Fotbolti.net
Andri Stefánsson
Andri Stefánsson
Lengjudeild karla
Leiknisvöllur
Leiknir R.
Leiknir R.
2 - 0
Njarðvík
Njarðvík
Kári Steinn Hlífarsson (víti) 15'1 - 0Árni Elvar Árnason 87'Axel Freyr Harðarson 90'2 - 0
Dómari: Sveinn Arnarsson
Myndir: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Leik lokið!
+6
Sanngjarn sigur Leiknis, þeir voru betra liðið allan leikinn. Ég þakka fyrir mig, viðtöl og skýrsla væntanleg.
Leiknir R.
90. mín
Þeir eru að gulltryggja sigurinn!

Axel Freyr Harðarson (stoðsending: Dagur Ingi Hammer Gunnarsson)

Dagur Ingi þræðir boltann í gegn á Axel, hann vinnur kapphlaupið við Sigurjón og leggur boltann framhjá Guy Smit í markinu.
Leiknir R.
90. mín
InnArnór Valur Ágústsson
ÚtBogdan Bogdanovic
+3
90. mín
+2
Dauðafæri! Bogdan keyrir upp allan kantinn og kemst einn á móti Guy en skotið er langt framhjá.
90. mín
sex mínútur í uppbót!
Nægur tími fyrir bæði lið til að skora.
Leiknir R.
90. mín
InnDagur Ingi Hammer Gunnarsson
ÚtBirnir Breki Burknason
Leiknir R.
87. mín
Leiknir eru einum færri!

Árni Elvar Árnason

Fær seinna gula fyrir spark í andlit, óvilja verk en réttur dómur.
87. mín
Aukaspyrna á stórhættulegum stað fyrir Njarðvík
Spark í andlit rétt fyrir utan teig. Aukaspyrnan er föst en fer beint í vegginn.
Leiknir R.
85. mín
InnAdam Örn Arnarson
ÚtKári Steinn Hlífarsson
Leiknir R.
85. mín
InnKaran Gurung
ÚtBirnir Breki Burknason
80. mín
Tíu mínútur eftir
Það eru tíu mínútur eftir af þessum leik. Bæði lið að banka á dyrnar um þessar mundir. Fáum við mark fá Leikni sem gerir út um leikinn eða jöfnunarmark frá Njarðvík?
76. mín
STÖNGIN!
Jóhann er með boltann úti hægra megin, hann missir hann frá sér og boltinn hrekkur til Birnis. Hann tekur lúmskt skot sem rúllar í stöngina og í lúkurnar á Guy Smit.

Þetta hefði gert út um leikinn.
Njarðvík
75. mín
InnSímon Logi Thasaphong
ÚtValdimar Jóhannsson
Njarðvík
75. mín
InnHrafn Guðmundsson
ÚtOumar Diouck
74. mín
Góð varsla!
Diouck fær boltann í gegn, hann vinnur kapphlaupið við Guðjón Pétur en hleypur sig í þröngt færi þar sem Óli Íshólm ver vel.
72. mín
Liprir taktar og aukaspyrna
Axel Freyr sýnir lipra takta og vinnur aukaspyrnu á fínum stað. Aukaspyrnan var skölluð frá.
Njarðvík
70. mín
InnFreysteinn Ingi Guðnason
ÚtBragi Karl Bjarkason
69. mín
Nauðsynleg tækling!
Bogdan fær boltann í gegn en þar er Felix Lima sem nær að stoppa hann áður en hann nær að hleypa af.
67. mín
Rangstaða
Diouck fær boltann í gegn en hann er flaggið fer á loft. Hann var ekki sammála þessu en líklegast var þetta rétt.
65. mín
Njarðvík fá horn
Geta þeir nýtt sér það og jafnað? Svarið er nei, spyrnan er afar slök og Leiknir hreinsa þægilega frá.
59. mín
Klaufagangur og dauðafæri!
Það er léleg sending til baka sem Birnir kemst í, hann keyrir upp hálfan völlinn og nær skoti, en Guy Smit keyrir út og sér við honum.

