Fotbolti.net
Einar Már Þórólfsson
Lengjudeild karla
GPG völlurinn
Völsungur
Völsungur
3 - 1
ÍR
ÍR
0 - 16' Guðjón Máni MagnússonElvar Baldvinsson 12'1 - 1Sergio Parla Garcia 74'2 - 1Gestur Aron Sörensson 93'3 - 1
Dómari: Bergvin Fannar Gunnarsson
Leik lokið!
Sturlaðar lokamínútur hér á Húsavík í frábærum leik. Heimamenn sennilega verðskuldaðir sigurvegarar í lokin. Fallbaráttan í Lengjudeildinni er orðin rosaleg!
Völsungur
93. mín
Þetta er ótrúlegt! Heimamenn klára þetta

Gestur Aron Sörensson (stoðsending: Arnar Pálmi Kristjánsson)

Völsungar geysast upp í skyndisókn eftir harða sókn gestanna, Arnar Pálmi rennir svo boltanum fyrir á Gest sem klárar auðveldlega.
93. mín
Ótrúlegar senur aftur!
Sóknarmaður ÍR stangar hornspyrnuna í slánna og niður og ég get svo svarið það að boltinn fór inn, annar ÍR-ingur nær frákastinu og skallar yfir af marklínu.
92. mín
ÍR eiga horn
91. mín
Þremur mínútum bætt við
90. mín
Halldór Atli á prýðilegt skot utan teigs en yfir fer það. Við erum að detta í uppbótartíma
89. mín
ÍR-ingar farnir að pressa en heimamenn eiga hættulega skyndisókn sem ekkerrt kemur úr. Nú á ÍR horn
ÍR
87. mín
InnÍvan Óli Santos
ÚtJón Arnar Sigurðsson
86. mín
Elfar Árni sleppur í gegn en flaggið fer á loft og allt brjálast. Skal ekki segja
Völsungur
85. mín
Gult spjald

Fernando Jimenez Arranz

Fernando fær síðbúið gult fyrir peysutog
83. mín
Það hefur færst mikil þreyta yfir leikinn. Menn hafa ekki orku í að spila sín á milli. Það er samt nóg eftir. Á von á alvöru lokakafla!
ÍR
78. mín
Gult spjald

Bergvin Fannar Helgason

Bergvin spjaldar Bergvin
ÍR
77. mín
InnVíðir Freyr Ívarsson
ÚtGuðjón Máni Magnússon
Völsungur
75. mín
InnGestur Aron Sörensson
ÚtDagbjartur Búi Davíðsson
Völsungur
75. mín
InnModoumatarr Mbye
ÚtElmar Örn Guðmundsson
Völsungur
74. mín
Ótrúlegar senur!!

Sergio Parla Garcia (stoðsending: Elfar Árni Aðalsteinsson)

Vilhelm leggur boltann niður og gætir ekki að sér þegar Elfar læðist upp að honum og stelur boltanum og leggur hann á Sergio sem skorar í tómt markið. Ótrúlegt mark
Völsungur
70. mín
Gult spjald

Elmar Örn Guðmundsson

Elmar stoppar skyndisókn
68. mín
Gestirnir eru að pressa. Aukaspyrna rétt fyrir utan og svo hornspyrna en þrátt fyrir mikla pressu gerist ekkert.
65. mín
Leikurinn hefur frekar róast og leyst upp hér. Held að menn séu að hlaða í svakalegar lokamínútur!
ÍR
63. mín
Gult spjald

Jóhann Birnir Guðmundsson

Nú er Jóhann ósáttur við dómgæsluna.
57. mín
Heimamenn í hörkufæri. Elfar fær boltann inni í teig, nær ekki að leggja hann fyrir sig en nær að pota honum á Elmar sem á hörmulegt skot með vinstri.
Völsungur
56. mín
Gult spjald

