SKÝRSLAN: Árni Elvar kvaddur með stæl
Hvað réði úrslitum?
Leiknismenn voru betri aðilinn í dag. Þeir sýndu mikla baráttu og elju allan leikinn og áttu sigurinn skilið. Frábært að kveðja goðsögnina Árna Elvar með sigri.
Bestu leikmenn
1. Axel Freyr Harðarson
Sá var góður í dag. Í nánast hvert einasta skipti sem Axel fékk boltann skapaðist hætta á síðasta þriðjungi. Hann sýndi oft lipra takta og gulltryggði auðvitað sigurinn.
2. Ólafur Íshólm Ólafsson
Óli Íshólm var mjög góður í markinu. Hann varði nokkrum sinnum meistaralega og var öryggið uppmálað í öllum sínum aðgerðum.
Atvikið
Annars vegar þegar Leiknir fá víti. Dómurinn orkaði í meira lagi tvímælis. Hins vegar þegar Árni Elvar fékk að líta rauða spjaldið í sínum síðasta leik. Alvöru endir á frábærum ferli.
Hvað þýða úrslitin?
Úrslitin þýða að Leiknismenn tryggja veru sína í Lengjudeildinni að ári. Njarðvíkingar eru eftir sem áður öruggir í umspilið, en betur má ef duga skal.
Vondur dagur
Set þetta á allt Njarðvíkur liðið. Þeir mættu of værukærir til leiks, sem helgaðist þó öðrum þræði af því að þeir voru þegar öruggir með umspilssæti.
Dómarinn - 4
Sveinn hefur átt betri daga. Stór atvik sem setja verður spurningamerki við.


