Fotbolti.net
Besta deildin
Sigurður Bibbi
Besta kvenna
VÍS völlurinn
Nöpur norðangola og rigning á köflum. Mætti halda að maður væri í Reykjavík.
Þór/KA
Þór/KA
2 - 0
Fram
Fram
Karen Hulda Hrafnsdóttir 53'1 - 0Erin Flurey 84'2 - 0
Dómari: Sveinn Arnarsson

SKÝRSLAN: Bragðdaufur leikur en samt tvö mörk

Hvað réði úrslitum?

Þór/KA sýndi meiri áræðni inni í teig gestanna og voru grimmari þar.

Bestu leikmenn

1. Arna Sif og Hildur Anna

Arna Sif lagði upp fyrra markið og stjórnaði vörninni af harðfylgi. Hildur Anna var ógnandi allan leikinn og Framstelpum óþægur ljár í þúfu

2. Karen Hulda og Erin Florey

Markaskorarnir verða að komast á blað enda gerður þær gæfumuninn. Báðar auk þess duglegar í leiknum og unnu vel fyrir liðið.

Atvikið

Þegar Arna Sif vann einvígið við Ashley og úr var fyrra markið. Þarna hefðu margir dómarar dæmt aukaspyrnu bara vegna þess að markmaðurinn tapaði boltanum og missti jafnvægið. Mér sýndist hins vegar ekkert brot vera og dómarinn lét leikinn halda áfram. Vel dæmt (eða ekki dæmt). Upp úr þessu skorar Karen Hulda.

Hvað þýða úrslitin?

Úrslitin þýða að Þór/KA þoka sér nær efri hlutanum og frá botnliðunum.

Vondur dagur

Ashley markmaður Framara var góð í dag greip oft vel inn í en hún verður samt að taka þessari nafnbót þar sem hún tapar návígi við Örnu Sif í loftinu. Það skiptu sköpum í leiknum að fá fyrsta markið enda var ekkert í spilunum að fleiri mörk yrðu skoruð.

Dómarinn - 8

Lét leikinn halda vel áfram. Nýtti hagnaðarregluna mjög vel fyrir bæði lið. Lét ekki plata sig í að dæma á smá stympingar sem voru ekki neitt neitt.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.