SKÝRSLAN: Martraðarendir fyrir vonarstjörnuna úr Þorpinu
Hvað réði úrslitum?
Keflavíkingar voru með undirtökin framan af leiknum en Þórsarar fóru ekki að gera neitt almennilega sóknarlega fyrr en það voru um 20 mínútur eftir. Það skilaði sér í vítaspyrnu í uppbótartímanum en hinn bráðefnilegi Einar Freyr Halldórsson klikkaði á ögurstundu, setti boltann í stöngina og framhjá markinu. Það súmmeraði svo sem upp leik Þórsara í kvöld; sóknarleikur Þórs var mjög bragðlaus.
Bestu leikmenn
1. Marin Brigic (Keflavík)
Skoraði markið sem skildi liðin að og var mjög sterkur varnarlega. Klikkaði smá í lokin þegar hann tapaði stóru skallaeinvígi en var heilt yfir frábær.
2. Nacho Heras (Keflavík)
Félagi Marin í vörninni, Nacho Heras, var líka mjög sterkur og stóð vaktina frábærlega í hjarta varnarinnar.
Atvikið
Stóra atvikið í leiknum er auðvitað bara vítaspyrnan í lokin sem fór í stöngina og fram hjá. Einar Freyr er afar efnilegur leikmaður sem mun rísa aftur upp eftir þetta.
Hvað þýða úrslitin?
Keflvíkingar eru komnir upp í efri hluta deildarinnar, allavega í bili, með ellefu stig úr átta leikjum. Þeir hafa bara verið virkilega flottir í sumar og mega vera mjög sáttir með frammistöðu sína. Þórsarar hafa tapað fimm leikjum í röð og eru í smá krísu.
Vondur dagur
Fremstu menn Þórsara fá þetta. Allir þeir þrír sem fóru út af eftir tæplega klukkutíma leik komust ekki í takt við þennan leik. Atli Sigurjóns var nokkuð hættulegur en hinir voru lítið með. Einar Freyr klúðraði þá vítinu og mun eiga erfitt með svefn í kvöld. En eins og áður segir mun þessi strákur rísa aftur upp þrátt fyrir þennan martraðarendi á leik kvöldsins.
Dómarinn - 5
Hárréttur vítadómur, það var engin spurning. En það voru svona furðulegir dómar hér og þar út á velli. Stefan Ljubicic fær afskaplega lítið frá dómurum en það á ekki refsa honum fyrir að vera stór og sterkur.




