Fotbolti.net
Hafþór Örn Laursen
Hafþór Örn Laursen
Lengjudeild karla
Malbikstöðin að Varmá
Afturelding
Afturelding
4 - 1
Grindavík
Grindavík
Bart Kooistra 6'1 - 0Óðinn Bjarkason 9'2 - 0Elmar Kári Enesson Cogic 16'3 - 0Axel Óskar Andrésson 32'4 - 04 - 154' Rúnar Ingi Eysteinsson
Dómari: Max Persson
Leik lokið!
Shitttttt næstum því inn! Frábært spil hjá Kidda og Enes, Kiddi nálægt því að skora og leikmaður Aftureldingar tæklar boltann í Hjörvar! En hér er leik lokið! Takk fyrir mig, viðtöl og skýrsla koma inn á eftir!
91. mín
Þrjár mínútur í uppbótartíma
Afturelding
88. mín
InnRóbert Agnar Daðason
ÚtJoacim Emil Godhei Holtan
Grindavík
84. mín
InnLárus Orri Ólafsson
ÚtRúnar Ingi Eysteinsson
Grindavík
84. mín
InnFriðrik Franz Guðmundsson
ÚtSindri Þór Guðmundsson
82. mín
Horn fyrir gestina
Slök spyrna sem er hreinsuð burt
Afturelding
77. mín
InnKristinn Freyr Sigurðsson
ÚtÓðinn Bjarkason
Kristinn Freyr kemur inná í sínum fyrsta leik fyrir Aftureldingu í dag, og í fyrsta sinn leik yfir höfuð síðan Valur keppti við Breiðablik í september í fyrra!
Afturelding
77. mín
InnTrausti Þráinsson
ÚtSævar Atli Hugason
Afturelding
77. mín
InnEnes Þór Enesson Cogic
ÚtBart Kooistra
72. mín
Grindavík á aukaspyrnu á ógnandi stað
Ekki nægilega vel nýtt. Boltinn beint á leikmann Grindavíkur sem skallar beint á Aftureldingarmann
Grindavík
71. mín
InnMikael Máni Þorfinnsson
ÚtHaraldur Björgvin Eysteinsson
66. mín
Úffff, sé ekki hverjir þetta eru, en boltinn fer inn í teig, og einhver Grindvíkingur reynir hælinn í loftið en fer beint í andlitið á varnarmanni. Hann þarf á aðhlynningu að halda og leikurinn stöðvaður
63. mín
Grindavík með aukaspyrnu, Sindri Þór með góðan bolta og þeir skalla hann að markinu en Arnar grípur þetta eins og hann hafi aldrei gert neitt annað
59. mín
Stefán Jón næstum búinn að bæta öðru við fyrir Grindavík! Fær boltann inn í teig en Arnar ver þennan hraustlega!
55. mín
Horn fyrir heimamenn
Flott spyrna en þeir ná ekki móttökunni og boltinn fer útaf
Grindavík
54. mín
Þeir klóra í bakkann!

Rúnar Ingi Eysteinsson (stoðsending: Gunnleifur Orri Gunnleifsson)

Damir brýtur á leikmanni Aftureldingar en Svíin dæmir ekki. Haraldur fær boltann á hægri vængnum og hleypur hann upp, nær fyrirgjöf inn í teig á Gunnleif sem sendir hann á Rúnar sem tekur hann í fyrsta, boltinn fer síðan af varnarmanni og inn!
48. mín
Óðinn Bjarka á vinstri væng, nær fyrirgjöf inn í teig, enginn er mættur þarna, en Bart nær lausum bolta og þrumar honum útaf
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
Grindavík
46. mín
InnAron Skúli Brynjarsson
ÚtIngi Þór Sigurðsson
Grindavík
46. mín
InnArnar Breki Gunnarsson
ÚtHeiðar Snær Ragnarsson
Afturelding
46. mín
InnHaukur Örn Brink
ÚtElmar Kári Enesson Cogic
45. mín
Hálfleikur
+2
Þvílíkur fyrri hálfleikur að baki! Tökum okkur korter og kaffibolla!
45. mín
+1
Birkir gerir vel, nær flottri sendingu á Bart sem sendir hann á Holtan en Hjörvar Daði gerir frábærlega í marki Grindavíkur og ver í horn
45. mín
+1
Dómarinn bætir einni mínútu við
42. mín
Lítið gerst seinustu fimm mínúturnar, Afturelding meira með boltann
37. mín
Sindri Þór með smá slakt skot, Arnar ver þetta út í horn.

Flottur bolti inn í teig, en gestirnir skalla þessu út
Afturelding
32. mín
Hvað er að frétta???

Axel Óskar Andrésson (stoðsending: Birkir Már Sævarsson)

Hornspyrnan var alls ekki sú besta, en Birkir Már nær lausum bolta og þrusar honum inn í teig frá hægri vængnum, þar stekkur Axel manna hæst og boltinn fer af stönginni og af varnarmanni!
32. mín
Horn fyrir heimamenn
Aron nær góðum bolta á Bart sýndist mér, en hann nær skoti sem far af varnarmanni og út í horn
29. mín
Þarna gátu Grindvíkingar skapað eitthvað! Þeir ná boltanum í teiginn á Rúnar Inga en hann missir hann frá sér!
25. mín
Horn fyrir Grindavík
Ingi nær flottum bolta í gegnum tvo á Rúnar sem tekur hann í fyrsta á broðir sinn hann Harald. Haraldur reynir svo fyrirfjöfina á brósa sem skallar hann útaf og dæmd hornspyrna. Þeir ná hinsvegar ekki að nýta sér þetta horn
Grindavík
22. mín
Gult spjald

Sindri Þór Guðmundsson

Ekki falleg tækling þarna á ferð sem Sindri nær á Elmar
Afturelding
16. mín
Þeir leika lausum hala!

