SKÝRSLAN: Markasúpa í Mosó
Hvað réði úrslitum?
Þetta var svakalegur fram-og-til-baka leikur, bæði lið skora þrjú mörk á þriggja mínútna kafla í fyrri hálfleik. Þetta fer svo aðeins að róast í seinni hálfleik og bæði lið skora eitt hvort.
Bestu leikmenn
1. Sigurður Egill Lárusson
Skorar tvö mörk, þar að auki aukaspyrnumark langt frá vítateignum, ábyggilega eitthvað sem hefur verið æft á æfingasvæðinu.
2. Elmar Kári Enesson Cogic
Elmar var mjög fínn í dag, átti einnig tvö mörk og virkaði mjög öruggur í dag.
Atvikið
Það er klárlega á 12. mínútu þegar það það verður samstuð milli Axel Óskars, leikmann Aftureldingar, og Aroni Snæ, leikmanni Þróttar. Þetta samstuð leiddi til þess að hringja þurfti á sjúkrabíl og var Aron borinn af velli á börum. Við óskum þeim báðum auðvitað innilegar batakveðjur og vonandi ná þeir sér sem fyrst.
Hvað þýða úrslitin?
Bæði lið eru jöfn að stigum á topp Lengjudeildarinnar! Þróttur eru þó í efsta sæti á markatölu, en það munar aðeins þremur.
Afturelding á útileik gegn Grindavík í næstu umferð og Þróttur fær Gróttu í heimsókn.
Vondur dagur
Hægt að setja það á Magnús Þórðarson fyrir að næla sér í þetta seinna gula spjald. Setur hendina í andlit leikmanns Aftureldingar og algjörlega óþarfi svona í lok leiks að mínu mati.
Dómarinn - 5
Twana var svosem fínn. Fannst hann lengi að dæma hlutina og maður var stundum ekekrt sammála honum.



