
Haukur Brink að komast í skyndisókn en Þorri stoppar hann.
24. mín
Boltinn er að skoppa inn í teig Stjörnunnar.

Byström ætlar að taka hjólhestaspyrnu en missir af boltanum og endar á að sparka í Gumma sem kippir sér ekki við það.
22. mín
Dauðafæri Freyr á hægri kantinum kemur með sendingu inn í teig á Byström sem rétt missir af boltanum.
22. mín
McLagan keyrir upp hægri kantinn og kemur með háa sendingu beint á Kennie inn í teig, sem skallar á markið en Árni ver þægilega.
21. mín
Haraldur tekur aukaspyrnuna, beint á hausinn hans Þorra sem skallar yfir.
20. mín
Fred er að leika sér inn á vellinum, ótrúlegur leikmaður. Danni Finns hrindir svo honum niður og Framarar fá auka nálægt teignum.
17. mín
Rétt framhjá Stjarnan að fá færi hérna.

Andri fær boltann og sendir á Dankerlui sem keyrir inn í teig og lætur vaða. Skotið fór rétt framhjá stönginni.
15. mín
15 mínútna skýrslan Þetta er mikið þrot hjá Stjörnunni, Framarar eru búnir að vera miklu betri.
14. mín
Fred kemur með boltann inn í teiginn, hann fer á Róbert sem nær ekki skotinu og er blokkaður af Sindra.
12. mín
Fram fær aukaspyrnu sem Haraldur tekur stutt, sendir svo á Fred sem kemur boltann inn í teiginn sem Gummi sparkar burt.
9. mín
Danni Finns er að spila mjög ofarlega á vellinum og Dankerlui líka þegar Stjarnan fer í sókn.
8. mín
Færi aftur Örvar keyrir upp vinstri kantinn, sendingin er blokkuð af varnarmanni.

Boltinn dettur svo á Birni sem dansar inn í teignum og skýtur svo rétt framhjá markinu.
7. mín
Færi! Stjarnan missir boltann klaufalega, Kennie fær boltann og sendir á Fred sem er hjá D boganum, Fred tekur skotið yfir markið.
5. mín
Andri Rúnar reynir skotið frá miðjunni en Viktor var í teignum, Andri skýtur samt framhjá.
4. mín
Framarar taka hornið stutt.

Haraldur kemur með sendinguna inn í teiginn og Þorri skýtur yfir.
4. mín
Kennie komin á miðsvæðið og reynir skot langt frá.

Skotið er í bakið hjá Sindra og fyrir horn.
3. mín
Gummi Kri sendir langa úr vörninni á Ægi Jarl sem setur Róbert í gegn, en Sindri nær að pressa hann við endalínuna og gefur boltann til baka.

Róbert að sýna hraðann sinn.
1. mín
Andri Rúnar fær boltann við teiginn og setur hann svo á Birni sem endar svo á því að missa boltann.
1. mín
Fred byrjar þetta með skot á markið.

Fær boltann á kassan og tekur svo volley, en skotið er beint á Árna sem er þægilegur með þennan.
1. mín
Leikur hafinn
Framarar byrja.
Fyrir leik
5 min í leik Spennar er í hámarki, persónulega segi ég markaleikur og 3-2 Stjarnan. En það er aldrei að vita hvernig þessi leikur fer.

Andri Rúnar með eitt það segi ég.
Fyrir leik
Fyrir leik
Hvernig Stjarnan spilar Jökull er með áhugaverða breytingar í dag og það virðist vera að hann ætli að spila þetta svona, getur gerst að Danni Finns verði djúpur eða verður í vörninni og þá fimm manna.

Árni
Danerklui - Gummi Kri - Sindri - Örvar Logi
Jóhann Árni - Guðmundur - Danni Finns
Birnir Snær - Andri Rúnar - Haukur Brink
Fyrir leik
Hvernig Fram spilar Miðað við hvernig Rúnar teflar þessu í kvöld, þá myndi ég giska að Fram sé að spila svona.

