SKÝRSLAN: Þróttur endar í öðru sæti
Hvað réði úrslitum?
Þróttur voru með meiri gæði í dag og betri á flestum sviðum leiksins. Vestri voru tempólausir og hálf áhugalausir lengst af. Þróttur vann verðskuldað og hefðu getað unnið stærra og fara á góðu skriði inn í umspilið.
Bestu leikmenn
1. Örn Bragi Hinriksson
Frábær í dag. Mark og stoðsending og var ógnandi allan leikinn.
2. Magnús Þórðarson
Kemur Þrótti á bragðið og var sí ógnandi. Frábær innkoma og erfitt fyrir Sigurvin að byrja honum ekki í umspilinu.
Atvikið
Fyrsta markið hjá Magnúsi brýtur upp leikinn og eftir það var þetta aldrei spurning. Benedikt varði vítið vel en það telur lítið í 2:0 tapi.
Hvað þýða úrslitin?
Þróttur tryggja sér 2 sætið og fara á skriði inn í umspilsleikina við Njarðvík. Vestri endar í 10 sæti deilarinnar.
Vondur dagur
Vestra liðið í heild fyir utan þá Benedikt og Albert sem voru flottir í dag. Þessi leikur endurspeglaði tímabilið kraftlaust og lítill áhugi fyrir hlutunum. Liðið endar í 10 sæti og endar tímabilið skelfilega.


