Leik lokið!
93. mín
Litla færið enn og aftur! Ótrúlegt að Haukar séu ekki yfir í dag! Boltinn fer beint á Filip sem ver hann en missir hann aðeins frá sér. Lítið eftir!
90. mín
Nú er allt brjálað!
Pablo Oshan Punyed Dubon
Pablo fær spjald fyrir tæklingu og Gauji tryllist á hliðarlínunni og sömuleiðis stúkan!87. mín
Gult spjald
Viðar Örn Kjartansson
Gult fyrir dýfu inn í teig!86. mín
Daði aftur með skot, en það fer yfir, leikurinn búinn að róast aðeins en þetta verða áhugaverðar lokamínútur
81. mín
Reynir Freyr kom einhvern tímann inná hjá Selfoss, ég sá nú ekki fyrir hvern!
80. mín
Horn fyrir Selfoss
79. mín
InnÓliver Steinar Guðmundsson
ÚtSigurður Hrannar Þorsteinsson
79. mín
InnÓlafur Darri Sigurjónsson
ÚtEinar Karl Ingvarsson
79. mín
InnEinar Bjarki Einarsson
ÚtIvan Paponja
78. mín
Bjarki með svakalegt skot rétt yfir!
77. mín
Þaaarna munaði mjóu, Daði aftur líklegur en skýtur í varnarmann og úr verður eitthvað klafs sem Filip nær að stoppa. Nú loksins fer að heyrast vel í stúkunni Haukamegin!
71. mín
HAUKAR KLÓRA Í BAKKANN
Daði Snær Ingason
Boltinn inn í teig í þessu horni, smá darraðardans þarna, eiga skot sem fer af samherja, Filip ver það og Daði nær frákastinu! 1-2!!70. mín
Horn fyrir Hauka
66. mín
InnElías Karl Heiðarsson
ÚtBrynjar Bergsson
66. mín
InnAron Fannar Birgisson
ÚtFrosti Brynjólfsson
66. mín
InnAron Fannar Birgisson
ÚtEinar Breki Sverrisson
64. mín
Dauuuuðafæri fyrir Hauka
Filip eitthvað sofandi, fær skallabolta til baka og slær hann bara til baka og missir hann frá sér þegar hann dýfur í hann! Haukar ná hins vegar ekki að nýta sér þetta og skjóta boltanum hátt yfir markið!
61. mín
Haukar pressa og pressa, ná tveimur góðum færum en Selfyssingar gera vel að verjast þeim, í þriðja skotinu skjóta Haukar yfir og í markspyrnu
57. mín
Frábær varsla hjá Franz þarna! Viðar nær frábæru skoti í vinstra hornið en Franz nær hendinni í hann og sendir í horn!
55. mín
Flott aukaspyrna hjá Daða Snæ, en filip gerir vel að verja hann, þrátt fyrir að hafa ekki náð að grípa þennan
55. mín
InnDaði Kolviður Einarsson
ÚtÍvan Breki Sigurðsson
53. mín
Daði fær hendi í andlit og liggur niðri og vantar aðhlynningu. Sé ekki hver fer í hann
50. mín
InnBreki Freyr Ágústsson
ÚtÍsak Jónsson
50. mín
InnArnar Númi Gíslason
ÚtJón Gísli Stefánsson
Jón Gísli lá niðri í dágóðan tíma áðan
49. mín
Horn fyrir Selfoss
Góður bolti fyrir en hann fer í markspyrnu
46. mín
Rautt spjald
Tómas Atli Björgvinsson
Þetta er ábyggilega fljótasta seinna gula sem ég hef séð! 10 sek liðnar og Tómas fær sitt seinna gula, hárrétt hjá dómaranum46. mín
Seinni farinn af stað!
45. mín
Hálfleikur
Hálfleikur kominn hér á Ásvöllum!
44. mín
Gult spjald
Tómas Atli Björgvinsson
Tekur niður Ívan Breka39. mín
Mikill hiti hérna! Arnar dómari er að missa stjórn og er sjálfur orðinn brjálaður! Hreinlega öskrar á Hall!
38. mín
Hvernig dæmir Arnar Þór Stefánsson ekki vítaspyrnu?!?!?!?!!?!
Tómas klárlega tekinn niður í teig einn á móti marki og allt brjálast!!
35. mín
Daði liggur niðri og svo er einhver pirringur á bekkjunum. Aðstoðardómari segir einhverjum á bekk Hauka sýnist mér að hann fái rautt ef hann hættir ekki? Hverju, það veit ég ekki, en bekkurinn á Selfossi hefur sýnt meiri læti hefur mér fundist. Daði er hins vegar staðinn upp og leikur heldur áfram!
33. mín
Litla markið!
Frosti Brynjólfsson
Flott einn tveir spil þarna hjá Frosta og öðrum leikmanni sem ég sá ekki hver var, en Frosti með frábært skot fyrir utan D-bogann sem Franz er óheppinn að ná ekki fingrunum í!30. mín
InnHallur Húni Þorsteinsson
ÚtGunnlaugur Fannar Guðmundsson
Snemm skipting hjá Haukum, Gunnlaugur virðist orðinn tognaður
28. mín
Horn fyrir Hauka
Einhver darraðardans inn íteig en boltinn endar í markspyrnu
27. mín
Frábær bolti inn í teig frá Ísaki sýndist mér inn í teig! Daði nær skallanum en hann fer aðeins til hliðar og endar á að mér sýndist Sigurði sem er aðeins of seinn og nær ekki almennilegri snertingu á hann
25. mín
Lítið gerst eftir þessar hornspyrnur
18. mín
Haukahorn!
Boltinn fer á Daða sem tekur skotið í fyrsta, en þeir bjarga nánast á línu, frákastið endar síðan á Sigurði sýndist mér sem skýtur honum í varnarmann í annað horn.
Spila stutt og síðan kross inn í teig, við tekur einhver darraðardans sem endar í markspyrnu! Haukamenn eru með smjörþefinn af marki hérna
Spila stutt og síðan kross inn í teig, við tekur einhver darraðardans sem endar í markspyrnu! Haukamenn eru með smjörþefinn af marki hérna
14. mín
Horn fyrir Selfoss
Tekin stutt, vinna sig inn í teig við vinstri stöng, reyna skotið en ná ekki að beina honum að markinu
10. mín
Haukar verið duglegir að sækja seinustu mínútur
5. mín
Selfoss skorar!
Brynjar Bergsson
Sýnist það hafa verið hann en get ekki verið viss! Bjarki ær skallanum fram á Viðar sem Franz tekur niður í vítateig, en boltinn ratar á Brynjar sem setur hann í vinstra hornið! Mikilvægt fyrir Selfyssinga!1. mín
Jón Arnar Barðdal vinnur boltann af varnarmanni og tekur skotið af löngu færi! Boltinn fer hins vegar rétt yfir!
1. mín
Leikur hafinn
Og þetta er farið af stað!
Góða skemmtun!
Fyrir leik
Leikmenn Selfoss standa heiðursvörð fyrir Hauka, en einnig labba leikmenn út í sínum uppáhalds treyjum vegna Treyjudagsins sem var haldinn hátíðlegur í gær!
Fyrir leik
Byrjunarliðin komin inn!
Gauji Lýðs gerir hvorki meira né minna 9 breytingar á sínu byrjunarliði! Franz Sigurjónsson kemur inn fyrir meiddan Svein Óla, en einnig koma inn Máni Mar, Jón Arnar Barðdal, Ísak Jónsson, Sigurður Hrannar, Daði Snær, Tómas Atli, Einar Karl og Pablo nokkur Punyed!
Óli Stefán gerir nákvæmlega engar breytingar á sínu liði frá leiknum gegn Magna!
Óli Stefán gerir nákvæmlega engar breytingar á sínu liði frá leiknum gegn Magna!
Fyrir leik
Þriðja liðið!
Arnar Þór Stefánsson er með flautuna frægu í dag, en honum til aðstoðar verða Sigurður Schram og Kristofer Bergmann!

