Leik lokið!
Þórsarar vinna 0-1 á útivelli!
Þór sækir gríðarlega mikilvæg þrjú stig til Eyja í miklum baráttuleik!
96. mín
Vicente með slaka spyrnu sem ekkert verður úr.
96. mín
Eyjamenn fá hornspyrnu, kannski lokaséns á að jafna leikinn fyrir þá!
94. mín
Boltinn barst svo á Vicente fyrir utan teiginn og hann tekur skotið á vítateigslínunni en það er fram hjá markinu.
93. mín
Vicente með bolta inn á teiginn en Gyrðir hreinsar!
92. mín
Gult spjald
Christian Jakobsen
90. mín
+6 í uppbótartíma!
90. mín
SLÁIN!
Vicente aftur með spyrnuna og á Alex Freyr sem skallar boltann ofan á slánna!
90. mín
Vicente með spyrnuna sem Aron Birkir slær aftur fyrir og ÍBV fær annað horn hinum megin.
89. mín
ÍBV fær hornspyrnu.
88. mín
ÍBV Í FÆRI!!!
Aron Lucas með mjög góðan bolta frá vinstri vængnum á fjærstöngina og Sesar gerir vel og nær skallnum. Aron Birki ver hins vegar frábærlega frá honum!!
87. mín
Gult spjald
Kevin Vazquez Comesaña
84. mín
Vicente með spyrnuna en setur boltann í veginn. Boltinn barst svo til Alex fyrir utan teig og hann lyftir boltanum inn á teiginn þar sem Sigurður Arnar nær skallnum en beint á Aron Birki.
83. mín
Gult spjald
Atli Sigurjónsson
Fyrir tuð.83. mín
ÍBV fær aukaspyrnu á hættulegum stað rétt fyrir utan teiginn.
Rautt spjald
Bjarni Guðjón Brynjólfsson
Virkilega léleg snerting hjá Bjarna og Sesar les það. Sesar hleypur í átt að honum og tekur boltann og Bjarni fer alltof seint í hann.ÍBV fær aukaspyrnu á hættulegum stað rétt fyrir utan teiginn.
82. mín
Vicente með hættulegan bolta inn á teiginn og tomic er fyrstur á boltann en skallinn frá honum slakur .
80. mín
InnSverrir Páll Ingason
ÚtVilhelm Ottó Biering Ottósson
Vilhelm orðinn vel tæpur á gulu spjaldi.
80. mín
Eyjamenn liggja svolítið á Þórsurum núna.
79. mín
STÖNGIN!!!
Arnór Ingi tók aukaspyrnu fyrir ÍBV inn á teiginn. Sigurður Arnar nær að skalla boltann fyrir markið á Aron Lucas sem tekur skotið í fyrsta og hann smellur í utanverðri stönginni!!
75. mín
Gult spjald
Vilhelm Ottó Biering Ottósson
Fyrir að hanga í Omar Sowe.75. mín
Frábær spettur hjá Omar sem kemur svo með hættulegan bolta fyrir markið en Sesar bara nær ekki til hans.
75. mín
Leikurinn farinn af stað aftur.
74. mín
InnFelix Örn Friðriksson
ÚtEiður Atli Rúnarsson
73. mín
Leikmaður Þórs liggur eftir og leikurinn er stop, sé ekki hver það er.
73. mín
Hættuleg fyirgjöf inn á teig ÍBV frá Einari Frey en Sigurður Arnar nær að koma boltanum í burtu.
72. mín
Arnór Ingi með góða fyrirgjöf inn á teiginn og Edeland nær skallanum en það er fram hjá markinu.
71. mín
InnPeter Ingi Helgason
ÚtBirgir Ómar Hlynsson
66. mín
InnFannar Daði Malmquist Gíslason
ÚtÁgúst Eðvald Hlynsson
66. mín
InnAtli Sigurjónsson
ÚtSigfús Fannar Gunnarsson
66. mín
ÍBV Í FÆRI!!!
Frábærlega gert hjá Aroni Lucas keyrir upp vinstri vænginn og fer fram hjá Birgi Ómar. Kemur svo með boltann út á Omar sem tekur eina snertingu áður en hann tekur skotið en Aron Birki með góða vörslu frá honum.
ÍBV fékk svo hornspyrnu í kjölfarið sem ekkert varð úr.
ÍBV fékk svo hornspyrnu í kjölfarið sem ekkert varð úr.