Elmar Kári Enesson Cogic (stoðsending: Aron Elí Sævarsson)

Aron Elí fær flottan bolta vinstra megin og nær frábærri fyrirgjöf á Elmar sem tekur hann í fyrsta inn! Þetta lýtur ekki út fyrir að vera góður dagur á skrifstofunni hjá Ray!
13. mín
Þriðja horn Aftureldingu! Ekki aftur, er það nokkuð?
Ekki í þetta sinn! Grindvíkingar ná að hreinsa þennan í burtu!
Afturelding
9. mín
Jújú! Þeir náðu því!!

Óðinn Bjarkason

Boltinn endar á einhverjum sem ég sá ekki hver var, en Óðinn nær lokasnertingunni!
9. mín
Annað horn fyrir Aftureldingu - ætli þeir nái öðru?
Afturelding
6. mín
Þeir voru ekki lengi að þessu!

Bart Kooistra (stoðsending: Aron Elí Sævarsson)

Hornið fer beint á kollinn hans Arons Elís sem skallar hann á Bart sem tekur hann í fyrsta sýndist mér!
6. mín
Fyrsta horn leiksins fyrir Aftureldingu
4. mín
Grindvíkingar aðeins líklegir. Ingi Þór hleypur vinstri kantinn og kemst framhjá Birki Má. Fyrirgjöfin fer á kollinn hans Rúnars Inga en hann hittir hann ekki alemennilega. Sýnist boltinn enda að lokum á Stefán Jón sem skýtur boltanum beint að Arnari Daða
1. mín
Leikur hafinn
Og það eru heimamenn sem sparka þessu af stað! Góða skemmtun!
Fyrir leik
Bjartur Bjarmi heiðraður
Liðin eru að labba út á völl en fyrst og fremst verður heiðrað hann Bjart Bjarma Barkasson, en hann er búinn að spila 100 leiki fyrir Aftureldingu. Til hamingju Bjartur!
Fyrir leik
Spá fyrir umferðina!
Ágúst Hlyns, leikmaður Þórs, spáði í spilin fyrir komandi umferð, en þetta hafði hann að segja um leikinn

Afturelding 3 - 0 Grindavík (19:15 á morgun)
Afturelding vinnur þennan leik nokkuð auðveldlega eftir tap í síðasta leik mæta vel gíraðir og Birkir Már skorar eitt, síðan skorar Elmar Cogic 2 góð mörk.

Fyrir leik
Byrjunarliðsfréttir
Maggi gerir eina breytingu á sínu byrjunarliði, en inn kemur Gunnar Bergmann Sigmarsson! Frábært að sjá að Kristinn Freyr er á bekknum hjá Aftureldingu líka!

Ray gerir líka eina breytingu á sínu Grindavíkurliði! Inn kemur nýliðinn Ibra Camara!
Fyrir leik
Sænska þriðja liðið!
Dómari leiksins er sænskur að mér sýnist og heitir Max Persson! Honum til aðstoðar eru Guðmundur Ingi Bjarnason og annar Svíi að nafni Sam Seno!

Þessir dómarar dæma í Superettan og meðal annars Damallsvenskan í Svíþjóð. Ekki veit ég af hverju þeir eru að dæma íslenskan fótboltaleik, en það verður spennandi að sjá hvernig það fer!

Fyrir leik
Grindavík
Mynd: Grindavík

Seinasti leikur Grindavíkur var 1-0 sigur á Stakkavíkurvellinum gegn Leiknismönnum, en mark Grindavíkur skoraði Rúnar Ingi Eysteinsson, en hann er kominn núna með 4 mörk í deildinni og er markakóngur Grindavíkur þetta árið eins og er.

Grindavík situr í 9. sæti með 17 stig, en þeir hafa sigrað tvo af seinustu fimm leikjum sínum, tapað tveimur, og gert eitt jafntefli.

Einnig nældu þeir sér í þrjá leikmenn í lok félagsskiptagluggans, þá Aron Skúla Brynjarsson úr Leikni, Arnar Breka Gunnarsson frá ÍBV, en hann hefur spilað 15 leiki í Bestu deildinni í sumar. Einnig nældu þeir líka í Ibrahima Camara, fyrrverandi leikmanns Njarðvíkur frá 2023-24.
Fyrir leik
Afturelding
Seinasti leikur Aftureldingar var á AVIS-vellinum, en þar tók Þróttur heldur betur á móti þeim með 4-1 sigri! Eina mark Aftureldingar var skorað af Trausta Þráinssyni, en hann hefur fengið takmarkaðar mínútur í sumar.

Afturelding situr í 3. sæti með 31 stig, aðeins tveimur eftir Fylki og Þrótti sem sitja í 2. og 3. sæti. Afturelding hefur sigrað fjóra af sínum seinustu fimm leikjum í deildinni og vilja auðvitað halda þeirri göngu áfram þrátt fyrir þennan tapleik í Laugardalnum.

Markakóngurinn þeirra hefur verið Óðinn Bjarkason og spurning hvort hann reimi á sig skotskónna í kvöld!

Afturelding fékk Kristin Frey Sigurðsson frá Val í félagsskiptaglugganum, en hann hefur ekki spilað á tímabilinu vegna erfiðra meiðsla

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Lengjudeildin heilsar
Gott kvöld kæru lesendur og verið hjartanlega velkomin á Malbikstöðina að Varmá í Mosó, en hér tekur Afturelding á móti Grindavík í 17. umferð Lengjudeildarinnar!
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

föstudagur 7. ágúst
19:15 Afturelding-Grindavík (Malbikstöðin að Varmá)
19:15 Leiknir R.-Fylkir (Leiknisvöllur)
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.