Leik lokið!
95. mín
Völsungar fá aukaspyrnu í skotfæri. Langt færi en vel hægt að skjóta og láta reyna á Vilhelm.
Arnar Pálmi lætur vaða en setur boltann hátt yfir.
Arnar Pálmi lætur vaða en setur boltann hátt yfir.
94. mín
Aron Bjarki með skot úr teignum eftir ágæta sókn. Þægilegt viðfangs fyrir Vilhelm sem ver af öryggi.
93. mín
ÍR-ingar vinna hornspyrnu, Tækifærunum fer fækkandi og gestirnir hreinsa.
92. mín
Steinþór Freyr vinnur aukaspyrnu ofarlega á vellinum. Allir þeir stóru tölta fram.
Uppbótartíminn verður að lágmarki 5 mínútur.
Uppbótartíminn verður að lágmarki 5 mínútur.
91. mín
InnAron Bjarki Kristjánsson
ÚtFernando Jimenez Arranz
90. mín
Fernando Jimenez Arranz liggur eftir á vellinum og heldur um nárasvæðið.
87. mín
Gult spjald
André Musa Solórzano Abed
Fer í Steinþór á miðjum vellinum.84. mín
Gult spjald
Modoumatarr Mbye
Fernando fer niður í teignum og Völsungar vilja vítaspyrnu. Jóhann Ingi ekki á sama máli og spjalda Mbye fyrir mótmæli.82. mín
Völsungur með aukaspyrnu í fyrirgjafarstöðu.
81. mín
InnÍvan Óli Santos
ÚtVíðir Freyr Ívarsson
Ívan Óli var hetjan síðast. Verður hann það aftur?
80. mín
Mark Dagbjarts í allri sinni dýrð beint frá Livey!
Þvílíkt skot! #Lengjudeildin #Livey pic.twitter.com/R7LX2VHF1K
— Sverrir Ö Einarsson (@SEinarsson) June 21, 2026
76. mín
Völsungur fær hornspyrnu.
Dagbjartur Búi liggur eftir við endalínu og þarf aðhlynningu.
Dagbjartur Búi liggur eftir við endalínu og þarf aðhlynningu.
75. mín
Korter eftir hér og það hlýtur að vera sigurmark í þessu. Þessi leikur á það hreinlega skilið.
70. mín
Guð minn góður hvað þetta var ótrúlegt mark!
Aukaspyrna frá hægri skölluð út úr teignum í D-bogann. Þar stendur Dagbjartur og hamrar boltann á lofti í netið óverjandi fyrir Vilhelm í markinu.
Mark umferðarinnar og eitt af mörkum ársins klárt!
HALTU Á KETTI!
Dagbjartur Búi Davíðsson
Guð minn góður hvað þetta var ótrúlegt mark!
Aukaspyrna frá hægri skölluð út úr teignum í D-bogann. Þar stendur Dagbjartur og hamrar boltann á lofti í netið óverjandi fyrir Vilhelm í markinu.
Mark umferðarinnar og eitt af mörkum ársins klárt!
68. mín
InnOrri Bjarkason
ÚtEmil Nói Sigurhjartarson
68. mín
InnSigurður Karl Gunnarsson
ÚtHrafn Hallgrímsson
68. mín
InnAndré Musa Solórzano Abed
ÚtHákon Dagur Matthíasson
66. mín
Það er allt að gerast í 109!
Víðir Freyr Ívarsson (stoðsending: Emil Nói Sigurhjartarson)
Þung sókn ÍR, boltinn fyrir markið frá hægri. Emil Nói reynir þar skot en kiksar boltann og skotið verður að stoðsendingu á Víði sem skorar með föstu skoti úr teignum.65. mín
Vilhelm með hræðilega sendingu frá marki sem Völsungar komast inn í. Eru í frábærri stöðu 2 gegn 1 en spila ekki nógu vel úr því og Vilhelm nær að redda sér.
ÍR-ingar í alvöru brasi!
Vilhelm með hræðilega sendingu frá marki sem Völsungar komast inn í. Eru í frábærri stöðu 2 gegn 1 en spila ekki nógu vel úr því og Vilhelm nær að redda sér.
64. mín
Einn og yfirgefinn í miðjum teignum eftir hornið og skallar boltann í netið. Vilhelm í boltanum en í netið fer hann!
Hann skorar þá bara núna í staðin!
Fernando Jimenez Arranz
Einn og yfirgefinn í miðjum teignum eftir hornið og skallar boltann í netið. Vilhelm í boltanum en í netið fer hann!
63. mín
Fernando Jimenez Arranz í hörku dansi í teig ÍR og er við það að komast í dauðafæri sekúndum eftir að hafa komið inná. ÍR-ingar koma boltanum í horn en með miklum herkjum þó.
63. mín
InnFernando Jimenez Arranz
ÚtAndri V. Bergmann Steingrímsson
62. mín
Kristján Atli Marteinsson fékk gult eftir 26 sekúndur í síðasta leik og er ekkert óvanur því að fá gul spjöld. Vel gert hjá honum í dag að vera kominn yfir klukkutímann án þess að fá spjald.
59. mín
Víðir með hörkuskot úr D-boganum en Jochum vel á verði og ver virkilega vel.
57. mín
Heimamenn fá hornspyrnu.
55. mín
Gestirnir minnka munin
Gestur Aron Sörensson (stoðsending: Elfar Árni Aðalsteinsson)
Elmar Örn með boltann í átt að teignum frá vintri. Elfar Árni sterkur og kemur boltanum áfram inn á teiginn á Gest sem tekur boltann niður og leggur hann af öryggi í netið. Fékk tíma og pláss og nýtti það til fullnustu.51. mín
Andri Bergmann í fínni fyrirgjafarstöðu úti til vinstri en setur boltann of innarlega beint í fang Vilhelms.
Gestirnir byrjað þennan síðari hálfleik á jákvæðum nótum.
Gestirnir byrjað þennan síðari hálfleik á jákvæðum nótum.
46. mín
InnSteinþór Freyr Þorsteinsson
ÚtIndriði Ketilsson
Þreföld skipting í hálfleik hjá gestunum
46. mín
InnGestur Aron Sörensson
ÚtTómas Bjarni Baldursson
46. mín
InnDagbjartur Búi Davíðsson
ÚtDavíð Leó Lund
46. mín
Síðari hálfleikur hafinn
Jóhann Ingi flautar okkur af stað á ný í Breiðholtinu. Hefði þegið svona 2-3 mínútur í viðbót. Layla með Derek and the Dominos ómaði í hátalarakerfinu.
Frábært lag.
Frábært lag.
45. mín
Hálfleikur
Heimamenn með þægilega forystu að loknum þessum fyrri hálfleik. Hafa nýtt sín tækifæri vel og leiða nokkuð verðskuldað.
44. mín
Heimamenn að þjarma að Völsungum og vinna horn. Gestirnir verjast vel og koma boltanum frá.
40. mín
Jochum í rétt horn en skotið er fast og vel út í hornið.
Öryggið uppmálað.
Bergvin Fannar Helgason
Jochum í rétt horn en skotið er fast og vel út í hornið.
39. mín
Víðir setur boltann fyrir frá vinstri, hann smellur í hendi varnarmanns og Jóhann bendir umsvifalaust á puntkinn.
ÍR er að fá vítaspyrnu.
Víðir setur boltann fyrir frá vinstri, hann smellur í hendi varnarmanns og Jóhann bendir umsvifalaust á puntkinn.
37. mín
Sami meðalaldur á bekkjum beggja liða.
Það kann að hljóma lítilfjörlegt svona við fyrstu sýn að meðalaldur beggja bekkja sé 23 ár. Vert að benda á að á bekk Völsunga er Stálmúsin sjálf Steinþór Freyr Þorsteinsson, en hann verður 41 árs í júlí.
Hversu ungir eru hinir þá?
Myndin hér að neðan er ein sú elsta af Steinþóri í myndabanka Fótbolta.net. Tekin árið 2005 er hann lék með Breiðablik. Spurning hversu margir þekkja liðið sem hann leikur gegn á þessari mynd.

