Leik lokið!
4-3 lokatölur!
92. mín
Mikael Máni er fæddur 2010 módel og er að skora sitt fyrsta mark á tímabilinu. Þetta er gríðarlega stórt mark og þýðingarmikið fyrir Grindavík!
Rosaleg dramatík!
GRINDAVÍK KEMST AFTUR YFIR!!!
Mikael Máni Þorfinnsson (stoðsending: Lárus Orri Ólafsson)
Hornspyrna frá Lárusi Orra sem Mikael Máni skallar í netið! Frábær og mikilvægur skalli.Mikael Máni er fæddur 2010 módel og er að skora sitt fyrsta mark á tímabilinu. Þetta er gríðarlega stórt mark og þýðingarmikið fyrir Grindavík!
Rosaleg dramatík!
91. mín
Damir vinnur hornspyrnu fyrir Grindvíkinga.
91. mín
Skist að þremur mínútum sé bætt við.
89. mín
Gult spjald
Ívar Örn Jónsson
Togar í Inga sem krækir í kjölfarið í hornspyrnu.87. mín
InnNökkvi Arnarson
ÚtAlexander Örn Guðmundsson
87. mín
InnIngi Þór Sigurðsson
ÚtHjörvar Daði Arnarsson
84. mín
Heiðar Snær í mjög góðri stöðu inn á teig HK en nær ekki að finna samherja. Þorsteinn Aron kemst fyrir og setur boltann aftur fyrir.
Illa farið með góða stöðu.
Illa farið með góða stöðu.
83. mín
Langt innkast frá HK, Þorsteinn Aron vinnur fyrsta bolta en Hjörvar Daði handsamar svo boltann.
82. mín
InnMikael Máni Þorfinnsson
ÚtAron Skúli Brynjarsson
Þreföld breyting
82. mín
InnGunnleifur Orri Gunnleifsson
ÚtHaraldur Björgvin Eysteinsson
82. mín
InnViktor Guðberg Hauksson
ÚtArnór Gauti Úlfarsson
81. mín
Haraldur Björgvin með skalla sem fer rétt framhjá marki HK, Arnar Breki nálægt því að komast í boltann í kjölfar skallans.
79. mín
Stefán Jón gerir mjög vel þegar HK er að sleppa í gegn, Stefán kemst fram fyrir Radic og hreinsar í innkast.
77. mín
InnLárus Orri Ólafsson
ÚtRúnar Ingi Eysteinsson
76. mín
Vallarþulurinn segir að Birgir Steinn hafi skorað markið en mér sýndist hann fara af Aroni Skúla og í netið - slysalegt. Markið kemur eftir fyirgjöf Ívars Arnar og boltinn fer í netið af stuttu færi inn á markteig Grindavíkur.
Korter eftir!
Jahérna hér
Birgir Steinn Styrmisson (stoðsending: Ívar Örn Jónsson )
HK er búið að jafna.Vallarþulurinn segir að Birgir Steinn hafi skorað markið en mér sýndist hann fara af Aroni Skúla og í netið - slysalegt. Markið kemur eftir fyirgjöf Ívars Arnar og boltinn fer í netið af stuttu færi inn á markteig Grindavíkur.
Korter eftir!
73. mín
Smá hætta inn á teig Grindavíkur
Arnór Gauti setur boltann í Karl Ágúst sem var í pressunni og boltinn fer í hliðarnetið á marki heimamanna.
70. mín
Gult spjald
Alexander Örn Guðmundsson
Tekur Ibra niður með tæklingu.69. mín
HK vill hendi-víti
Gestirnir ósáttir en ég sé þetta ekki nægilega vel. Atvikið átti sér stað utarlega í vítteig Grindavíkur.
66. mín
Heimamenn vankaðir
Tumi með skot eftir horn en Grindvíkingur kemst fyrir. HK finnur lykt af særðu dýri og liggur á heimamönnum þessa stundina.
Tumi á svo annað skot eftir næsta horn en það fer yfir.
Tumi á svo annað skot eftir næsta horn en það fer yfir.
64. mín
Gult spjald
Damir Muminovic
Fyrirliðinn kominn í bann í lokaumferðinni.61. mín
Ívar nær til boltans inn á teig Grindavíkur - einhver köll eftir hendi en ég sá það ekki - kemst upp að endamörkum og teiknar boltann á höfuðið á Radic sem skorar með föstum skalla.
