SKÝRSLAN: Eina taplausa liðið í Lengjudeild eftir fjórða jafnteflið í sumar
Hvað réði úrslitum?
Væri auðvelt að benda á skort á gæðum á síðasta þriðjung vallarins. Það er samt ákveðið listform að verjast og þar voru Grindvíkignar sterkir. Ekki mikið fyrir augað endilega fyrir hinn almenna áhugamann og leikur sem verður eflaust ekki endursýndur á mörgum heimilum.
Bestu leikmenn
1. Arnór Gauti Úlfarsson (Grindavík)
Var öflugur í öftustu línu Grindavíkur. Hann ásamt Damir mynda öflugt teymi aftast hjá Grindavík.
2. Daði Bærings Halldórsson (Leiknir R.)
Fyrirliðin fór fyrir sínu liði í kvöld. Var óheppin að skora ekki og hann reyndi að berja sitt lið áfram í kvöld.
Atvikið
Í fullri hreinskilni var hápunkturinn í þessum leik sennilega lokaflautið. Ekkert atvik eða atriði sem kemur fljótt upp í huga.
Hvað þýða úrslitin?
Bæði lið skipta með sér stigunum og Grindvíkingar eru núna einir taplausir í deildinni.
Vondur dagur
Shkelzen Veseli fór illa með nokkrar stöður í kvöld. Leiknismenn komust í flottar stöður oft á tíðum en náðu þó ekkert að ógna að neinu viti.
Dómarinn - 8
Tók varla eftir dómara leiksins í kvöld sem veitir á gott. Fór lítið fyrir honum og ekki erfiður leikur að dæma svo sem en teymið komst vel frá sínu.