Borja Martin Iglesias

Borja fær spjald fyrir athugasemdir við dómgæsluna.
54. mín
ÍR-ingar í færi
Orri fær frábæra sendingu innfyrir en skot hans er beint á Victor sem ver vel.
Völsungur
53. mín
InnFernando Jimenez Arranz
ÚtTómas Bjarni Baldursson
51. mín
ÍR-ingar vilja víti. Óliver vill meina að það sé keyrt í bakið á honum inní teig en Bergvin, réttilega, dæmir ekkert
48. mín
Heimamenn byrja betur. Dagbjartur með fínan sprett upp vinstri kantinn en fyrirgjöf hans í hendur Vilhelms.
46. mín
Leikur hafinn
Bergvin flautar seinni hálfleikinn á.
46. mín
Hálfleikur
Stórskemmtilegum fyrri hálfleik lokið hér á GPG vellinum. Það eiga eftir að koma nokkur mörk í viðbót hér í seinni hálfleik.
45. mín
Gestirnir farnir að belgja sig. Hafa átt tvær efnilegar sóknir eftir rangstöðumark Elfars en án árangurs þó.
43. mín
Elfar skorar en rangstaða!
Elfar Árni skallar fyrirgjöf frá vinstri í netið og er í leiðinni kýldur af Vilhelm. Heimamenn fagna um stund en svo fer flaggið á loft! Ég skal ekki segja
42. mín
Dagbjartur fær enn eitt færið eftir hornspyrnu. Vilhelm og varnarmaður flækjast fyrir hvorum öðrum sem verður til þess að Vilhelm missir boltan fyrir Dagbjart sem neglir yfir
40. mín
Dagbjartur reynir skot úr aukaspyrnu en Vilhelm ver auðveldlega.
ÍR
39. mín
Gult spjald

Sigurður Karl Gunnarsson

Sigurður tekur Tómas niður þegar hann er að hlaupa á eftir sendingu inn fyrir. Einhverjir vilja rautt en gult sennilega rétt
34. mín
Elfar fær fína sendingu innfyrir frá Elmari en Elfar er kominn full nálægt markverði gestanna sem að lokar vel á skot hans og grípur boltann
32. mín
Gestirnir í góðu færi
Eftir fyrirgjöf skallar Óliver rétt yfir mark heimamanna. Þetta var færi
27. mín
Tómas Bjarni í dauðafæri!
Allt í einu var Tómas sloppinn aleinn í gegn en ÍR-ingar ná að bjarga
23. mín
Gestirnir fá aukaspyrnu í góðri fyrirgjafastöðu en sending Emils er beint á varnarmann og heimamenn bægja hættunni frá.
18. mín
Dagbjartur í dauðafæri!
Heimamenn svo nálægt því að komast yfir! Dagbjartur sleppur aleinn í gegn vinstra megin og ætlar að skrúfa boltann í hornið fjær en framhjá stönginni fór boltinn. Dauðafæri!
17. mín
Heimamenn fá aukaspyrnu á stórhættulegum stað úti vinstra megin sem að ekkert kemur þó úr.
15. mín
Leikurinn hefur byrjað með þvílíkum látum og bæði lið hafa sótt án afláts. Spurning hvort að það fari að róast yfir þessu núna. Vonandi ekki
Völsungur
12. mín
Elvar Baldvins jafnar

Elvar Baldvinsson

Eftir hornspyrnu og darraðadans fær Elvar boltann á markteignum og skóflar honum yfir línuna. Allt jafnt!
11. mín
Tómas Bjarni á góða fyrirgjöf sem Elfar Árni er hársbreidd frá að ná til. Heimamenn ætla sér að jafna!
9. mín
Færi á báða bóga!
Heimamenn ógna með góðu langskoti en augnabliki síðar er Emil sloppinn í gegn hinum megin í góðu færi en Victor ver. Þetta verður eitthvað miðað við fyrstu mínúturnar
ÍR
6. mín
Gestirnir leiða!

Guðjón Máni Magnússon

Heimamenn byrjuðu með pressu en það var fljótt að breytast. Góð sókn ÍR-inga endar með skoti á mark sem Victor ver en boltinn fellur beint fyrir Guðjón sem ýtir honum yfir línuna.
1. mín
Leikur hafinn
Fyrir leik
Grindavík vann!
Grindvíkingar skoruðu sigurmark í uppbótartíma og því verða heimamenn að vinna til að eiga séns á að bjarga sér frá falli.
Fyrir leik
Tíðindi í fallbaráttunni
HK eru búnir að jafna í 3-3 í Grindavík. Ef það verður niðurstaðan breytir það mjög miklu í fallbaráttunni. Stuðningsmenn bæði Völsungs og ÍR eru á Húsavík Öl að horfa á leikinn í Grindavík og í einhvers konar logni á undan storminum styðja allir hér HK.
Fyrir leik
Fallbaráttan
Fallbaráttan í Lengjudeildinni er allt í einu orðin gríðarlega hörð. Grindavík er í þessum skrifuðu orðum að vinna HK 3-0 og ef þeir klára þann leik þá þýðir það að Völsungur fellur ef þeir tapa í dag. Ef Völsungur hins vegar vinnur þá mun baráttan halda áfram í lokaumferðina þar sem að Völsungur mætir Gróttu á Seltjarnarnesi en ÍR á alvöru grannaslag gegn Leikni.
Fyrir leik
Góðan dag og velkomin í beina textalýsingu frá GPG vellinum á Húsavík. Hér í dag mætast Völsungur og ÍR í 21. umferð lengjudeildar karla.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.