SKÝRSLAN: Versta byrjun FH í sögu efstu deildar
Hvað réði úrslitum?
Eins og Sölvi Geir talar um í viðtalinu eftir leik. Það sást alveg að hugurinn á Víkingsmönnum var rétt stilltur, fínn fyrri hálfleikur og síðan algjör yfirtaka í þeim seinni réði úrslitum í dag.
Bestu leikmenn
1. Elías Már Ómarsson
Tvö mörk og orðinn markahæstur með 9 mörk í 8 leikjum á tímabilinu. Það voru ángríns einhverjir þarna úti sem höfðu ekki trú á honum.
2. Ármann Ingi Finnbogason
Tvær flottar stoðsendingar og ógnar sífellt með hraða sínum og krafti. Margir sem hefði getað fengið þetta 2.sæti en Ármann í dag.
Atvikið
Rauða spjaldið gerði út um það að FH myndi eitthvað klóra tilbaka.
Hvað þýða úrslitin?
Víkingur er komið með þriggja stiga forskot á KR sem er í öðru sæti Bestu Deildarinnar.
Byrjun FH er verri en árið 1987 þegar liðið fékk eitt stig úr fyrstu sjö leikjunum því þá vann Hafnarfjarðarliðið sinn áttunda leik og fór upp í 4 stig.
FH er þar með komið í hóp 14 liða frá árinu 1959 sem hafa aðeins fengið tvö stig eða minna úr fyrstu átta umferðum deildarinnar. Síðast gerðist það fyrir tíu árum, 2016, þegar Fylkir byrjaði tímabilið á tveimur jafnteflum og sex ósigrum. Moli frá Víði Sig á Facebook. En FH situr á núna botninum með ÍBV, bæði með 2stig
Vondur dagur
Sverrir Páll og seinni hálfleikurinn. Missir boltann aftarlega á vellinum og fer svo beint í tæklingu á Elíasi Már til að redda sér. Rautt spjald og FH einum manni færri nánast allan seinni hálfleikinn. Þeir sáu ekki til sólar eftir það og leikurinn búin.
Dómarinn - 6
Bara fín frammistaða, eflaust einhverjir ósammála rauða spjaldinu. Vilhjálmur þurfti þó að víkja af velli vegna meiðsla og Jóhann Ingi fjórði dómari tók við þegar rúmt korter var eftir.