Viktor
Chopart - Þorri - McLagan - Sigurjón - Haraldur
Fred - Ægir Jarl - Freyr
Byström - Róbert Hauks
Fyrir leik
Birnir snær aftur orðinn nr 11 Eftir að hafa verið skráður með númerið 14 í síðasta leik gegn Keflavík virðist Birnir Snær vera kominn með númerið 11 aftur.
Fyrir leik
Byrjunarliðið eru komin í hús Jökull gerir tvær breytingar hjá Stjörnunni. Haukur Örn Brink og Damil Dankerlui koma inn í byrjunarliðið. Emil Atla og Örvar Eggerts eru ekki í hóp, en þeir byrjuðu síðasta leik.

Rúnar Kristinsson gerir fjórar breytingar hjá Fram. Mclagan, Róbert Hauksson, Jakob Byström og Freyr Sigurðsson byrja leikinn. Atli Þór og Már Ægisson fara á bekkinn eftir að hafa byrjað síðasta leik. Tibbling og Vuk Dimitrijevic ekki í hóp.



Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Dómarakvartett Þórður Þorsteinsson Þórðarson verður með flautuna, Patrik Freyr Guðmundsson og Guðmundur Ingi Bjarnason verða með flöggin. Hreinn Magnússon verður með skiltið.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Svekkjandi árangur Stjörnunnar í deildinni Stjarnan hefur ekki unnið leik síðan 17. apríl, það var gegn FH á Samsungvellinum. Eftir síðasta leik var Jökull, þjálfari Stjörnunnar spurður um hvort að hann hafi áhyggjur af þessu.

„Það er ekki gott að fá eitt stig í fimm leikjum. Það er aðallega bara svekkjandi. Við erum búnir að vinna okkur inn fyrir meiru en það. Skagaleikurinn var lélegur og þessi var 50/50. Að öðru leyti höfum við spilað vel. Við þurfum að jafna okkur og gera okkur klár í næsta."


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Framarar fyrstir til þess að taka stig af KR
Fyrir leik
Eftir bikar sigur gegn KR, gerði Stjarnan jafntefli í Keflavík
Fyrir leik
Besta Deildin kallar Velkomin á Samsungvöllinn í Garðabæ. Stjarnan fær Fram í heimsókn í áttundu umferð Bestu Deildarinnar.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Dagurinn í dag.

föstudagur 22. maí
18:00 KA-Valur (Greifavöllurinn)
18:00 Keflavík-Þór (HS Orku völlurinn)
19:15 Víkingur R.-FH (Víkingsvöllur)
19:15 Stjarnan-Fram (Samsungvöllurinn)
19:15 Breiðablik-KR (Kópavogsvöllur)
Byrjunarlið:
22. Viktor Freyr Sigurðsson (m)
3. Þorri Stefán Þorbjörnsson
5. Kyle McLagan ('72)
8. Haraldur Einar Ásgrímsson
9. Róbert Hauksson ('82)
10. Fred Saraiva ('84)
15. Jakob Byström ('72)
18. Ægir Jarl Jónasson
19. Kennie Chopart (f)
25. Freyr Sigurðsson
26. Sigurjón Rúnarsson
- Meðalaldur 26 ár

Varamenn:
1. Sigurjón Daði Harðarson
4. Arnar Daníel Aðalsteinsson
7. Kristófer Konráðsson
14. Bjarni Páll Linnet Runólfsson ('84)
16. Israel Garcia ('72)
17. Atli Þór Jónasson ('72)
23. Már Ægisson ('82)
- Meðalaldur 26 ár

Liðsstjórn:
Rúnar Kristinsson (Þ)
Helgi Sigurðsson
Magnús Þorsteinsson
Einar Haraldsson
Friðgeir Bergsteinsson
Sævar Halldórsson
Guðmundur Gígjar Sigurbjörnsson
Kristján Finnbogi Finnbogason

Gul spjöld:
Haraldur Einar Ásgrímsson ('59)
Israel Garcia ('80)
Freyr Sigurðsson ('85)

Rauð spjöld: