Fotbolti.net
Besta deildin
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson
Besta kvenna
N1-völlurinn Hlíðarenda
Valur
Valur
1 - 0
Víkingur R.
Víkingur R.
Emma Hawkins 5'1 - 0
Dómari: Guðmundur Páll Friðbertsson
Leik lokið!
Úfff, þetta var ekki skemmtilegasti leikurinn að horfa á. Valur tekur þrjú stigin og Víkingur og engin. Valur er kominn í 9. sætið en Víkingur í 10. sæti og þá botninn. Skýrsla og viðtöl á leiðinni.
92. mín
Valur fer bara í fánan og ætlar að halda boltanum þarna.
90. mín
+3 í uppbótar.
88. mín
Sláin
Valur í sókn, Ragnheiður með boltann, er fyrir utan teig Víkings. Ragnheiður lætur vaða, beint í slána og út.
86. mín
Hár bolti inn í teig Vals, Málfríður er í algjöru brasi og nær ekki að sparka boltanum burt. En nær svo á endanum.
Víkingur R.
83. mín
InnBirgitta Rún Yngvadóttir
ÚtJóhanna Elín Halldórsdóttir
83. mín
Horn fyrir Víkinga, Bergdís tekur. Varis kemur út og lemur boltanum burt.
82. mín
Ísabella með skot við D bogann, rétt framhjá markinu.
Valur
79. mín
InnSóley Edda Ingadóttir
ÚtHelga Rut Einarsdóttir
78. mín
Sóley Edda er búin að bíða eftir því að fá að komast inn á í svona 3 mínútur, Valur að bíða eftir skiptingu.
Valur
77. mín
Gult spjald

Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir

76. mín
Pirringur
Fyrirgjöf inn í teig Vals, Rhode reynir við boltann en nær ekki að skjóta. Málfríður stoppar hana og Rhode ræður eitthvað við hana Málfríði, er eitthvað ósátt við hana. Rhode er pirruð og ýtir Málfríði frá sér.
74. mín
Hawkins með fyrirgjöf inn í teiginn, en Telma grípur boltann.
72. mín
Hætta
Hættuleg aukaspyrna í D boganum fyrir Víking. Bergdís tekur spyrnuna, yfir 5 manna vegg Vals. Skotið fór rétt yfir slána.
Valur
71. mín
Gult spjald

Málfríður Anna Eiríksdóttir

68. mín
Ragnheiður ætlar að senda Nadíu í gegn en sendingin var ekki nægilega föst.
Valur
68. mín
InnNadía Atladóttir
ÚtArnfríður Auður Arnarsdóttir
67. mín
Þórdís Hrönn með fyrirgjöf inn í teig Vals, en sendingin var alltof föst.
67. mín
Bergdís tekur horn fyrir Víkinga. Valskonur eru í brasi með því að koma boltanum burt og láta hann skoppa þangað til að þær senda beint á Emmu sem er í teignum en hún missir svo boltann frá sér.
64. mín
Emma sendir Rhode í gegn en sendingin var aðeins of föst.
63. mín
Kimberley reynir að komast framhjá Helenu en missir boltann út fyrir markspyrnu.
62. mín
Aukaspyrna fyrir Val, hár bolti inn í teig beint á Málfríði sem skallar framhjá.
Víkingur R.
61. mín
InnSelma Dögg Björgvinsdóttir
ÚtDagný Rún Pétursdóttir
Víkingur R.
61. mín
InnHelena Ósk Hálfdánardóttir
ÚtArna Ísold Stefánsdóttir
60. mín
Arna Ísold lætur vaða fyrir utan teig en Varis ver.
59. mín
Dagný á hægri kantinum, kemur með sendingu inn í teig en Málfríður er á undan Rhode í boltann og kemur honum burt.
57. mín
Hættaaa
Víkingar missa boltann beint á Ragnheiði, hún er við D bogann og lætur vaða beint á Telmu. Telma missir boltann en er fljót að ná honum aftur.
54. mín
Arnfríður er við D bogann og fær skot tækifæri, lætur vaða en beint í bakið á Emmu.
54. mín
Hawkins kemst inn í teig og tekur skotið en þetta var æfingabolti fyrir Telmu.
53. mín
Dagný með fyrirgjöf inn í teig, boltinn fer beint á Örnu en hún missir boltann frá sér.
52. mín
Léleg sending frá Kimberley sem Bergdís tekur, Bergdís sendir á Rhode en Málfríður tæklar boltann af henni.
50. mín
Lélegur bolti til baka frá Áslaugu á Telmu en Telma er fljót til baka og sparkar boltanum burt.
49. mín
Bolti inn í teig frá Ísabellu en Ragnheiður missir af sendingunni og kemst ekki í boltann.
48. mín
Ísabella með bolta inn í teig Víkinga en Emma kemur boltanum burt.
47. mín
Hár bolti á Dagnýju sem er við D bogann, en hún missir boltann frá sér.
46. mín
Ragnheiður með fyrirgjöf inn í teig Víkinga en Telma grípur boltann.
Víkingur R.
46. mín
InnÞórdís Hrönn Sigfúsdóttir
ÚtKristín Erla Ó Johnson
Víkingur R.
46. mín
InnThea Rhode
ÚtÞórhildur Þórhallsdóttir
46. mín
Seinni hálfleikur
45. mín
Hálfleikur
Ekki skemmtilegasti fyrri hálfleikurinn, Valskonur eru búnar að vera betri en gestirnir hafa ógnað eitthvað. Sjáumst eftir korter.
45. mín
Jóhanna Elín með háa fyrirgjöf inn í teig, Varis slær boltann í stað þess að grípa hann og er í smá vandræðum. Valskonur ná samt að sparka boltanum burt.
42. mín
Bergdís með sendingu inn í teig Vals á Bergþóru en Málfríður kemst í boltann fyrst og kemur honum burt.
39. mín
Hætta á ferð
Dagný fær boltann í teignum, tekur skotið sem fer beint í varnarmann. Fær svo boltann aftur, kemur með fyrirgjöf sem fer beint á Varis.
38. mín
Víkingur að komast í góða sókn en Bergþóra og Emma eru ekki að tala saman og Bergþóra sendir út, í innkast fyrir Val.
33. mín
Bergþóra tekur skot fyrir utan teiginn, skotið fór framhjá stönginn.
32. mín
Bergdís með flottan bolta inn í teig Vals en Lillý Rut skallar burt.
30. mín
Víkingur er að komast meira inn í leikinn núna, þær eru að halda boltanum vel en Valskonur eru að verjast vel og það er ekki mikið svæði fyrir Víking til þess að komast áfram upp völlinn.
29. mín
Annað horn fyrir Víking, Valskonur skalla boltann burt.
28. mín
Nálægt
Bergdís tekur hornið og Hawkins er ekki langt frá því að skalla í sitt eigið net.
28. mín
Arna Ísold á vinstri kantinum, með nógu mikið svæði. Sendir inn í teig en endar að fá horn.
27. mín
Maður hefur nú séð skemmtilegri leik. Valskonur eru líklegri til þess að skora en þær eru mjög rólegar, Víkingar eru að reyna að komast meira í sókn en missa alltaf boltann klaufalega og komast ekkert áfram.
22. mín
Ísabella er tekin niður rétt fyrir framan þjálfarana og fjórða og fær brot, Einar Guðna er ekki sáttur með þetta brot og ræðir við fjórða.
20. mín
Hætta
Ísabella með fyrirgjöf inn í teiginn en Áslaug nær að koma boltanum burt, Valskonur eru nálægt því að bæta öðru við. Heimakonur eru töluvert líklegri til þess að skora.
18. mín
Emma Hawkins með sendingu inn í teig en það er enginn til þess að pota boltanum inn og Telma pikkar boltann upp.
16. mín
Varis í vandræðum
Annað horn fyrir Víkinga, Varis ætlar að lemja boltann burt en það gengur illa og boltinn dettur á Kristíni Erlu sem er með opið markið en hún skallar beint á Varis sem grípur boltann.
16. mín
Horn fyrir Víkinga. Bergdís tekur hornið en Valur nær að skalla boltanum burt. En Víkingur fær annað horn.
14. mín
Þórhildur með fyrirgjöf inn í teig sem Varis grípur, æfingabolti.
12. mín
Hættulegur hár bolti hjá Val en Telma sparkar boltanum burt.
11. mín
Arna Ísold brýtur af sér, hún rífur í Ragnheiði sem vildi fara í skyndisókn.
10. mín
Valur er að gera meira en Víkingur, gestirnir hafa ekki vaknað.
Valur
5. mín
MAAAARK!