Þetta var dýrindis færi til þess að tvöfalda forystuna.
Leiknir R.
58. mín
Gult spjald

Árni Elvar Árnason

Togar í treyjuna á Fernandes.
56. mín
Diouck vinnur horn
Hann gerir vel, nær skoti úr þröngu færi sem fer í varnarmann og aftur fyrir. Fyrsta hornið fór í varnarmann og aftur fyrir. Ekkert varð úr seinna.
54. mín
Njarðvík fá horn
Boltinn kemur inn á teiginn en það er hreinsað frá.
Njarðvík
53. mín
Of seinn í tæklinguna

Arnar Helgi Magnússon

51. mín
Góð tilþrif
Kári Steinn sýnir góða takta og vinnur aukaspyrnu. Þeir taka hana stutt og spila sín á milli.
50. mín
Skot úr aukaspyrnunni
Djorde skýtur úr aukaspyrnunni en skotið fer yfir markið.
Njarðvík
50. mín
InnSigurjón Már Markússon
ÚtEiður Aron Sigurbjörnsson
47. mín
Leiknir fá aukaspyrnu á góðum stað
Bogdan gerir vel, keyrir upp völlinn og uppsker aukaspyrnu rétt fyrir utan teig. Það var eitthvað samstuð hjá Bogdan og leikmanni Njarðvíkur við þetta. Leikmaðurinn er Eiður Aron og hann haltrar að velli, óskum honum góðs bata.
46. mín
Leiknir byrja seinni hálfleikinn
Njarðvík
46. mín
InnStefán Gísli Stefánsson
ÚtHaraldur Smári Ingason
45. mín
Hálfleikur
Leiknismenn leiða sanngjarnt í hálfleik
Leiknir hafa verið betri frá fyrstu mínútu. Njarðvík hafa reynt mikið að sparka langt en í flestum tilvikum hefur verið skallað frá. Leiknismenn hafa búið til nóg af hættulegum stöðum og gætu vel verið tveimur mörkum yfir. Njarðvík hafa fengið eitt gott færi en Óli Íshólm varði stórkostlega.

Tökum okkur korter.
Leiknir R.
44. mín
Gult spjald

Djorde Vladisavljevic

Rífur Diouck niður við miðjuna.
40. mín
Njarðvík fá aukaspyrnu á fínum stað
Aukaspyrnan kemur inn á teiginn en boltinn skoppar í Eið Aron og aftur fyrir fór hann.
38. mín
Leikurinn stopp
Árni Elvar fékk högg á fótinn og leikurinn stoppaður. Góðar fréttir þar sem hann ætlar að halda leik áfram.
34. mín
Stórkostleg varsla og horn!
Eiður Aron fær boltann við vítateiginn og hleður í alvöru neglu sem Óli Íshólm ver í horn. Skotið var gott en varslan betri.

Ekkert verður úr hornspyrnunni.
33. mín
Njarðvík fá hornspyrnu
Boltinn kemur inn á teiginn en það er hreinsað frá.
Leiknir R.
31. mín
Rífur í Oumar Diouck

Kári Steinn Hlífarsson

29. mín
Hætta!
Anton Fannar er með boltann við endamörkin. Hann kemur með hættulega sendingu sem er ætluð Birni Breka en hann kemst ekki í boltann og sóknin rennur út í sandinn. Leiknir að hóta öðru markinu um þessar mundir.
28. mín
Góð staða!
Jóhann vinnur boltann og kemur með góða sendingu inn á teiginn. Þar fær Birnir Breki boltann en missir hann klaufalega frá sér. Illa farið með góða stöðu.
24. mín
Njarðvík fá horn
Boltinn kemur inn á teiginn en brot dæmt á Njarðvík.
22. mín
Gott færi!
Aftur eru Leiknir á ferðinni. Jóhann Kanfory fær boltann úti hægra megin. Hann keyrir að vítateignum og sker boltann út á Kára Stein sem tekur eina snertingu áður en hann setur boltann yfir markið.
20. mín
Leiknir sterkari aðilinn
Leiknismenn hafa byrjað þennan leik að miklum krafti. Þeir eru að skapa færi og valda miklum usla á síðasta þriðjungi.
18. mín
Leiknir vilja víti!
Bogdan fær boltann úti hægra megin. Hann keyrir inn á vítateiginn og er tæklaður en ekkert dæmt.
16. mín
Njarðvík fá horn
Boltinn kemur inn á teiginn en Óli Íshólm grípur hann þægilega og sparkar langt.
Leiknir R.
15. mín
Fyrsta markið er komið!

