SKÝRSLAN: Víkingar á flugi
Hvað réði úrslitum?
Grindavík/Njarðvík byrjaði leikinn sterkt en nýtti ekki færin sín. Víkingar refsuðu og komust yfir eftir rúmlega stundafjórðung. Bættu síðan við stuttu síðar og þetta var eiginlega aldrei í hættu eftir það.
Bestu leikmenn
1. Bergdís Sveinsdóttir
Á þátt í öllum mörkum liðsins. Kemur liðinu á bragðið með góðu marki, tekur svo hornið sem Áslaug Dóra skoraði úr og Bergdís innsiglaði sigurinn.
2. Dagný Rún Pétursdóttir
Mikil vinnusemi í henni, olli vörn gestanna miklum vandræðum.
Atvikið
Emersen Jennings fékk dauðafæri en setti boltann framhjá snemma leiks. Víkingur komst síðan yfir stuttu síðar og gekk á lagið. Það var dýrt.
Hvað þýða úrslitin?
Víkingur fer upp úr botnsætinu upp í 9. sæti eftir annan sigurinn í röð. Dramatískur endurkomusigur Fram á Stjörnunni kom í veg fyrir að liðið kæmist upp úr fallsæti. Grindavík/Njarðvík er í 5. sæti með 22 stig og er enn í baráttunni um að halda sér í efri hlutanum.
Vondur dagur
Uppleggið hjá Grindavík/Njarðvík var að spila út frá markmanni en það var mikið óöryggi í öftustu línu. Víkingar fengu góð færi til að nýta það betur. Þá var Emersen Jennings mikið í boltanum en fór illa með hann.
Dómarinn - 8
Vel dæmdur leikur. Ekki sá erfiðasti en vel gert.