63. mín
Alex Freyr með hornspyrnu fyrir ÍBV og Eiður Atli nær skallnum en hann er beint á Arin Birki.
61. mín
InnOmar Sowe
ÚtViggó Valgeirsson
61. mín
InnAron Lucas Vokes
ÚtRóbert Elís Hlynsson
60. mín
Vicente lyfti boltanum inn á teiginn og Tomic flikkar boltanum áfram og Sesar er nálægt því að ná til boltans en Aron Birkir handsamar boltann.
58. mín
ARNÓR!!!
Sesar kemur með mjög góða sendingu í gegn á Árnór Inga sem er kominn í dauðfæri en hann setur boltann eiginlega beint á Aron Birki sem ver frá honum.
54. mín
Þórsarar brunuðu upp í sókn og Sigfús Fannar fékk boltann í góðri stöðu og nær skotinu en Ari vel nokkuð vel frá honum.
50. mín
ÍBV í sókn.
Góð sókn hjá ÍBV. Sesar fékk boltann úti hægra megin og kemur með flottan bolta inn á teiginn en enginn Eyjamaður til að setja boltann í netið.
48. mín
ÍBV með aukaspyrnu úti vinstra megin á miðjum vallarhelmingi Þórs.
Alex Freyr með spyrnuna en Þórsarar skalla boltann út fyrir teiginn beint á Arnór Inga. Hann lyftir boltanum inn á teiginn á Vicente en hann er rangstæður.
Alex Freyr með spyrnuna en Þórsarar skalla boltann út fyrir teiginn beint á Arnór Inga. Hann lyftir boltanum inn á teiginn á Vicente en hann er rangstæður.
46. mín
InnEinar Freyr Halldórsson
ÚtVictor Bertomeu
Þór með eina breytingu í hálfleik.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
Þetta er farið í gang aftur!
45. mín
Gult spjald
Aleksandar Linta
45. mín
Hálfleikur
Þórsarar leiða í hálfleik!
Mjög leiðinlegum fyrri hálfleik að ljúka þar sem að Þórsarar náðu að skora eitt mark í lokin og eru þar með 0-1 yfir í hálfleik.
45. mín
Uppbótartíminn var +3.
45. mín
Þórsarar eru komnir yfir!!!
Sigfús Fannar Gunnarsson (stoðsending: Vilhelm Ottó Biering Ottósson)
Þórsarar fengu aukaspyrnu á ca. miðjum vallarhelmingi ÍBV. Vilhelm kemur með mjög góðan boltann inn á markteiginn og Sigfús Fannar kemur boltanum í netið.44. mín
Arnór Ingi með hættulegan bolta inn á teiginn. Róbert Elís og Milan Tomic báðir í baráttunni en Gyrðir nær að skalla boltann í burtu.
41. mín
Atli vinnur horn fyrir Þór.
41. mín
Arnór Ingi með fyrirgjöf frá hægri inn á teiginn á Viggó en hann nær ekki valdi á boltanum og Þórsarar hreinsa.
38. mín
Alex með misheppnaða sendingu inn á teiginn sem fer beint til Arons í markinu.
Gæðin í þessum leik eru ekkert til að hrópa húrra fyrir hja báðum liðum.
Gæðin í þessum leik eru ekkert til að hrópa húrra fyrir hja báðum liðum.
35. mín
Gult spjald
Milan Tomic
Milan Tomic að fá sitt níunda gula spjald í sumar.33. mín
Greko með fyrirgjöf inn á teiginn en Edeland kemur boltanum í burtu.
30. mín
Víti misnotað
Vicente Rafael Valor Martínez
Vicente setur boltann framhjá!!!30. mín
Gult spjald
Victor Bertomeu
Fyrir tuð.28. mín
ÍBV fær víti!!!
Sigurður Arnar tekinn niður inn af Birgi Ómari inn í teig eftir eitthvað klafs.
27. mín
Viggó vinnur horn fyrir Eyjamenn.
26. mín
InnSesar Örn Harðarson
ÚtBjarki Björn Gunnarsson
Bjarki Björn fer meiddur af velli.
25. mín
Þór fær hornspyrnu
Ágúst Eðvald með fyrirgjöf frá hægri sem fer í Eið og Atla og aftur fyrir.
23. mín
Bjarni Guðjón með góðan bolta fyrir frá hægri á Victor en fyrsta snertingin hans er ekki nógu góð og hann missir boltann langt frá sér.
