Fotbolti.net
Besta deildin
@fotboltinetSigurður Bibbi
Besta karla
Greifavöllurinn
Örlítil austangola og 12 gráður. Geggjað knattspyrnuveður
KA
KA
0 - 1
Valur
Valur
0 - 141' Albin Skoglund
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason
Myndir: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

SKÝRSLAN: Grátlegt tap á heimavelli í jöfnum leik

Hvað réði úrslitum?

Heppni réð úrslitum í þessum leik. Stöngin út hjá Val þar sem Skoglund var en stöngin út af hjá KA.

Bestu leikmenn

1. Tryggvi Hrafn Haraldsson

Var ógnandi allan leikinn, gaf góðar sendingar og skóp markið með góðu skoti sem endaði í stönginni og hrökk fyrir fætur Skoglunds

2. Markús Máni Pétursson

Stóð sig vel í hjarta varnarinnar, átti líka góða spretti fram. Vörn KA var góð í dag og margir leikmenn sprækir.

Atvikið

Markið sem skildi á milli er eina atvikið sem kemur upp í hugann. Stórt 3ja stiga atriði.

Hvað þýða úrslitin?

Úrslitin þýða að Valur er enn í 5. sæti en nú fjórum stigum frá því 6. KA missir Keflavík upp fyrir sig og færist í 7. sætið.

Vondur dagur

Eiginlega ekki vondur dagur fyrir neinn. Bæði lið nokkuð solid þó færasköpun hefði mátt vera betri. Enginn með hauskúpuleik. Þannig að við erum bara jákvæðir í dag.

Dómarinn - 8

Átti ekki í erfiðleikum með leikinn. Flestir dómar réttir.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.