Fotbolti.net
Snæbjört Pálsdóttir
Evrópuforkeppni kvenna
Aktobe Ortalyk Stadion
Breiðablik
Breiðablik
3 - 2
Dinamo-BSUPC
Dinamo-BSUPC
0 - 114' Anna Pilipenko16' Hanna SiniauskayaKaritas Tómasdóttir 53'1 - 11 - 262' Anna PilipenkoAgla María Albertsdóttir 90'2 - 2Agla María Albertsdóttir 102'3 - 2
Dómari: Karoline Marie Jensen

SKÝRSLAN: Evrópudraumur lifir - Ofurvaramenn, flautumark, dramatík og nýir framherjar?

Hvað réði úrslitum?

Seiglan í Blikaliðinu skilaði þessum sigri í hús! Bara VÁ! Annar leikurinn í röð sem er spilaðu í miklum hita og fer líka í framlengingu. Þunnskipaður bekkur og lítil breidd. Agla María fékk hvíld í fyrri hálfleik og kom svo tvíefld inn á og átti þátt í öllum mörkum liðsins, klókt að eiga hana inni en mögulega væri ég að skrifa eitthvað annað ef það hefði ekki tekist.

Bestu leikmenn

1. Agla María Albertsdóttir

Kom inn með mikinn kraft og átti þátt í öllum mörkunum, átti stoðsendinguna á Karitas í fyrsta markinu, skoraði jöfnunarmarkið á síðustu sekúndu uppbótartíma og gerði svo útum leikinn þegar hún fékk frábæra fyrirgjöf frá Karitas og þrumaði boltanum inn! Tryggði Blikana í áframhaldandi Evrópuævintýri en þær verða í pottinum þegar dregið verður í Evrópubikarinn

2. Þórdís Elva Ágústsdóttir

Var öflug í liði Breiðabliks, henni líður greinilega vel í grænu treyjunni og var ein af þeim sem dróg vagninn allar 120 mínúturnar! Karitas, Ása og Kristín Dís eiga líka skilið mention. Kristín fékk margar stöður til að leysa úr út um allan völl.

Atvikið

Það eru nokkur góð atvik hérna! Koma tvisvar til baka og jafna, seinna markið á lokasekúndu uppbótartíma og tryggði Blikum framlengingu! Markið frá Öglu Maríu líka sem tryggði sigurinn er klárlega stórt atvik. Ég verð hins vegar að nefna það sem atvikið að atvinnumarkmaðurinn Taylor Kane kemur inn sem útileikmaður þar sem breiddin á bekknum er það lítil! Þetta er eitthvað sem er ótrúlegt að hafi gerst hjá Breiðablik! Og kannski sér kafli útaf fyrir sig hvernig stendur á því að Blikarnir mæta með 16 manna hóp í tvo mikilvæga Evrópuleiki?

Hvað þýða úrslitin?

Úrslitin þýða það einfaldlega að Evrópu ævintýri Breiðabliks heldur áfram og þær verða í pottinum þegar dregið verður í Evrópubikarnum.

Vondur dagur

Klárlega vondur dagur hjá Hanna Siniauskaya sem reif í hárið á Edith á 16. mínútu og uppskar fyrir það rautt spjald. Gerði það að verkum að hún skildi liðið sitt eftir í skít og þær þurftu að spila leikinn einum færri í 104 mínútur!

Aftasta lína Breiðabliks var þá einnig í miklu basli og veseni oft á tíðum, ítrekuð mistök, lélegar sendingar, hik og samskiptaleysi og þær eiginlega bara gáfu Pilipenko mörkin á silfurfati.

Dómarinn - 8

Vel dæmt hjá norska dómaranum Karoline Marie Jensen og hennar teymi. Hárréttar ákvarðanir, sérstaklega varðandi rauða spjaldið, hafði góð tök á leiknum en leyfði honum að fljóta vel.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.