15. mark Radic í deildinni og einungis Joacim Holtan hjá Aftureldingu hefur skorað meira.
Þetta er orðinn leikur!
Hvað er að gerast hérna?
Dominik Radic (stoðsending: Ívar Örn Jónsson )
Rúmar 100 sekúndur á milli marka!Ívar nær til boltans inn á teig Grindavíkur - einhver köll eftir hendi en ég sá það ekki - kemst upp að endamörkum og teiknar boltann á höfuðið á Radic sem skorar með föstum skalla.
15. mark Radic í deildinni og einungis Joacim Holtan hjá Aftureldingu hefur skorað meira.
Þetta er orðinn leikur!
59. mín
Getur HK búið til alvöru leik úr þessu?
HK klórar í bakkann!
Atli Þór Gunnarsson
Sókn upp vinstra megin, fyrirgjöf og boltinn dettur fyrir Atla Þór eftir skalla Damirs. Atli gerir mjög vel, fer framhjá varnarmanni og á svo skot með vinstri og skotið fer af stönginni og í netið!Getur HK búið til alvöru leik úr þessu?
58. mín
Aron Skúlí í ágætis stöðu, spilar með Heiðari Snæ en þeir ná ekki að búa til skotfæri. Mjög góð sending inn á Aron í aðdragandanum, sá ekki hver átti hana.
55. mín
Radic reynir skot fyrir utan teig Grindavíkur, lélegt skot framhjá.
54. mín
Gult spjald
Þorvaldur Smári Jónsson
Brýtur á Haraldi Björgvini.52. mín
Ólafur Örn er að leika sér að eldinum aftast hjá HK, en hann hefur sloppið til þessa. Rétt nær að hreinsa fram völlinn í þetta skiptið.
51. mín
Aron Skúli í góðri stöðu en Þorsteinn Aron truflar hann og skotið er ekki gott.
49. mín
Fallhlífarbolti inn á teig HK og það er alveg hægt að sleppa öllum slíkum því það er enginn betri en Ólafur Örn í því að eiga við svoleiðis bolta.
46. mín
InnKarl Ágúst Karlsson
ÚtJóhann Þór Arnarsson
Tvöföld breyting í hálfleik
46. mín
InnSvavar Örn Þórðarson
ÚtViktor Helgi Benediktsson
46. mín
Þorsteinn Aron klaufalegur inn á eigin vítateig en Aron Skúli nær ekki að nýta sér það.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
45. mín
Hálfleikur
Grindavík leiðir með þremur í hálfleik
Grindvíkingar með öll tök á þessum leik.
45. mín
Gult spjald
Ibrahima Kalil Camara Diakite
Ibra brýtur á Radic. Var búinn að gleyma því að Radic væri inn á.42. mín
Það þarf alvöru stórslys svo Grindavík falli úr þessu
Grindvíkingar eru með þriggja marka forystu og eiga leik gegn Ægi í lokaumferðinni.
Ægir hefur tapað 14 af síðustu 15 leikjum sínum og hefur fengið 20 mörk í síðustu þremur leikjum sínum.
Ægir hefur tapað 14 af síðustu 15 leikjum sínum og hefur fengið 20 mörk í síðustu þremur leikjum sínum.
39. mín
Ágætis jafnvægi í leiknum síðustu mínútur. Grindavík með mjög þægilega forystu. Hjörvar Daði ekki ennþá þurft að verja í marki Grindavíkur.
35. mín
Þetta er í annað sinn í sumar sem Grindavík nær að skora þrjú mörk á heimavelli. Fyrri leikurinn var gegn Völsungi í 4. umferð.
Þakka Livey lýsendum fyrir þennan mola.
Þakka Livey lýsendum fyrir þennan mola.
33. mín
Gult spjald
Tumi Þorvarsson
Brýtur á Stefáni og verður held ég í leikbanni í lokaumferðinni gegn Fylki.32. mín
Dauðafæri frá HK
Jóhann Þór í dauðafæri eftir fyrirgjöf, sýndist það vera frá Tuma, en Jóhann setur boltann röngu megin við stöngina.
31. mín
Haraldur Björgvin með skot fyrir utan teig. Virkilega góð sókn og eiginlega lélegt að hafa ekki fengið betra færi en þetta úr henni. Ibra Camara með frábæra sendingu inn á Aron Skúla í aðdragandanum.
29. mín
SÝNING!!