Emma Hawkins (stoðsending: Arnfríður Auður Arnarsdóttir)

Innkast fyrir Val sem fer beint á Hawkins en sendingin hennar fer beint á Tuomala. Tuomala fær boltann og snýr sér svo í áttina að markinu sínu, rennur og Arnfríður tekur boltann af henni. Sendir svo á Hawkins sem er þá komin í 1v1 stöðu gegn Telmu. Hawkins skýtur svo í fjær hornið.

Fyrsti leikurinn hjá Tuomala byrjar ekki vel.
3. mín
Fyrsta skot Vals
Arnfríður er á hægri kantinum og sendir á Ragnheiði á vinstri kantinum sem er með gott færi til þess að skjóta, skotið fer í varnarmann. Fær svo boltann aftur en hún missir hann frá sér.
2. mín
Hætta
Bergþóra keyrir upp hægri kantinn, sendir fram fyrir markið en það er enginn til þess að pota boltanum inn og boltinn fer framhjá öllum.
2. mín
Minnum á það að þetta er gríðarlega mikilvægur leikur því að Valur er í 10. sæti og Víkingur í 9. sæti, mikilvægt fyrir bæði lið að enda leikinn með 3 stig.
1. mín
Leikur hafinn
Gestirnir byrja þessa veislu.
Fyrir leik
Spáin
Landsliðskonan María Catharina Gros Ólafsdóttir spáir.

,,Víkingur tekur botnbaráttuna 0-1."

Fyrir leik
Ipswich stuðningsmaður í stúkunni!
Það er greinilega kominn grjótharður Ipswich stuðningsmaður í stúkuna. Hann er búin að festa Ipswich fána við handriðið fyrir framan fréttamannastúkuna. Svo er hann í rauðum Ipswich treyju líklega away og einni blárri treyju undir, líklega home.
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru mætt
Vera Varis byrjar annan leikinn sinn í röð vegna meiðsla hjá Tinnu. Emma Hawkins byrjar annan leikinn sinn fyrir Val

Saana Emilia Tuomala byrjar fyrsta leikinn sinn fyrir Víking, Telma Ívars byrjar annan leikinn sinn. Thea Rhode sem er nýkominn til liðsins er á bekknum.
Fyrir leik
Þriðja liðið
Guðmundur Páll Friðbertsson er með flautuna, Tijana Krstic og Ásgeir Sigurðsson eru með flöggin. Kári Mímisson er með skiltið.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Liðsstyrkur í Fossvoginn
Miðjumaðurinn Saana Emilia Tuomala er gengin í raðir Víkings frá Åland United í heimalandinu. Hún getur bæði spilað sem miðjumaður og miðvörður. Saana Tuomala er með leikheimild og má spila í kvöld. Víkingur hefur líka náð í Telmu Ívarsdóttur frá Rangers en hún er þegar byrjuð að spila fyrir Víking.

Víkingur hefur líka náð í frammherjan Thea Rhode frá FC Kaupmannahöfn í Danmörku. Rhode er framherji sem er fædd 2003. Hún hefur einnig verið hjá AaB, AGF, Fortuna Hjörring og B93.






Valur er ekki búin að vera eins aktívir á leikmannamarkaðinum, Valur hefur náð í einn leikmann, hana Emmu Hawkins. Hún hefur þegar byrjað einn leik fyrir Val. Það var í síðasta leik gegn Fram, þegar þær töpuðu 4-1.

Mynd: Valur

Fyrir leik
Óvæntur botnslagur?
Bæði liðin í dag eru í fallsæti, Valur er í 10. sæti og Víkingur er í 9. sæti. Síðasta sumar lenti Valur í 5. sæti og Víkingur í 6. sæti.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Valur hefur ekki unnið leik síðan 25. maí og var það gegn Víking á útivelli, leikurinn fór 0-1, Nadía Atladóttir fyrrum fyrirliði Víkings skoraði eina mark leiksins.

Víkingur hefur ekki unnið leik síðan 30. maí. Það var á útivelli gegn Þór/KA og fór leikurinn 4-6. Freyja Stefánsdóttir skoraði tvennu í þeim leik en núna spilar hún fyrir Djurgarden í Svíþjóð,


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Sú besta heilsar!
Heil og sæl kæru lesendur, það er komið að leik Vals og Víkings í 15. umferð Bestu Deild kvenna. Leikurinn er spilaður á Hlíðarenda og byrjar kl: 19:15.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.