Leik lokið!
Elías Ingi flautar þennan leik af og sigur HK staðreynd. Það er það með staðfest að þessi lið mætast aftur í umspilinu sem fer fram í næstu viku. Viðtöl og skýrsla væntanleg.
90. mín
+5
Þórður Ingi Ingimundarson
Pirrar sig á því að vera dæmdur brotlegur.90. mín
+4
Gunnar Heiðar Þorvaldsson
Átta mig ekki alveg á því hvað hann er ósáttur með.90. mín
+4
Nói Hrafn nær skoti á markið en það er laust og beint á Óla.
90. mín
+3
Arnór Breki tekur spyrnuna en hún fer ekki yfir fremsta mann. Ólafur Kristófer kemur inn á teiginn sem mér fannst áhugavert.
90. mín
+2
Aukaspyrnan kemur inn á teiginn þar sem HK skalla boltann aftur fyrir.
90. mín
+2
Ívar Örn Jónsson
Rífur Í Nóa Hrafn sem er sloppinn fram hjá honum.90. mín
+1
Breki Hólm Baldursson
Brýtur á vallarhelmingi Fylkis.86. mín
InnViktor Helgi Benediktsson
ÚtJóhann Þór Arnarsson
86. mín
InnBjarki Örn Brynjarsson
ÚtAtli Þór Gunnarsson
85. mín
Gult spjald
Guðmundur Tyrfingsson
Rífur í Svavar Örn sem er löngu búinn að losa boltann.81. mín
InnNói Hrafn Ólafsson
ÚtGuðfinnur Þór Leósson
Haltur Gummi Tyrfings virðist ætla að klára leikinn þar sem Fylkismenn klára skiptingarnar sínar hér.
81. mín
InnBirkir Eyþórsson
ÚtKári Sigfússon
79. mín
Gummi Tyrfings virðist enn vera að kveinka sér eftir að hafa fengið aðhlynningu fyrr í leiknum. Ég trúi ekki öðru en að hann fari að koma út af. Þeir þurfa á honum að halda í umspilinu, verið þeirra besti maður í dag.
78. mín
Fylkismenn sækja hratt eftir hornið og Gummi Tyrfings gerir frábærlega, kemur boltanum fyrir Jóel Baldursson sem er í dauðafæri en skotið hans er fram hjá.
77. mín
Breki Hólm nær góðum spretti upp hægri kantinn og er kominn inn á teiginn þegar Hlynur Sævar nær tæklingu og kemur boltanum í horn. Hornið er svoá nærstönginga þar sem Arnór Breki skallar frá.
75. mín
InnBaldvin Dagur Vigfússon
ÚtKarl Ágúst Karlsson
75. mín
InnBreki Hólm Baldursson
ÚtAtli Hrafn Andrason
74. mín
Kári Sigfússon með fínan bolta inn á teiginn þar sem Gummi Tyrfings er í baráttunni og nær á einhvern ótrúlegan hátt finnur Gummi sinn innri Giroud og nær 'scorpion' skoti en það er yfir markið.
71. mín
Afgreiðsla!!
Nikulás Val Gunnarsson
Kári Sigfússon kemur með bolta inn á teiginn sem Gummi Tyrfings er í baráttu við varnarmenn HK um. Boltinn berst þaðan út fyrir teiginn þar sem Nikulás Val er, tekur hann með ristinni og smellir honum meðfram grasinu alveg út við stöngina.70. mín
Með þessum tveimur mörkum breytist umspilið og eins og staðan er núna mætast þessi tvö lið aftur í umspilinu.
69. mín
InnJóel Baldursson
ÚtTumi Fannar Gunnarsson
69. mín
InnEyþór Aron Wöhler
ÚtMagnús Daði Ottesen
69. mín
InnMáni Austmann Hilmarsson
ÚtTheodór Ingi Óskarsson
68. mín
Atli Hrafn tekur hornið á fjær en þar er Óli mættur og grípur boltann.
67. mín
Jóhann Þór með lúmskt utan fótar skot sem Óli gerir vel í að blaka yfir markið.
66. mín
InnAlexander Örn Guðmundsson
ÚtDominik Radic
65. mín
Radic með góðan bolta fyrir markið á milli varnarmanna og markmanns en Arnór Breki, sem er síðasti varnarmaður áður en boltinn endar við lappirnar á Karli Ágústi, nær frábærri tæklingu og kemur boltanum í innkast hinum megin.