Fyrir leik
Spá leiksins!
Grétar Óskars, einn af þáttastjórnendum Harksins henti í spá fyrir 2. deild og spáði þessum 3-2!
Fyrir leik
Gauji Lýðs í Útvarpsþættinum
Gauji Lýðs, þjálfari Hauka, var gestur í Útvarpsþættinum hjá Elvari Geir og Tómasi Þór í gær og talaði um tímabilið í ár
Fyrir leik
Sigurður Hrannar vs VÖK
Þessi leikur gæti einnig sagt mikið um markakóngstitilinn, en eins og stendur er Viðar Örn efstur með 21 mark og er aðeins fjórum mörkum frá því að jafna markametið í 2. deild samkvæmt Víði Sig!
Sigurður Hrannar fylgir fast á eftir með 19 mörk, en báðir leikmenn hafa verið á eldi í sumar!
Sigurður Hrannar er búinn að spila 1181 mínútur í sumar sem þýðir að hann er að skora á 62. mínútna fresti, en VÖK hefur spilað 1457 mínutur sem þýðir að hann skorar á 69. mínútna fresti.
Eitt er víst að þetta verða spennandi tveir seinustu leikir varðandi þetta að gera!
Sigurður Hrannar Þorsteinsson
Viðar Örn Kjartansson
Sigurður Hrannar fylgir fast á eftir með 19 mörk, en báðir leikmenn hafa verið á eldi í sumar!
Sigurður Hrannar er búinn að spila 1181 mínútur í sumar sem þýðir að hann er að skora á 62. mínútna fresti, en VÖK hefur spilað 1457 mínutur sem þýðir að hann skorar á 69. mínútna fresti.
Eitt er víst að þetta verða spennandi tveir seinustu leikir varðandi þetta að gera!


