SKÝRSLAN: Öruggur sigur Efri Breiðhyltinga
Hvað réði úrslitum?
Það sem réði úrslitum í kvöld var baráttan og ákefðin í Leiknismönnum frá fyrstu mínútu til þeirrar síðustu. Þeir voru fastir fyrir og nýttu sínar sóknir frábærlega. Fylkismenn voru heillum horfnir nánast allan leikinn og nýttu ekki tækifærin þegar þau gáfust.
Bestu leikmenn
1. Birnir Breki Burknason
Birnir Breki var frábær í kvöld. Hann skoraði fyrsta mark Leiknis og var að skapa mikinn usla allan leikinn.
2. Bogdan Bogdanovic
Bogdan skilaði inn góðu dagsverki í kvöld. Hann var með Kára Sigfússon í vasanum og var öruggur í öllum sínum aðgerðum.
Atvikið
Maður verður að minnast á Kára Stein Hlífarsson. Hann skoraði frábært mark eftir einstaklingsframtak sem kom Leikni í 2-0. Það var eins og Fylkismenn misstu alla trú eftir það og sáu ekki til sólar.
Hvað þýða úrslitin?
Leiknismenn snúa við blaðinu eftir brösótt gengi upp á síðkastið. Þrjú stig í súginn fyrir Árbæinga sem gæti reynst dýrkeypt þegar upp er staðið.
Vondur dagur
Sóknin hjá Fylki var langt frá sínu besta. Fremstu þrír komust engan veginn inn í leikinn. Ég ætla samt ekki að taka neitt af öftustu fjórum hjá Leikni þar sem þeir áttu allir frábæran leik.
Dómarinn - 7
Sá danski var fínn í kvöld. Engin stór mistök hjá teyminu.