62. mín
Lanfr innkast inn á teig Fylkis en Guðfinnur gerir vel og skallar frá.
60. mín
Allt í einu er Karl sloppinn aleinn í gegn, hinir varnarmenn Fylkis eru ótrúlega lengi að átta sig, keyrir í átt að Óla í markinu sem kemur út á móti en Karl gerir vel og klárar fram hjá honum.
Karl Ágúst tvöfaldar forystuna
Karl Ágúst Karlsson
Hár bolti frá Þorsteini Aroni á Radic sem nær að setja hann í Arnór Breka. Af honum skoppar boltinn hálfasnalega og hann reynir að pota í hann en Karl Ágúst er á undan.Allt í einu er Karl sloppinn aleinn í gegn, hinir varnarmenn Fylkis eru ótrúlega lengi að átta sig, keyrir í átt að Óla í markinu sem kemur út á móti en Karl gerir vel og klárar fram hjá honum.
58. mín
Fylkir sækir hratt eftir hornið og Gummi Tyrfings er kominn í afbragðs færi, einn á móti Óla, en skotið er eiginlega beint á hann.
57. mín
Hornið kemur út í teiginn þar sem HK nær skalla á markið en Guðfinnur er vel staðsettur á línunni og bjargar því, HK ná annari tilraun á markið en aftur ver Guðfinnur á línunni.
57. mín
Góður bolti frá Ívari Erni inn á teig Fylkismanna sem eru allir hikandi og Arnór Breki endar á því að skalla boltann aftur fyrir. Óþarfa horn að gefa.
52. mín
HK fá horn sem Atli Hrafn tekur inn á teiginn en gestirnir skalla frá.
50. mín
Radic kemur heimamönnum yfir.
Dominik Radic (stoðsending: Jóhann Þór Arnarsson)
Jóhann Þór gerir feykilega vel úti vinstra megin, keyrir á Þórð Inga og fer ansi illa með hann áður en hann kemur boltanum fyrir markið þar sem Dominik Radic gerir það sem hann gerir best og skilar boltanum í netið.48. mín
Gummi Tyrfings stendur upp og getur haldið leik áfram.
47. mín
Gult spjald
Atli Þór Gunnarsson
Tekur niður Gumma Tyrfings sem liggur sárþjáður eftir.46. mín
Kári Sigfússon gerir vel og kemst inn í sendingu á milli varnarmanna. Hann keyrir af stað og kemur með boltann fyrir en sendingin er aðein of föst fyrir Gumma Tyrfings sem er á fjær. Hann nær á endanum stjórn á boltanum, rúllar honum út á Theodór Inga sem rúllar á honum inn á teiginn en setur boltann aftur fyrir báða samherja sína sem eru inn á teignum.
46. mín
Heimamenn byrja seinni hálfleikinn.
45. mín
Hálfleikur
Ágætt að taka stöðuna nú þegar það er kominn hálfleikur í öllum leikjum. Liðin þrjú sem voru í fallhættu fyrir umferðina, Völsungur, ÍR og Grindavík, eru öll yfir í sínum leikjum sem þýðir að Völsungur fellur ef staðan helst óbreytt. Það verður að teljast ótrúlega staða þar sem að Völlararnir, með sigri í dag, hafa unnið fimm af síðustu sex en falla samt. Umspilið er óbreytt frá því áðan. Þróttur er í öðru sætinu en þeir eru að gera jafntefli við Vestra á Ísafirði. Njarðvík eru komnir í 2-0 gegn Aftureldingu sem kemur þeim upp fyrir HK í töflunni. Umspilið verður þá Þróttur gegn HK og Fylkir gegn Njarðvík ef staðan helst eins og hún er í hálfleik.
45. mín
Hálfleikur
Elías Ingi bætir engu við þennan fyrri hálfleik. Fínasti fyrri hálfleikur þrátt fyrir engin mörk þrátt fyrir að bæði lið hafi fengið færi.
45. mín
HK í basli í spili út frá markinu og Fylkismenn svo nálægt því að nýta sér það er þeir koma boltanum frá á síðustu stundu.
44. mín
Frábær varsla!
Magnús Daði Ottesen í dauðafæri eftir að hafa sloppið einn í gegn en Ólafur Örn gerir frábærlega í markinu, kemur snögglega út og les svo skotið eins og hann hafi fengið tölvupóst í gær hvert það var að fara, setur hægri höndina upp og ver.
