Fotbolti.net
Guðmundur Jónasson
Lengjudeild karla
Stakkavíkurvöllur
Grindavík
Grindavík
0 - 0
Grótta
Grótta
Dómari: Stefán Ragnar Guðlaugsson
Fyrir leik
Byrjunarliðin
Grindavík
Grindavík gera 3 breytingar á sínu liði frá sigur leiknum gegn Þrótti R. Gunnleifur Gunnleifsson fær sér sæti á bekknum á meðan Stefán Jón Friðriksson og Haraldur Björgvin Eysteinsson eru í leikbanni vegna uppsafnaða gulra spjalda.
Inn í liðið fyrir þá koma Ingi Þór Sigurðsson, Heiðar Snær Ragnarsson og Mikael Máni Þorfinsson.

Grótta
Grótta gera einnig 3 breytingar á sínu liði frá 1-4 tapinu gegn Njarðvík í síðustu umferð út fara Björgvin Brimi Andrésson, Kristófer Dan Þórðarsson og Nökkvi Már Nökkvasson. Inn fyrir þá koma Hrannar Ingi Magnússon, Viktor Orri Guðmundsson og Emil Skúli Einarsson.

Mynd: Grótta


Fyrir leik
Grótta
Grótta tapaði síðasta leik gegn Njarðvík 1-4 eina mark þeirra skoraði Robert McLagan.

Grótta situr í 6.sæti með 26 stig, 5 stigum frá umspilssæti en þeir eiga leik til góða á önnur lið í kringum sig.

Grótta hafa verið að spila mjög vel undir stjórn Rúnars Páls sem er í banni í dag eftir að hafa fengið 2 gul spjöld og þar með rautt gegn Njarðvíkingum.

Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson

Fyrir leik
Grindavík
Grindavík unnu sterkan 2-1 sigur á Þrótti Reykjavík í síðustu umferð með mörkum frá Arnari Breka og Heiðari Snæ.

Grindavík sitja í 9.sæti með 20 stig eftir 18 umferðir.

Grindavík hafa aðeins unnið 4 leiki á tímabilinu. Þeir unnu 3 leiki á heimavelli og eini leikurinn sem þeir hafa unnið úti kom einmitt á móti Gróttu!

Mynd: Grindavík

Fyrir leik
Dómarar
Aðaldómari í dag er Stefán Ragnar Guðlaugsson og honum til aðstoðar eru Guðni Freyr Ingvason og Tryggvi Elías Hermannson.

Eftirlitsdómari er Oddur Helgi Guðmundsson.


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Verið velkomin!
Góðan dag og verið velkomin í þessa beinu textalýsingu á leik Grindavíkur og Gróttu á Stakkavíkurvelli.

Mynd: Alexander Tonini

mánudagur 17. ágúst
18:00 Völsungur-Vestri (GPG völlurinn)
18:00 Leiknir R.-Ægir (Leiknisvöllur)
18:00 ÍR-Njarðvík (Þarfaþingsvöllurinn)
18:00 Grindavík-Grótta (Stakkavíkurvöllur)
19:15 Þróttur R.-Fylkir (AVIS völlurinn)
19:15 Afturelding-HK (Malbikstöðin að Varmá)
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.