34. mín
Völsungar ógna, ná fyrirgjöfum inn á teiginn sem ÍRingar koma frá en þó ekki langt. Andri aftur að vinna sig í færi en missir boltann frá sér afturfyrir undir pressu frá varnarmanni úr ágætri stöðu í teignum.
31. mín
Modoumatarr Mbye með hraustlega tæklingu á vallarhelmingi ÍR, jaðrar við gult spjald en Jóhann sleppir honum með tiltal.
30. mín
Vægsast sagt fjörugar síðustu mínútur hér. Leikurinn aðeins róast þó.
26. mín
Mörkunum rignir hér
Andri V. Bergmann Steingrímsson (stoðsending: Modoumatarr Mbye)
Mikið klafs við teig ÍR og boltinn í loftinu Modoumatarr Mbye skallar hann niður. Boltinn fellur fyrir Andra í D-boganum sem leggur hann snyrtilega fyrir sig og lætur vaða á markið. Skotið ekki fast en hnitmiðað var það og fer í netið vel út við stöng.25. mín
Völsungar sækja upp hægri kantinn og uppskera hornspyrnu.
23. mín
Útsending Livey er komin í gang svo hefðbundin textalýsing tekur nú við.
21. mín
Einfalt og skilvirkt
Víðir Freyr Ívarsson (stoðsending: Ágúst Unnar Kristinsson)
Heimamenn brjótast upp völlinn hægra megin og koma honum inn á teiginn. Boltinn berst fyrir markið þar sem Víðir er mættur í hlaupið og setur boltann þægilega í netið úr markteignum.19. mín
MAAAARK!
Bergvin Fannar Helgason (stoðsending: Hákon Dagur Matthíasson)
Skalli úr teignum eftir þunga sókn ÍR. Bergvin aleinn og á ekki í nokkrum vandræðum með að skora.1. mín
Leikur hafinn
Tæknin að stríða okkur smá.
Leikurinn er hafinn, lýsandi treystir á útsendingu Livey hér í dag og þar eru menn að glíma við smávægilega tæknilega örðugleika sem stendur. Mörk og markaskorar verða færð inn í úrslitaþjónustu þar til útsending dettur í loftið.
Fyrir leik
Spámaðurinn
Skagamaðurinn Andri Júlíusson, sem þjálfaði Kára síðustu ár, spáir í leikina að þessu sinni. Um leikinn í Breiðholti sagði Andri.