42. mín
Boltinn kemur inn á teiginn úr horninu þar sem HK ná skallanum en boltinn langt fram hjá.
42. mín
Atli Þór með alls ekki svo galna tilraun, lúmskt skot fyrir utan teig og Óli þarf að eiga sig allan við til að koma boltanum í horn.
40. mín
Kári Sigfússon tekur spyrnuna inn að vítapunktinum þar sem HK eru fyrri til og skalla frá.
40. mín
Gummi Tyrfings stígur nokkur dansspor með boltann inn á teig HK og fer illa með Þorstein Aron, nær skotinu en það er í varnarmann. Fylkir halda boltanum og uppskera á endanum horn.
37. mín
Radic á bolta á fjær sem Jóhann Þór leggur aftur út í teiginn en Atli Hrafn, sem Jóhann ætlaði sendinguna, les það ekki og Fylkismenn hreinsa.
36. mín
Frábær bolti frá Guðfinni inn fyrir á Gumma Tyrfings sem tekur mjög vel á móti honum, leggur hann fyrir sig og á þrususkot sem Óli gerir vel í að verja.
34. mín
Arnþór Ari kemur boltanum fyrir á Radic sem nær skallanum en boltinn er í erfiðri hæð og hann þarf að beygja sig til að ná til hans sem verður til þess að skallinn er máttlaus og beint á Óla.
33. mín
Hár bolti inn á teig HK sem Gummi Tyrfings gerir ótrúlega vel í að ná og skalla út í teiginn fyrir lappir Kára Sigfússonar en skot Kára er vel fram hjá.
32. mín
Theodór Ingi gerir vel úti á hægri kantinum, kemur boltanum fyrir markið en þar nær Magnús Daði ekki til hans.
31. mín
Atli Þór fer í skot töluvert fyrir utan teig Fylkis en skotið fram hjá.
29. mín
Dominik Radic keyrir inn á teig Fylkis reynir skot en það fer beint í Þórð Inga.
27. mín
Jóhann Þór keyrir inn á teig Fylkis á Hlyn Sævar, ætlar að setja boltann fyrir markið en Hlynur nær tánni í hann og setur hann í átt að eigin marki en Óli er fljótur niður og ver.
26. mín
Njarðvík eru komnir yfir á heimavelli sem þýðir að eins og sakir standa, mæta Fylkismenn Njarðvík á meðan HK mætir Þrótti í umspilinu.
25. mín
Jóhann Þór keyrir í áttina að teignum áður en hann lætur vaða en skotið er laust og Óli í engum vandræðum með það.
23. mín
Svavar Örn fær boltann rétt fyrir utan teiginn hægra megin, ætlar að setja hann fyrir en fyrirgjöfin er mjög slök og fer hátt yfir markið.
19. mín
Ólafur Kristófer!!!
Karl Ágúst keyrir inn á teiginn og lætur vaða á markið. Hann virðist vera að skrúfa boltann í fjær en Óli nær fingurgómunum í boltann sem endar í stönginni.
17. mín
Hornið er tekið stutt áður en boltanum er komið inn á teiginn. Fylkismenn ná að henda sér fyrir fyrra skotið. Boltinn berst afturút í teiginn þar sem Atli Þór reynir skot en það er fram hjá.
17. mín
Jóhann Þór með fyrirgjöf inn á teig Fylkis sem gestirnir setja aftur fyrir, fyrsta horn HK.
16. mín
Fylkir spila vel á milli sín úti á vinstri kantinum og Kári Sigfússon kemur á endanum með boltann fyrir markið en þar er engin appelsínugul treyja og Óli getur farið út í boltann einn og óáreittur.
14. mín
Karl Ágúst fær fínan bolta inn fyrir á fjær en misreiknar boltann og hittir hann ekki.
13. mín
Áfram sækja Fylkismenn en Óli gerir vel í markinu og ver skot út þröngu færi.
12. mín
Arnór Breki tekur spyrnuna allt of langt út í teiginn. Þar eiga HK-ingar vondan skalla beint fyrir lappir Theodórs Inga sem á skot í samherja. Fylkir ná svo öðru skoti en það er fram hjá.
12. mín
Theodór Ingi gerir frábærlega úti hægra megin og endar á því að vinna horn fyrir Fylki.
11. mín
Kári Sigfússon tekur spyrnuna inn á markteiginn en þar er Ólafur Örn vel á verði og grípur boltann.
10. mín
Fylkir fá fyrsta horn leiksins.