22. mín
Eiður Atli með fyrirgjöf inn á teiginn og Milan Tomic er í baráttunni en Gyrðir nær að hreinsa frá.
20. mín
Bjarki liggur eftir og leikurinn er stopp á meðan hann fær aðhlynningu.
18. mín
ÍBV fær aukaspyrnu á miðjum vallarhelmgini Þórsarar, Viggó tekinn niður, Vicente með spyrnuna en Þórsarar skalla boltann burt.
17. mín
Kom löng sending fram á Bjarka Björn sem kemur honum áfram á Arnór Inga hægra megin. Arnór kemur með boltann út á vítateigspunktinn en Þórsarar ná að koma boltanum burt.
13. mín
Ágúst með skot fyrir utan teig en hittir boltann mjög illa og hann fer aftur fyrir.
12. mín
Það er frekar lítið að frétta hérna síðustu mínútur.
9. mín
Eyjamenn eiga alveg í smá erfiðleikum með að spila sig út úr góðri pressu Þórsara.
8. mín
Ágúst Eðvald setur boltann í netið eftir langa sendingu fram en dómarinn var búinn að flauta, boltinn var víst á ferð.
4. mín
Arnór Ingi með fyrirgjöf frá hægri en hún fer beint aftur fyrir.
3. mín
Þórsarar í sókn!
Kom fyrirgjöf inn á teiginn og Arnór Ingi skallar boltann eiginlega bara fyrir Victor inn á teig ÍBV og hann er í fínasta færi en skotið fer fram hjá markinu.
1. mín
Fyrsta skot leiksins kemur frá Victor fyrir utan teiginn en það fer í hliðarnetið.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið af stað!
Gestirnir byrja.
Gestirnir byrja.
Fyrir leik
Kúlan segir okkur margt
Þórsarar verða að ná í stig í dag ef þeir ætla að vera með í að halda sæti sínu í deildinni. X2 er 2.21 á Epic og hef ég góða tilfinningu fyrir því sérstaklega þar sem Omar Sowe er á bekknum og sé ekki mikla ógn í ÍBV fram á við.
— Kristalkúlan (@kristalkulan) August 29, 2026
Fyrir leik
Þrjár breytingar á báðum liðum
Aleksandar Linta, þjálfari ÍBV, gerir þrjár breytingar frá tapinu gegn Keflavík í síðustu umferð. Omar Sowe, Felix Örn Friðriksson og Sesar Örn Harðarson taka sér sæti á bekknum og inn koma Róbert Elís Hlynsson, Eiður Atli Rúnarsson og Viggó Valgeirsson.
Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs, gerir sömuleiðis þrjár breytingar frá tapinu gegn Stjörnunni í síðustu umferð. Atli Sigurjónsson og Einar Freyr Halldórsson taka sér sæti á bekknum en Ásbjörn Líndal er ekki með í dag. Inn í liðið kemur Birgir Ómar Hlynsson, sem lék á láni með ÍBV í fyrra, Vilhelm Ottó og Sigfús Fannar Gunnarsson sem skoraði sitt fyrsta mark í sumar í síðutu umferð.
Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs, gerir sömuleiðis þrjár breytingar frá tapinu gegn Stjörnunni í síðustu umferð. Atli Sigurjónsson og Einar Freyr Halldórsson taka sér sæti á bekknum en Ásbjörn Líndal er ekki með í dag. Inn í liðið kemur Birgir Ómar Hlynsson, sem lék á láni með ÍBV í fyrra, Vilhelm Ottó og Sigfús Fannar Gunnarsson sem skoraði sitt fyrsta mark í sumar í síðutu umferð.
Fyrir leik
Sigfús Fannar leikmaður Þórs í viðtali
Fyrir leik
„Leikurinn leggst bara nokkuð vel í okkur, búnir taka góða æfingaviku og mikil tilhlökkun í hópnum. Þór er með flott lið og góð einstaklings gæði, við þurfum að hafa stjórn á leiknum og mæta klárir frá fyrstu mínútu sem hefur ekki verið raunin hjá okkur síðustu 1-2 leikjum," segir Arnór Ingi Kristinsson, leikmaður ÍBV.
,,Eins og ég segi hefur undirbúningurinn fyrir leikinn verið góður þrátt fyrir erfitt gengi undanfarið. Það er alltaf erfitt að vera án sigurs í langan tíma en það var líka þannig í byrjun tímabils áður en við duttum á gott skrið."
