Leik lokið!
Endurkomusigur
92. mín
Stjarnan átti skot í þverslánna á meðan ég skrifaði um mark Söru. Það hefði getað orðið enn meiri dramatík
92. mín
InnJúlía Margrét Ingadóttir
ÚtAlda Ólafsdóttir
90. mín
Fram er að vinna leikinn!!
Sara Svanhildur Jóhannsdóttir (stoðsending: Taylor Marie Hamlett)
Taylor Hamlett er sterk og vinnur návígið sitt. Hún rennir boltanum út í teig af hægri kantinum og þar er Sara Svanhildur sem á fínt skot í fjærhornið86. mín
ÞÆR JAFNA!!!
Alda Ólafsdóttir (stoðsending: Sara Svanhildur Jóhannsdóttir)
Sara Svanhildur með frábæra hornspyrnu sem ratar á pönnuna á Öldu. Skalli hennar er fastur og góður.86. mín
Fram fær hornspyrnu. Heimakonur eru ofan á þessa stundina
82. mín
InnErika Ýr Björnsdóttir
ÚtIngibjörg Lúcía Ragnarsdóttir
81. mín
Færi
Sara Svanhildur með góðan bolta inn á teig enn Alda nær ekki að stýra skoti sínu sem fer yfir
79. mín
Flott spil hjá heimakonum í teig gestanna sem endar með lausu skoti frá Isabelle
76. mín
Katrín Erla með skemmtilega hælspyrnu eftir hornspyrnu Söru Svanhildar en varnarmenn komast í skot hennar
74. mín
InnHlín Heiðarsdóttir
ÚtKatrín S. Vilhjálmsdóttir
70. mín
Fanney ógnar
Hún er komin í góða stöðu og lætur vaða rétt fyrir utan vítateig. Fast skot hennar fer yfir
69. mín
Taylor með hættulega tilraun sem fer framhjá
67. mín
InnVigdís Edda Friðriksdóttir
ÚtHulda Hrund Arnarsdóttir
67. mín
InnSandra Hauksdóttir
ÚtSnædís María Jörundsdóttir
65. mín
Stöng
Aftur er það Fanney. Hún nær föstu skoti af vinstri kantinum í nærstöngina.
Stjarnan að ógna þessa stundina
Stjarnan að ógna þessa stundina
64. mín
Fanney Lísa skýtur af löngu færi yfir markið. Spurning hvort hún hefði átt að finna Snædísi sem var í góðu hlaupi
61. mín
Dauðafæri
Murielle er sloppin inn fyrir en þarf aðeins að hægja á sókninni. Heimakonur eru hins vegar lengi að skila sér til baka og Murielle fær boltann aftur í dauðafæri við vinstra horn markteigsins en skýtur framhjá
59. mín
Framarar hafa nokkrum sinnum ógnað með sterkum hlaupum aftur fyrir vörn Stjörnunnar en það hefur vantað upp á betri ákvörðunartöku þegar þær komast í þessar stöður
52. mín
Murielle með flugskalla ef löngu færi. Hún náði góðum krafti í skallann en Ashley gerir vel í markinu
47. mín
Aftur skorar Stjarnan rangstöðumark
Snædís María kemur boltanum í netið en er flögguð rangstæð
46. mín
InnHarpa Helgadóttir
ÚtKristín Magdalena Barboza
46. mín
InnKatrín Erla Clausen
ÚtUna Rós Unnarsdóttir
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
Anton Ingi gerir tvöfalda breytingu í hálfleik
45. mín
Hálfleikur
Stjörnukonur hafa heilt yfir verið betri aðilinn og leiða sanngjarnt í hálfleik.
Tökum okkur 15
Tökum okkur 15
45. mín
Taylor með skot að marki en Eva Wirtz ver á línu og bjargar marki
44. mín
Andra Mist með skottilraun af löngu færi eftir fína sókna. Yfir fer hann
40. mín
Sara Svanhildur með góðan bolta inn fyrir vörn Stjörnunnar en Taylor Hamlett er of lengi að athafna sig og Fram nær ekki skoti á markið
34. mín
Alda komin í góða stöðu en missir boltann aðeins frá sér og Bridgette handsamar knöttinn
26. mín
HÆTTA
Alda með laust skot sem fer í stöng. Emma Young sprettir í frákastið en boltinn fer af stönginni, í hana og útaf. Emma einstaklega óheppin þarna
23. mín
Skrautlegt var það!
Alda Ólafsdóttir
Taylor Hamlett kemur boltanum fyrir inn í markteig Stjörnunnar. Stjörnukonur verja tvívegis á línu. Meðal annars frá Söru Svanhildi en boltinn hrekkur loksins til Öldu sem skorar af stuttu færi23. mín
Fanney Lísa með laust skot fyrir utan teig sem Ashley grípur
18. mín
Birna finnur Ingibjörgu sem er í frábæru hlaupi á fjærstöng. Ingibjörg setur boltann framhjá Ashley og í netið.
Kristín Magdalena, varnarmaður Fram, fékk blóðnasir og var utan vallar þegar markið var skorað
Stjarnan tvöfaldar forystuna
Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir (stoðsending: Birna Jóhannsdóttir )
Frábær sókn hjá Stjörnunni.Birna finnur Ingibjörgu sem er í frábæru hlaupi á fjærstöng. Ingibjörg setur boltann framhjá Ashley og í netið.
Kristín Magdalena, varnarmaður Fram, fékk blóðnasir og var utan vallar þegar markið var skorað
17. mín
Hulda Hrund með fínt skot sem fer framhjá eftir að boltinn hrökk til hennar eftir aukaspyrnu Stjörnunnar
16. mín
Gult spjald
Katrín S. Vilhjálmsdóttir
15. mín
Leikurinn hefur verið í jafnvægi eftir kröftuga byrjun Stjörnunnar sem skilaði þeim marki
7. mín
MAAAARK!
Fanney Lísa Jóhannesdóttir (stoðsending: Hulda Hrund Arnarsdóttir)
Hulda Hrund með fasta sendingu inn á teig. Fanney Lísa er fyrst á boltann og á frábært viðstöðulaust skot sem Ashley ræður ekki við í markinu5. mín
Murielle með hörkuskot sem Ashley ver í horn
2. mín
Stjarnan byrjar af krafti
Murielle skýtur rétt framhjá í næstu sókn. Heimakonur heppnar að vera ekki lentar undir hérna í byrjun leiks
1. mín
Stjarnan skorar rangstöðumark
Birna með sendingu inn fyrir á Fanneyju sem klárar færið vel. Hún var þó fyrir innan
1. mín
Leikur hafinn
Alda sparkar leiknum af stað
Fyrir leik
Treyjudagur.is
Liðin og starfsmenn liðanna ganga inn á völl í sínum uppáhaldstreyjum. Þetta er til stuðnings börnum með krabbamein. Ég mæli eindregið með því að fólk kynni sér þetta verkefni nánar á treyjudagur.is
Myndaveisla frá Hafliða er á leiðinni!
Myndaveisla frá Hafliða er á leiðinni!
Fyrir leik
Anna Björk spáir í 17. umferðina
Anna Björk Kristjánsdóttir, leikmaður KR, tók að sér það verkefni að spá í leiki umferðarinnar.
Fram 1 - 2 Stjarnan
Hörkuleikur sem endar með naumum sigri Stjörnunar. Andrea Mist skorar sigurmarkið beint úr horni