6. mín
Fínasta sókn hjá HK endar með fyrirgjöf frá Jóhanni á nærstöngina. Þar er Radic í baráttunni, boltinn fer af honum eða varnarmanni, upp í loftið og endar svo í fanginu á Óla sem liggur í jörðinni.
4. mín
Hk sækja hratt og Dominik Radic reynir fyirgjöf en hún fer af varnarmanni, aftur í Radic og aftur fyrir.
2. mín
Kári Sigdfússon með bolta inn á teiginn i átt að Magnúsi Daða en Þorsteinn Aron er á undan og kemur boltanum frá.
1. mín
Leikur hafinn
Magnús Daði Ottesen sparkar þennan leik í gang fyrir gestina.
Fyrir leik
Byrjunarliðin
Byrjunarliðin hafa verið opinberuð og það er slatti af breytingum hjá báðum liðum. Gunnar Heiðar Þorvaldsson gerir fjórar breytingar á sínu liði Þorvaldur Smári Jónsson og Tumi Þorvarsson taka báðir út bann og eru ekki með en Viktor Helgi Benediktsson og Alexander Örn Guðmundsson fá sér sæti á bekknum. Inn í liðið koma Arnþór Ari Atlason, Atli Hrafn Andrason, Svavar Örn Þórðarson og Karl Ágúst Karlsson.
Heimir Guðjónsson gerir þrjár breytingar á sínu liði frá síðasta leik. Aron Snær Guðbjörnsson tekur út leikbann og þeir Eyþór Aron Wöhler og Bjarki Steinsen Arnarsson fá sér sæti á bekknum. Þórður Ingi Ingimundarson og Nikulás Val Gunnarsson koma inn í liðið ásamt feykilega efnilegum Magnúsi Daða Ottesen sem byrjar sinn fyrsta keppnisleik í meistaraflokki í dag.
Heimir Guðjónsson gerir þrjár breytingar á sínu liði frá síðasta leik. Aron Snær Guðbjörnsson tekur út leikbann og þeir Eyþór Aron Wöhler og Bjarki Steinsen Arnarsson fá sér sæti á bekknum. Þórður Ingi Ingimundarson og Nikulás Val Gunnarsson koma inn í liðið ásamt feykilega efnilegum Magnúsi Daða Ottesen sem byrjar sinn fyrsta keppnisleik í meistaraflokki í dag.

Fyrir leik
Tríóið
Elías Ingi Árnason er umferðarstjórinn í dag og með honum eru þeir Þráinn Jón Elmarsson og Kristján Már Ólafs með flagg á haus. 

Fyrir leik
Hver spilar við hvern?
Þar sem að Afturelding hefur nú þegar tryggt sér sæti í deild þeirra bestu að ári er eina spennan í efri hlutanum í þessari lokaumferð í kring um hver spilar við hvern í umspilinu góða. Það er alveg á hreinu að Þróttur og Fylkir hafa tryggt sér „heimaleikjaréttinn“ og fá þar af leiðandi seinni leikinn í undanúrslitunum á heimavelli, bæði lið eru með 40 stig í öðru og þriðja sætinu. Þá eru HK og Njarðvík í þriðja og fjórða sæti með 35 stig á haus. 

Fyrir leik
Fylkir
Fylkismenn, líkt og HK, eru með tvö töp, tvo sigra og eitt jafntefli í síðustu fimm leikjum. Í síðustu umferð fengu þeir Gróttu í heimsókn í leik sem endaði 3-1 fyrir þá appelsínugulu. 

Fyrir leik
HK
HK koma inn í þennan leik með tvö töp, tvo sigra og eitt jafntefli í síðustu fimm leikjum sem rímar ágætlega við tímabilið sem þeir eru búnir að eiga. Sigrarnir tveir voru auðvitað á heimavelli og töpin og jafnteflið á útvöllum. Í síðasta leik heimsóttur þeir Grindavík í ótrúlegum leik þar sem Grindavík komust í 3-0, HK jafnaði en á 92. mínútu skoruðu Grindavík og tryggðu sér stigin þrjú.

Fyrir leik
Góðan daginn kæru lesendur
Verið velkomin í þessa beinu textalýsingu frá leik HK og Fylkis í lokaumferð Lengjudeildarinnar. Flautað er til leiks klukkan 14:00 í þessum leik, eins og öðrum í umferðinni, og verður spilað í Kórnum. 



