SKÝRSLAN: Kornungur Grindvíkingur skoraði mikilvægasta mark félagsins í mörg ár
Hvað réði úrslitum?
Grindvíkingar þurftu meira á sigrinum að halda og eftir að hafa verið kýldir niður með þremur mörkum HK-inga stóðu þeir upp og náðu inn sigurmarkinu í lokin.
Bestu leikmenn
1. Mikael Máni Þorfinnsson
Skorar þetta gríðarlega mikilvæga mark í uppbótartíma. Fæddur 2010, unglingalandsliðsmaðru og skorar sitt fyrsta meistaraflokksmark í uppbótartíma. Þetta mark gæti reynst svo ótrúlega dýrmætt fyrir Grindavík.
2. Aron Skúli Brynjarsson
Skoraði eitt og átti stóran þátt í öðru marki. Fysta markið hans í Lengjudeildinni á ferlinum. Vinstri fóturinn á Ívari Erni, Eysteinn Rúnarsson og Ibra Camara fá einnig tilnefningu.
Atvikið
Sigurmarkið í uppbótartíma, þvílíkt augnablik í Grindavík.
Hvað þýða úrslitin?
Grindavík er með fjögurra stiga forskot á Völsung en Völsungur á leik til góða sem nú er í gangi. Grindavík á vonlaust lið Ægis í lokaumferðinni og ætti að klára það verkefni. HK endar í 4. eða 5. sæti deildarinnar.
Vondur dagur
Ólafur Örn í marki HK var oft á tæpasta vaði aftast og oft fannst mér það alveg óþarfi. Set spurningarmerki við hann í fyrsta markinu en gat ekkert gert í hinum mörkunum. Var magnaður í síðustu umferð, smá jarðtenging núna.
Dómarinn - 8
Mér fannst Twana dæma þennan leik mjög vel.