ÍR 1 - 1 Völsungur
Hrikalega sterkur sigur Völsunga síðast og komnir með blóð á tennurnar og hrífast af Græna Gímaldinu og stela jafntefli.

ÍR 1 - 1 Völsungur
Hrikalega sterkur sigur Völsunga síðast og komnir með blóð á tennurnar og hrífast af Græna Gímaldinu og stela jafntefli.
Fyrir leik
Tríóið
Jóhann Ingi Jónsson er með flautuna í Breiðholti í dag. Honum til aðstöðar eru Daníel Ingi Þórisson og Þráinn Jón Elmarsson. Gunnar Helgason tekur svo út störf þeirra og framkvæmd leiks sem eftirlitsmaður KSÍ.

Fyrir leik
Jójóið í 109
Maður veit aldrei hvaða útgáfu ÍR-ingar senda til leiks og sumarið hefur verið vægast sagt sveiflukennt. Liðið sem flengdi Aftureldingu í fyrstu umferð og saltaði HK í þeirri fimmtu hefur líka tapað sannfærandi fyrir Ægi og fengið harða útreið gegn Njarðvík.
Bót í máli er þó að lið ÍR lagði eitt heitasta lið deildarinnar í Gróttu í síðustu umferð og má vona þeirra vegna að betri taktur sé kominn í leik þeirra fyrir vikið. Það mun hins vegar allt koma í ljós síðar í dag hvort svo er eða ekki.

Hagstæð úrslit gætu lyft Húsvíkingum af botninum
Eftir brösótta byrjun á stigasöfnun í upphafi móts sótti lið Völsungs sinn fyrsta sigur á tímabilinu síðastu umferð. Stjörnum prýtt lið Njarðvíkur mætti til Húsavíkur og þurfti að gera sér að góðu að yfirgefa völlinn án stiga eftir 2-1 sigur Völsungs. Gamla brýnið í framlínu Völsungs Elfar Árni Aðalsteinsson reyndist þar hetja heimamenna en hann gerði sigurmark liðsins á 88. mínútu leiksins
Lið Völsungs situr fyrir leiki dagsins í Lengjudeildinni í 12. og síðasta sæti deildarinnar með 5 stig að loknum 9 leikjum. Næstu lið fyrir ofan Ægir og Grindavík eru þar fyrir ofan með 7 stig og gæti því sigur Völsungs og hagstæð úrslit úr leikjum Ægis og Grindavíkur lyft Húsvíkingum uppfyrir bæði lið í 10 sætið.

Heil og sæl kæru lesendur og verið hjartanlega velkomin í þessa beinu textalýsingu Fótbolta.net frá leik ÍR og Völsungs í Lengjudeild karla.
Flautað verður til leiks á Þarfaþingsvellinum klukkan 16:00
Húsvíkingar í heimsókn í 109
Heil og sæl kæru lesendur og verið hjartanlega velkomin í þessa beinu textalýsingu Fótbolta.net frá leik ÍR og Völsungs í Lengjudeild karla.
Flautað verður til leiks á Þarfaþingsvellinum klukkan 16:00

Rosalegum leik lokið í Breiðholtinu. Kaflaskiptur vissulega en heilt yfir sennilega sanngjörn úrslit.