Leik lokið!
Valsmenn taka öll stigin á Ljósanótt
90. mín
Þremur mínútum bætt við
89. mín
InnOrri Sigurður Ómarsson
ÚtDagur Orri Garðarsson
Valsarar þétta raðirnar enn frekar.
88. mín
Muhamed Alghoul fellur í teignum og vill fá víti en Ívar Orri er ekki sammála því og Valur fær markspyrnu.
86. mín
Muhamed Alghoul fær boltann á teignum og tilraun hans rétt framhjá markinu!
Keflavík eru að leita leiða en komast lítið áleiðis framhjá þéttri vörn Vals.
Keflavík eru að leita leiða en komast lítið áleiðis framhjá þéttri vörn Vals.
79. mín
InnMate Simicic
ÚtDagur Ingi Valsson
77. mín
Lúkas Logi með skemmtilega takta en tilraun hans framhjá markinu.
74. mín
Kraftur í Keflavík
Þetta mark frá Keflavík gaf þeim heilmikið virðist vera en þeir eru yfir í baráttunni eins og sakir standa.
69. mín
Keflavík minnkar muninn!
Marin Mudrazija
Keflavík lyftir boltanum fyrir markið og Dagur Ingi Valsson átti að mér sýndist fyrstu tilraunina sem Frederik Schram varði en Marin Mudrazija var fyrstur að átta sig renndi sér á boltann á fjærstönginni og minnkar muninn fyrir Keflavík!65. mín
Frederik Schram!
Stefan Ljubicic vinnur boltann af Samúel Kára og keyrir í átt að marki og leggur hann svo út fyrir Eið Orra sem á hörku skot sem Frederik Schram ver frábærlega!
64. mín
InnMyles A Veldman
ÚtPatrick Pedersen
64. mín
InnMarin Mudrazija
ÚtAlpha Conteh
62. mín
Keflavík ógnar
Orrahríð að marki Valsmanna en Stefan Ljubicic á skot sem Fredeik Schram ver vel en Keflavík heldur boltanum og Ásgeir Páll reynir að koma sér í skotfæri sem hefst svo á endanum en skotið yfir markið.
60. mín
Dagur Orri gefur ekkert eftir í baráttunni inni á teig Keflavíkur og nær með þrjóskunni að pikka boltanum út á Patrik Pedersen sem á fast skot en Ásgeir Orri ver þetta vel.
Dagur Orri átt afbragðs leik hér í dag.
Dagur Orri átt afbragðs leik hér í dag.
59. mín
Eiður Orri liggur eitthvað eftir og Valsmenn sparka boltanum útaf.
Annað sinn í leiknum sem Eiður Orri liggur eitthvað eftir en hann virðist vera hrista þetta af sér.
Annað sinn í leiknum sem Eiður Orri liggur eitthvað eftir en hann virðist vera hrista þetta af sér.
53. mín
Valsmenn tvöfalda!
Dagur Orri Garðarsson (stoðsending: Tryggvi Hrafn Haraldsson)
Patrik Pedersen kemur með bolta á Tryggva Hrafn sem laumar honum í gegnum hjartað á vörn Keflavíkur á Dag Orra sem virðist vera að missa af tækifærinu en nær að koma skotinu á markið og þrumar honum í fjær!51. mín
Valsmenn reyna spila sig í gegnum varnarmenn Keflavíkur inni á teig en Ásgeir Orri gerir vel að koma út og renna sér á boltann.
49. mín
Tækifæri fyrir Keflavík
Flott sókn hjá Keflavík en Axel Ingi fær fræbæran bolta upp hægri vænginn og hann á fastan bolta fyrir markið sem Eiður Orri rétt missir af.
48. mín
Stefan Ljubicic með skot sem Frederik Schram ver.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
Patrik Pedersen sparkar þessu af stað aftur.
45. mín
Hálfleikur
Valsmenn leiða í hálfleik
Jónatan Ingi sá til þess að Valsmenn fara inn í hálfleikinn einu marki yfir. Valsmenn heilt yfir verið sterkari aðilinn í þessum leik en Keflavík verið hættulegir þegar þeir komast á ferðina.
Tökum okkur korter og snúum svo aftur í seinni.
Tökum okkur korter og snúum svo aftur í seinni.
45. mín
Tvær mínútur í uppbót
45. mín
Mikilvæg tækling!
Valsmenn eru að þræða Dag Orra í gegn en Marin Brigic á mikilvæga tæklingu sem truflar það að Dagur Orri komist í gegn.
41. mín
Aðeins dregið úr kraftinum í þessum leik eftir að markið kom.
36. mín
Þetta var sprettur!
VALSMENN LEIÐA!!
Jónatan Ingi Jónsson (stoðsending: Dagur Orri Garðarsson)
Frábær sprettur hjá Jónatan Inga sem keyrir í gegnum miðjuna, inn á teig og klárar þetta frábærlega framhjá Ásgeiri Orra.Þetta var sprettur!
31. mín
Muhamed Alghoul kemur með bolta fyrir markið í hættusvæðið en Samúel Kári kemur boltanum frá.