„Við þurfum kannski aðeins að líta í eigin barm sem leikmenn hvað hver og einn getur gert betur, það er kannski vöntun á sjálfstrausti sem spilar inn í, en við erum þrusugott lið á okkar degi eins og hefur sést. Við þurfum að vera sterkari á báðum teigunum, það hefur verið svolítið vandamál okkar síðustu leiki eins og tölfræðin sýnir, þurfum bara að laga þessa grunn hluti þá er ég mjög vongóður fyrir framhaldinu."
Viðtalið í heild:
Verið öldugangur, bæði hjá mér og liðinu

„Leikurinn leggst bara nokkuð vel í okkur, búnir taka góða æfingaviku og mikil tilhlökkun í hópnum. Þór er með flott lið og góð einstaklings gæði, við þurfum að hafa stjórn á leiknum og mæta klárir frá fyrstu mínútu sem hefur ekki verið raunin hjá okkur síðustu 1-2 leikjum," segir Arnór Ingi Kristinsson, leikmaður ÍBV.
,,Eins og ég segi hefur undirbúningurinn fyrir leikinn verið góður þrátt fyrir erfitt gengi undanfarið. Það er alltaf erfitt að vera án sigurs í langan tíma en það var líka þannig í byrjun tímabils áður en við duttum á gott skrið."
„Við þurfum kannski aðeins að líta í eigin barm sem leikmenn hvað hver og einn getur gert betur, það er kannski vöntun á sjálfstrausti sem spilar inn í, en við erum þrusugott lið á okkar degi eins og hefur sést. Við þurfum að vera sterkari á báðum teigunum, það hefur verið svolítið vandamál okkar síðustu leiki eins og tölfræðin sýnir, þurfum bara að laga þessa grunn hluti þá er ég mjög vongóður fyrir framhaldinu."
Viðtalið í heild:
Fyrir leik
Eyjamenn ekki unnið síðan 4. júlí
ÍBV er aðeins stigi fyrir ofan fallsæti en liðið er án sigurs í síðustu sjö leikjum. Liðið tapaði 1-0 fyrir Keflavík í síðustu umferð. Síðasti sigurlekur Eyjamanna var gegn Val 4. júlí.


Fyrir leik
Þórsarar neðstir og hafa tapað þremur leikjum í röð
Þór er með 15 stig í neðsta sæti Bestu deildarinnar en liðið hefur tapað þremur leikjum í röð. Í síðustu umferð kom 2-4 tap gegn Stjörnunni.


Fyrir leik
Eyjamenn í miklum ham á Akureyri
Þegar þessi lið mættust um miðjan júní á Akureyri vann ÍBV 4-1 útisigur í leik þar sem Bjarki Björn Gunnarsson skoraði tvö mörk og var valinn maður leiksins.
Fyrir leik
Þórður Þorsteinsson Þórðarson flautar. Ragnar Þór Bender og Kristofer Bergmann eru aðstoðardómarar. Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson er fjórði dómari.
Dómari: ÞÞÞ

Þórður Þorsteinsson Þórðarson flautar. Ragnar Þór Bender og Kristofer Bergmann eru aðstoðardómarar. Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson er fjórði dómari.
Fyrir leik
Velkomin á Hásteinsvöll
Hér hefst 21. umferð Bestu deildarinnar. Svona lítur umferðin annars út:
laugardagur 29. ágúst
17:00 ÍBV-Þór (Hásteinsvöllur)
sunnudagur 30. ágúst
17:00 Fram-KA (Lambhagavöllurinn)
17:00 FH-Keflavík (Kaplakrikavöllur)
19:15 Valur-ÍA (N1-völlurinn Hlíðarenda)
mánudagur 31. ágúst
19:15 Breiðablik-Stjarnan (Eikarvöllurinn)
þriðjudagur 1. september
17:30 KR-Víkingur R. (Meistaravellir)

laugardagur 29. ágúst
17:00 ÍBV-Þór (Hásteinsvöllur)
sunnudagur 30. ágúst
17:00 Fram-KA (Lambhagavöllurinn)
17:00 FH-Keflavík (Kaplakrikavöllur)
19:15 Valur-ÍA (N1-völlurinn Hlíðarenda)
mánudagur 31. ágúst
19:15 Breiðablik-Stjarnan (Eikarvöllurinn)
þriðjudagur 1. september
17:30 KR-Víkingur R. (Meistaravellir)