Kári Steinn Hlífarsson

Setur hann í vinstra hornið. Guy fór í rétt horn en skotið var út við stöng, óverjandi.
Njarðvík
14. mín
Tuð

Davíð Smári Lamude

14. mín
VÍTI FYRIR LEIKNI!
Leiknismenn sækja hratt eftir slaka hornspyrnu. Kári Steinn fær boltann í gegn. Arnleifur er að hlaupa samsíða honum og rekur svo fótinn í hann.
13. mín
Njarðvík fá horn
9. mín
Höfuðhögg
Jóhann Kanfory fær högg á höfuðið og liggur eftir. Njarðvík eru að komast í skyndisókn en Sveinn stoppar leikinn. Davíð Smári var alls ekki sáttur við þennan dóm.
8. mín
Leiknir fá fyrsta horn leiksins
Boltinn kemur inn á teiginn en Guy Smit kýlir frá.
7. mín
Rangstaða
Jóhann Kanfory við það að komast í góða stöðu en flaggið fer á loft.
3. mín
Dauðafæri fyrir Leikni!
Birnir Breki fær boltann inni á teignum. Hann rennir honum til hliðar á Axel Freyr sem skrúfar boltann rétt framhjá fjærstönginni. Þarna verður hann að setja boltann á markið.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið í gang!
Njarðvík byrja með boltann.
Fyrir leik
Allt að verða klárt á Leiknisvelli!
Liðin ganga út á völl og verið er að fara yfir byrjunarliðin.
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru komin inn
Brynjar Björn gerir tvær breytingar á liði sínu eftir tap á Ísafirði. Árni Elvar Árnason og Viktor Andri Pétursson koma inn í liðið. Daði Bærings Halldórsson og Þorsteinn Emil Jónsson víkja. Þeir eru báðir utan hóps en Daði tekur út leikbann.

Davíð Smári gerir þrjár breytingar á liði sínu eftir sigur gegn Völsungi. Leandro Fernandes, Felix Lima Santos og Haraldur Smári Ingason koma inn í liðið. Sigurjón Már Markússon, Alexander Helgi Sigurðarson og Aron Einarsson víkja. Alexander Helgi og Aron eru utan hóps.
Fyrir leik
Guðbjörn Smári spáir útisigri
Guðbjörn Smári Birgisson, fyrirliði Hvíta riddarans, fékk það verkefni að spá fyrir 21. umferð Lengjudeildar karla.

Mynd: Víkingur Ó.


Leiknir R. 0 - 2 Njarðvík
Njarðvík tekur þennan leik í hörkuleik í efra Breiðholtinu. Rauðhærða undrið Arnleifur Hjörleifs skorar og leggur upp á Braga Karl.



Fyrir leik
Njarðvík unnu naumlega fyrr í sumar
Liðin mættust fyrr í sumar og þar höfðu Njarðvík betur. Leikar enduðu 1-0 fyrir Njarðvík, þar sem Valdimar Jóhannsson skoraði sigurmarkið eftir 34 mínútna leik.

Fyrir leik
Dómarateymið
Sveinn Arnarsson er aðaldómari leiksins. Honum til halds og trausts eru Arnþór Helgi Gíslason og Sveinn Ingi Sigurjónsson Waage. Eftirlitsmaður er Viðar Helgason.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Njarðvík
Njarðvík hefur átt ágætis tímabil í Lengjudeildinni og hafa tryggt sér sæti í umspilinu. Liðið hefur verið sterkt í sumar og náð í nokkra flotta sigra á leiðinni. Njarðvíkingar hafa sýnt mikinn stöðugleika og verið erfiðir viðureignar fyrir flest lið deildarinnar. Nú tekur við umspilið þar sem liðið fær tækifæri til að berjast um sæti í Bestu deildinni.

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Fyrir leik
Leiknir
Leiknir hefur átt frekar sveiflukennt tímabil í sumar. Liðið hefur átt góða kafla og sýnt hvað í því býr en þess á milli hafa úrslitin ekki alveg fallið með Breiðhyltingum. Stöðugleikann hefur vantað og liðið því ekki náð að halda sér í baráttunni við efstu liðin. Nú er komið að lokakafla tímabilsins og Leiknismenn vilja klárlega enda sumarið vel.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fyrir leik
Lengjudeildin heilsar!
Heil og sæl kæru lesendur og verið velkomin í beina textalýsingu frá Leiknisvelli. Í dag taka heimamenn í Leikni á móti Njarðvík í 21. umferð Lengjudeildar karla. Leikið verður klukkan 14:00.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.