29. mín
Gult spjald
Samúel Kári Friðjónsson
Keflvíkingurinn í liði Vals fær fyrsta gula spjaldið í dag fyrir að fara aftan í Stefan Ljubicic sem hafði snúð vel með boltann.28. mín
Valsmenn koma boltanum fyrir markið og Tryggvi Hrafn er í baráttunni á fjær en Keflavík kemur boltanum frá.
24. mín
Valsmenn keyra hratt upp og eru í yfirtölu en Nacho Heras á frábæra tæklingu til að koma í veg fyrir að boltinn kæmist á fjærstöngina vinstra megin.
23. mín
Valsmenn tapa boltanum klaufalega og Keflavík á tækifæri á að refsa en skotið frá Muhamed Alghoul yfir markið.
22. mín
Valsmenn fengið hættulegri færi þessar fyrstu rúmlega tuttugu mínútur af leiknum en Ásgeir Orri Magnússon í marki Keflavíkur verið frábær.
21. mín
Eiður Orri með tilraun fyrir utan teig beint á Frederik Schram sem átti ekki í teljandi vandræðum með þetta.
20. mín
InnIngimar Torbjörnsson Stöle
ÚtJakob Franz Pálsson
Þetta er búið hjá Jakob Franz í dag.
19. mín
Keflavík í skyndisókn og Alpha Conteh á skot sem Frederik Schram ver nokkuð þægilega en Jakob Franz fer niður og þarf aðhlynningu eftir sprettinn með Alpha Conteh.
Vonandi ekkert alvarlegt og hann geti haldið leik áfram.
Vonandi ekkert alvarlegt og hann geti haldið leik áfram.
17. mín
Ásgeir Orri!
Patrik Pedersen á frábæra stungu innfyrir á Dag Orra sem er mættur einn í gegn en Ásgeir Orri gerir frábærlega og kemur út og étur hann!
13. mín
Muhamed Alghoul með tilraun fyrir utan teig sem fer framhjá markinu.
Keflavík aðeins að minna á sig.
Keflavík aðeins að minna á sig.
11. mín
Rétt framhjá!
Keflavík keyra upp í skyndisókn og Alpha Conteh er öskufljótur upp völlinn og keyrir að teignum og reynir að leggja boltann í fjær en hann fer rétt framhjá markinu.
Mátti ekki miklu muna þarna að Keflavík kæmist yfir.
Mátti ekki miklu muna þarna að Keflavík kæmist yfir.
10. mín
Uppspil Keflavíkur gengur erfiðlega en þeir enda á að reyna hengja hann upp á Stefan Ljubicic sem er í undirtölu í baráttunni.
8. mín
Varsla!
Valsmenn eru að ógna og boltinn berst á fjærstöngina til Patrik Pedersen en Ásgeir Orri nær að reka út fótinn og verja þetta!
6. mín
Varið!
Lúkas Logi í góðu færi en Ásgeir Orri ver þetta vel!
4. mín
Ljósanótt í Keflavík og hörki mæting, þeir vilja tryggja efri hluta playoffið og sýna fólkinu hvað þeir geta. Keflavík yfir 2 mörk á 2.22 er gott veðmál.
— Kristalkúlan (@kristalkulan) September 5, 2026
4. mín
Dagur Orri með tilraun hátt yfir markið eftir ágætis undirbúning Patriks Pedersen.
1. mín
Leikur hafinn
Keflavík sparkar þessu af stað
Allt farið á fullt hér í Keflavík.
Fyrir leik
Frábær mæting í Keflavík
Velkomin á Ljósanótt! Það er hörku mæting og góð stemning í stúkunni!
Viðrar vel og allt til alls fyrir frábæran fótbolta!
Viðrar vel og allt til alls fyrir frábæran fótbolta!
Fyrir leik
Byrjunarliðstíðindi - Tveir fæddir 2012 á bekknum!
Haraldur Freyr Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur, gerir eina breytingu frá tapinu gegn FH. Þorlákur Breki Baxter var seldur til Egersund og inn kemur Dagur Ingi Valsson. Baldur Logi Guðlaugsson er ekki í leikmannahópi Keflavíkur í dag en tveir fæddir 2012 eru á bekknum hjá Keflavík. Það eru þeir Viktor Nóel Sveinsson og Younes Ahmed Amrouni. Þá er Hafþór Davíðsson fæddur 2011 og Emil Gauti Haraldsson er fæddur 2009.
Chris Brazell, þjálfari Vals, gerir eina breytingu frá jafnteflinu gegn ÍA. Tryggvi Hrafn Haraldsson snýr til baka úr leikbanni og kemur inn fyrir Birki Heimisson sem er ekki í hópnum í dag. Myles Veldman og Orri Sigurður Ómarsson snúa aftur í hóp Vals. Fyrirliðinn Hólmar Örn Eyjólfsson er ekki í hóp annan leikinn í röð og Jónatan Ingi er með fyrirliðabandið í hans fjarveru.
Emil Alexander Larsen, markmannsþjálfari Vals, er ekki á skýrslu í dag eftir að hafa fengið rautt spjald fyrir mótmæli undir lok leiks gegn ÍA.