Heiðar Snær Ragnarsson (stoðsending: Eysteinn Rúnarsson)
Fyrirgjöf frá vinstri. Eysteinn Rúnarssn, sem spilar í vinstri bakverði í dag, með frábæran bolta inn á teiginn og Heiðar Snær klárar af stuttu færi. Glæsileg sókn.27. mín
Skyndisókn hjá Grindavík, Rúnar með sendingu inn á Aron Skúla sem reynir skot en hittir ekki markið. Ekki frábært færi en um að gera láta vaða bara.
Aron að spila vel.
Aron að spila vel.
25. mín
Grindavík komið í góða stöðu!
Fyrsta mark Arons Skúla fyrir Grindavík! Hann kom frá Leikni í glugganum.
2-0!!!!
Aron Skúli Brynjarsson
Fyrirgjöf frá Haraldi Björgvini sem skölluð er út í teiginn og Aron Skúli tekur boltann með vinstri fæti á lofti og niður í hægra hornið. Frábært skot utarlega úr teignum, óverjandi.Grindavík komið í góða stöðu!
Fyrsta mark Arons Skúla fyrir Grindavík! Hann kom frá Leikni í glugganum.
22. mín
Þorvaldur Smári með frábæra sendingu inn fyrir á Tuma sem nær ekki alveg nægilega góðri móttöku en HK fær horn.
HK fær svo strax annað horn. Seinni spyrnan frá Ívari Erni fer yfir allan pakkann.
HK fær svo strax annað horn. Seinni spyrnan frá Ívari Erni fer yfir allan pakkann.
21. mín
Stungusending inn fyrir vörn HK en Ólafur Örn kemur út og leysir þetta vel.
18. mín
Stefán Jón tekur vitlaust innkast og HK fær boltann. Klaufalegt.
17. mín
Grindvíkingar í góðu færi
Aron Skúli með flotta fyrirgjöf af hægri kantinum, finnur Harald Björgvin inn á teignum en skallinn fer yfir. Þetta var mjög gott færi.
14. mín
Hætta við mark Grindavíkur
HK fær tvær hornspyrnur í röð, Dominik Radic nálægt því að komast í dauðafæri á fjærstönginni eftir fyrra hornið.
Atli Þór Gunnarsson á svo mjög fína tilraun í kjölfar seinna hornsins en finnur ekki fjærhornið - skot rétt framhjá.
Atli Þór Gunnarsson á svo mjög fína tilraun í kjölfar seinna hornsins en finnur ekki fjærhornið - skot rétt framhjá.
12. mín
Rúnar Ingi með misheppnaða tilraun eftir fyrirgjöf frá Aroni Skúla. Hittir boltann illa og Ólafur Örn grípur boltann auðveldlega.
Leikurinn er nokkuð opinn.
Leikurinn er nokkuð opinn.
12. mín
HK fæ sína aðra hornspyrnu. Ekkert kemur úr henni og Grindvíkingar keyra upp.
10. mín
Ólafur Örn kaldur aftast hjá HK, er kominn vel út fyrir teig og fær sendingu, fær á sig pressu en gerir vel að fara framhjá henni og halda boltanum svo í spili.
8. mín
Grindavík fær hornspyrnu, Heiðar átti fyrirgjöf og Aron Skúli á tilraun sem fer af Birgi Steini og aftur fyrir.
Ekkert kom upp úr horninu.
Ekkert kom upp úr horninu.
6. mín
Hröð sókn, sótt upp hægra megin, Aron Skúli á skot sem Ólafur Örn slær út í teiginn og þar er Rúnar Ingi klár og setur boltann í hægra markhornið með skoti úr teignum.
Það er hægt að setja smá spurningarmerki við Ólaf í markinu þarna, ekki sannfærandi í vörslunni.
Sjötta deildarmark Runars í sumar!
FYRSTA MARKIÐ!!!
Rúnar Ingi Eysteinsson
Grindavík tekur forystuna!Hröð sókn, sótt upp hægra megin, Aron Skúli á skot sem Ólafur Örn slær út í teiginn og þar er Rúnar Ingi klár og setur boltann í hægra markhornið með skoti úr teignum.
Það er hægt að setja smá spurningarmerki við Ólaf í markinu þarna, ekki sannfærandi í vörslunni.
Sjötta deildarmark Runars í sumar!
6. mín
Fín útfærsla á hornspyrnunni og Tumi á svo skot sem fer framhjá marki heimamanna.
5. mín
Atli Þór með tilraun sem fer af varnarmanni Grindavikur og snýst aftur fyrir í hornspyrnu.