Fyrir leik
Selfoss
Þetta er mjög mikilvægur leikur fyrir Selfoss, en þeir eru í harðri baráttu við Kára að færa sig upp um deild, en ef Selfoss gerir jafntefli í dag og Kári tapar sínum leik gegn mögnuðum Magnamönnum á Grenivík, þá er Suðurlandið komið aftur upp í Lengjudeildina eftir eins árs fjarveru!


Fyrir leik
Haukar
Haukar eru sigurvegarar 2. deildar, en það varð stærðfræðilega ljóst í seinustu umferð þegar þeir sigruðu Víking Ó. 1-4. Ljóst er að bikarinn fer á loft á Ásvöllum í dag og því ber að fagna!
Þeir hafa verið á toppnum síðan eftir 4. umferð og enginn náð að steypa þeim af stóli! Þeir hafa ekki tapað leik síðan í lok júlí þegar þeir töpuðu 2-1 gegn Fjölni.

Þeir hafa verið á toppnum síðan eftir 4. umferð og enginn náð að steypa þeim af stóli! Þeir hafa ekki tapað leik síðan í lok júlí þegar þeir töpuðu 2-1 gegn Fjölni.

Fyrir leik
Heil umferð
Það verður heil umferð spiluð í dag í 2. deild, fjórir leikir spilaðir núna kl 14:00, og tveir kl 16:00
2. deild karla
14:00 Fjölnir-Þróttur V. (Extra völlurinn)
14:00 Hvíti riddarinn-Kormákur/Hvöt (Malbikstöðin að Varmá)
14:00 KFG-Víkingur Ó. (Miðgarður)
14:00 Haukar-Selfoss (BIRTU völlurinn)
16:00 Magni-Kári (Grenivíkurvöllur)
16:00 KFA-Dalvík/Reynir (SÚN-völlurinn)
2. deild karla
14:00 Fjölnir-Þróttur V. (Extra völlurinn)
14:00 Hvíti riddarinn-Kormákur/Hvöt (Malbikstöðin að Varmá)
14:00 KFG-Víkingur Ó. (Miðgarður)
14:00 Haukar-Selfoss (BIRTU völlurinn)
16:00 Magni-Kári (Grenivíkurvöllur)
16:00 KFA-Dalvík/Reynir (SÚN-völlurinn)
Fyrir leik
Ásvellir kalla
Heil og sæl og verið hjartanlega velkomin í þráðbeina textalýsingu frá BIRTU-vellinum hér á Ásvöllum, en hér munu Haukar fá Selfyssinga í heimsókn í 21. umferð 2. deildar! 






En til hamingju Haukar með bikarinn, ég þakka fyrir mig, viðtöl og skýrsla koma á eftir!