Þorlákur Breki Baxter farinn frá Keflavík
Norska félagið Egersund er búið að kaupa Þorlák Breka Baxter af Keflavík en hann gekk í raðir Keflavíkur fyrir tímabilið í ár. Hann skrifar undir tveggja ára samning með möguleika á árs framlengingu.

Breki hefur spilað virkilega vel með nýliðum Keflavíkur í Bestu deildinni og vakið athygli fyrir sína frammistöðu. Hann hefur skorað tvö mörk og lagt upp þrjú sem varnarsinnaður miðjumaður. Hann á að baki fimm leiki fyrir yngri landslið Íslands og er gjaldgengur í U21 landsliðið.

Spámaðurinn
Við fengum Bjart Bjarma Barkarson, leikmann Aftureldingar, til að spá í spilin. Afturelding mun einmitt spila í Bestu deildinni á næstu leiktíð.
Keflavík 1 - 0 Valur
Keflavík mjög sterkir á heimavelli og eru aldrei að fara að tapa á bæjarhátíðar leiknum og enda í efri hlutanum eftir sterkan 1-0 sigur á Val

Keflavík 1 - 0 Valur
Keflavík mjög sterkir á heimavelli og eru aldrei að fara að tapa á bæjarhátíðar leiknum og enda í efri hlutanum eftir sterkan 1-0 sigur á Val

Fyrir leik
Keflavík
Keflvíkingar tryggja sig inn í efri hlutann með sigri í dag og um leið gulltryggja þátttöku sína í Bestu deild að ári.
Keflavík getur enn náð 4.sæti deildarinnar en svona lítur þeirra barátta út:
4.sæti - Breiðablik með 30 stig (+3 markatala)
5.sæti - Keflavík með 28 stig (-4 markatala)
6.sæti - ÍA með 27 stig (-4 markatala)
7.sæti - Stjarnan með 27 stig (-8 markatala)
Breiðablik heimsækir KA í lokaleik fyrir skiptingu á morgun.

Valur
Valur á enn veika von um að enda í efri hluta deildarinnar en til þess að sú von fái líf þurfa þeir að vinna hér í dag og treysta svo á hagstæð úrslit í öðrum leikjum á morgun.
Svona lítur baráttan út:
6. sæti - ÍA með 27 stig (-4 markatala)
7.sæti - Stjarnan með 27 stig (-8 markatala)
8.sæti - Valur með 24 stig (-7 markatala)
Skagamenn eiga KR heima í lokaleik fyrir skiptingu á morgun.
Stjarnan á ÍBV heima í lokaleik á morgun.

Dómarateymið
Ívar Orri Kristjánsson verður á flautunni í dag og honum til aðstoðar verða Birkir Sigurðarson og Arnþór Helgi Gíslason.
Fjórði dómari er Gunnar Oddur Hafliðason.
Eftirlitsmaður KSÍ er svo Þórður Georg Lárusson.

Fjórði dómari er Gunnar Oddur Hafliðason.
Eftirlitsmaður KSÍ er svo Þórður Georg Lárusson.

Fyrir leik
Velkomin á HS Orku völlinn!
Verið hjartanlega velkomin í þessa þráðbeinu textalýsingu frá leik Keflavík og Val sem fram fer á HS Orku vellinum í Keflavík.
Þetta er síðasta umferð fyrir skiptingu og gætu úrslitin hér í dag skipt heilmiklu í baráttunni um sæti í efri hlutanum.

laugardagur 5. september
16:30 Keflavík-Valur (HS Orku völlurinn)
sunnudagur 6. september
14:00 Stjarnan-ÍBV (Miðgarður)
14:00 Þór-FH (VÍS völlurinn)
14:00 ÍA-KR (ELKEM völlurinn)
14:00 Víkingur R.-Fram (Víkingsvöllur)
14:00 KA-Breiðablik (Greifavöllurinn)

Keflavík þarf sömuleiðis að treysta á hagstæð úrslit á morgun svo þeir falli ekki úr eftir helmingnum.