4. mín
Það er fallegt veður í Grindavík.
Bæði lið átt eina sókn til þessa en ekkert færi komið. Núna á HK aukaspyrnuá vallarhelmingi Grindvíkinga.
Í kjölfarið kemur svo langskot frá Ívari Erni en það var alltaf á leið framhjá.
Bæði lið átt eina sókn til þessa en ekkert færi komið. Núna á HK aukaspyrnuá vallarhelmingi Grindvíkinga.
Í kjölfarið kemur svo langskot frá Ívari Erni en það var alltaf á leið framhjá.
1. mín
Leikur hafinn
HK byrjar með boltann
Fyrir leik
Leikurinn í beinni á Livey
Leikurinn er í beinni á Livey og er stuðst við þá útsendingu í lýsingu á leiknum.
Fyrir leik
Byrjunarliðin klár
Það eru þrjár breytingar á liði HK frá sigrinum 3-0 á Þrótti í síðustu umferð. Arnþór Ari og Atli Hrafn eru í banni og Breki Hólm Baldursson er ekki heldur með. Ívar Örn Jónsson kemur inn og ber fyrirliðabandið í fjarveru Arnþórs. Atli Þór Gunnarsson og Alexander Örn Guðmundsson koma einnig inn.
Hjá Grindavík eru tvær breytingar frá 6-1 tapinu gegn Fylki. Ingi Þór Sigurðsson og Gunnleifur Orri Gunnleifsson taka sér sæti á bekknum. Arnór Gauti Úlfarsson og Rúnar Ingi Eysteinsson koma inn í liðið.
Hjá Grindavík eru tvær breytingar frá 6-1 tapinu gegn Fylki. Ingi Þór Sigurðsson og Gunnleifur Orri Gunnleifsson taka sér sæti á bekknum. Arnór Gauti Úlfarsson og Rúnar Ingi Eysteinsson koma inn í liðið.
Fyrir leik
Tveir í banni hjá HK
Þeir Arnþór Ari Atlason og Atli Hrafn Andrason taka út leikbann hjá HK í dag.

Fyrir leik
Enn einu sinni 0-0?
Guðbjörn Smári Birgisson er spámaður umferðarinnar. Hann spáir sjöunda markalausa jafntefli Grindavíkur í sumar.
Grindavík 0 - 0 HK
Enn eina markalausa jafnteflið hjá Grindavík. Þeir verða einbeittir að halda markinu sínu hreinu í þessum leik eftir skellinn gegn Fylki og uppskera 1 stig.
Grindavík 0 - 0 HK
Enn eina markalausa jafnteflið hjá Grindavík. Þeir verða einbeittir að halda markinu sínu hreinu í þessum leik eftir skellinn gegn Fylki og uppskera 1 stig.
Fyrir leik
Þriðja liðið
Twana Khalid Ahmed er með flautuna í dag og honum til aðstoðar eru þeir Kári Mímisson og Bergur Daði Ágústsson. Dómaraeftirlitsmaður er Sigurður G Friðjónsson.

Fyrir leik
Allt undir hjá Grindavík
Grindavík er í 10. sæti deildarinnar með 21 stig, stigi meira en Völsungur sem er í fallsæti. Sigri Grindavík í dag og Völsungur sigrar ekki ÍR þá tryggir Grindavík sætið sitt í deildinni.
HK er í 4. sæti og mun enda í 4. eða 5. sætinu þegar deildarkeppninni lýkur. Liðið mætir því annað hvort 2. eða 3. sætinu í undanúrsitum umspilsins.
HK er í 4. sæti og mun enda í 4. eða 5. sætinu þegar deildarkeppninni lýkur. Liðið mætir því annað hvort 2. eða 3. sætinu í undanúrsitum umspilsins.

Fyrir leik
Velkomin á Stakkavíkurvöll
Góðan daginn lesendur góðir og verið þið velkomnir í beina textalýsingu frá leik Grindavíkur og HK í 21. umferð Lengjudeildarinnar.
Leikurinn hefst klukkan 14:00 og fer fram á Stakkavíkurvelli.

Leikurinn hefst klukkan 14:00 og fer fram á Stakkavíkurvelli.






Grindavík sigrar HK og er með fjögurra stiga forskot á Völsung sem mætir ÍR klukkan 16:00.
Mikael Máni hetjan í dag, þvílíkt augnablik á annarri mínútu uppbótartíma.