Fram 1 - 2 Stjarnan
Hörkuleikur sem endar með naumum sigri Stjörnunar. Andrea Mist skorar sigurmarkið beint úr horni

Fyrir leik
17. umferðin
Laugardagur
14:00 Fram-Stjarnan (Lambhagavöllurinn)
14:00 Víkingur R.-Grindavík/Njarðvík (Víkingsvöllur)
16:00 Þróttur R.-Þór/KA (PEPSI völlurinn)
16:00 Breiðablik-ÍBV (Eikarvöllurinn)
Sunnudagur
13:00 Valur-FH (N1-völlurinn Hlíðarenda)
14:00 Fram-Stjarnan (Lambhagavöllurinn)
14:00 Víkingur R.-Grindavík/Njarðvík (Víkingsvöllur)
16:00 Þróttur R.-Þór/KA (PEPSI völlurinn)
16:00 Breiðablik-ÍBV (Eikarvöllurinn)
Sunnudagur
13:00 Valur-FH (N1-völlurinn Hlíðarenda)
Fyrir leik
Fram
Fram er í 9. sæti deildarinnar með 16 stig, ásamt Val sem er í 8. sæti með betri markatölu. Eftir að hafa verið óumdeilanlega versta lið deildarinnar gerðu Framarar sér lítið fyrir og unnu fjóra leiki í röð og komu sér úr fallsæti. Eftir það hefur liðið tapað þremur leikjum í röð, síðast 4-0 gegn Grindavík/Njarðvík, og er komið aftur í fallsæti.


Fyrir leik
Stjarnan
Stjarnan er í þriðja sæti deildarinnar með 26 stig. Liðið er sjö stigum á eftir FH sem er í 2. sæti, sem gefur Evrópusæti. Stjarnan vann mikilvægan 2-0 sigur á toppliði Breiðabliks í síðustu umferð en liðið var sigurlaust í fjórum leikjum í röð fyrir þann leik.


Fyrir leik
Dómarateymið
Bríet Bragadóttir dæmir leikinn. Henni til halds og traust eru aðstoðardómararnir Ingibjörg Garðarsdóttir Briem og Pálmi Víðir Bjarnason. Steinar Stephensen er fjórði dómari og Gunnar Helgason er eftirlitsmaður KSÍ.


Fyrir leik
Velkomin í Úlfarsárdalinn
Heil og sæl öllsömul verið þið hjartanlega velkominn í þráðbeina textalýsingu frá Lambhagavellinum. Hér á eftir mun Fram taka á móti Stjörnunni 17. umferð Bestu deildar kvenna.







Viðtöl og skýrsla væntanleg á eftir