Fotbolti.net
Viktor Ingi Valgarðsson
Lengjudeild karla
GeoSalmo völlurinn
Ægir
Ægir
1 - 1
Grindavík
Grindavík
0 - 116' Heiðar Snær RagnarssonDaníel Karl Þrastarson 62'1 - 1
Dómari: Þorfinnur Gústaf Þorfinnsson
Leik lokið!
Grindavík fellur með Ægir!
Hjörvar Daði markmaður átti síðasta skallann en hann fór vel framhjá.
Því miður fyrir Grindavík en það má heyra saumnál detta eftir loka flautið.
Bæði liðinn hér ganga af velli og horfa til 2.deildar á næsta tímabili.
95. mín
Horn fyrir Grindavík!
Komnar á klukkuna, Hjörvar mættur í teiginn
93. mín
Eru Ægismenn að taka Grindavík með sér niður???!
Haukur Logi grípur fyrirgjöf
Grindavík
92. mín
Gult spjald

Eysteinn Rúnarsson

92. mín
Grindavík stoppaðir í upphafi sóknar.
90. mín
Skot sem fer í varnarmann og Ægir eru bara líklegri í mark.
Ægir
90. mín
InnHilmar Óli Viggósson
ÚtDaníel Karl Þrastarson
90. mín
Ægir að taka hornspyrnu.
89. mín
Mun ekki vita hvað verður bætt við því það er enginn á spjaldi við hliðarlínuna. verðum bara að halda okkur fast!
87. mín
á klukkunni og Grindavík hefur nýja sókn.

Fyrirgjöf sem rúllar gegnum allan teiginn og útaf hjá endalínu.
86. mín
En ein hornspyrnan fyrir Grindavík.

ÞEIR ÞURFA ENNÞÁ MARK!
Grindavík
85. mín
InnIngi Þór Sigurðsson
ÚtViktor Guðberg Hauksson
83. mín
Hornspyrna er það fyrir Grindavík.
Lárus Orri sem er augljóslega lang stæðstur á vellinum tekur hana.
Sitt sýnist hvejum, en hornið varð að markspyrnu.
81. mín
Spjöldin fljúga um þessar mundir.
Grindavík
81. mín
Gult spjald

Mikael Máni Þorfinnsson

Ægir
80. mín
Gult spjald

Kristinn Ásgeir Þorbergsson

80. mín
Grindavík stuðningsmenn vilja víti!
Algjörlega legið á honum Gunnleif Orra í teignum þegar hann er að reyna komast í boltann.
79. mín
Þreföld skipting er það þegar rúmar 10mín eru eftir
Grindavík
78. mín
InnMikael Máni Þorfinnsson
ÚtHaraldur Björgvin Eysteinsson
Grindavík
78. mín
InnSindri Þór Guðmundsson
ÚtHaraldur Björgvin Eysteinsson
Grindavík
78. mín
InnGunnleifur Orri Gunnleifsson
ÚtAron Skúli Brynjarsson
Ægir
77. mín
Gult spjald

Paul Leonard Skoczylas JR

76. mín
Þriðja hornið í röð fyrir Ægir.
75. mín
Þéttir í vörn
Ægismenn eru með þéttan pakka þegar Grindavík liggur á þeim og þessi pakki virðist of þéttur fyrir gestina um þessar mundir.
73. mín
Ekki bætist í tímann þannig Grindavík er undir verulegri pressu að finna annað mark í þessum leik.
Grindavík
72. mín
Gult spjald

Heiðar Snær Ragnarsson

71. mín
Grindavík sækja!
Aron Skúli með fast skot af stuttu færi en Haukur Logi ver vel.
Ægir
70. mín
Gult spjald

Baptiste Gateau

Ægir
69. mín
InnPaul Leonard Skoczylas JR
ÚtHarley Bryn Willard
Grindavík
68. mín
InnLárus Orri Ólafsson
ÚtRúnar Ingi Eysteinsson
64. mín
Grindavík aftur í fallsæti!
Þetta jöfnunarmark setur Grindavík í fallsæti þar sem Völsungur er að vinna sinn leik!
Ægir
62. mín
ALLT JAFNT!!!!

Daníel Karl Þrastarson

Þetta leit alltof auðveldlega út. En tek ekkert af Daníel Karli, glæsilega gert og hann vinnur Hjörvar í markinu með bolta á nærstöngina.
61. mín
Fyrirgjöf í teiginn en skallinn hjá Rúnari Inga er eiginlega bara hreinsun.
Ægir fær innkast.
Grindavík
60. mín
Gult spjald

Stefán Jón Friðriksson

Réttilega spjaldaður, sparkaði í Kristinn Ásgeir.
59. mín
Seinni byrjað svolítið betur fyrir heimamenn en þetta færi var það lang lang besta í leiknum.
Ibra Camara og Arnar Breki einnig báðir búnir að eiga skot en eitt í varnarmann og annað örugglega tekið af honum Hauk Loga í markinu.
Ægir
57. mín
InnKristinn Ásgeir Þorbergsson
ÚtNikola Kristinn Stojanovic
55. mín
Rúnar Ingi einn á markmann!!!
Sleppur fáranlega einn í gegn en skotið fer framhjá! Þetta hefði getað verið mikilvægt mark!
53. mín
Næstum opið mark!!
Bjarki Rúnar komst framhjá Hjörvari og losaði boltann í teiginn en Ægismaðurinn var örlítið eftir á og gestirnir náðu að hreinsa í horn.
50. mín
Ekkert varð úr fyrsta horninu hjá Ægir.
49. mín
Jordan Adeyemo!!!
Nokkuð erfið skot staða en hann nær flottu skoti á markið en varslan hjá Hjörvari Daða er geggjuð og hann nær fingrum í þetta og slær hann yfir markið í horn.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn!
45mín sem Grindavík þarf að þrauka/nýta sér til að klára verkefnið sitt hér í dag.
Síðustu 45mín hjá þessum leiknum á tímabilinu, gef mér að menn klári þetta með stæl.
45. mín
Hálfleikur
Grindavík 1-0 yfir
Glæsi mark Heiðars Snærs er um þessar mundir að halda Grindavík í Lengjudeildinni.
Seinni 45 framundan en leikurinn verið nokkuð rólegur færalega séð.
43. mín
Styttist í hálfleik, verður eflaust ekki mikill uppbótartími en Grindavík fara bara þægilegir í klefann einsog er myndi ég halda.
41. mín
Þorfinnur heldur spjöldunum þétt að sér.
Daníel Karl fær að finna fyrir því líkt og nokkrir aðrir leikmenn en Þorfinnur hefur engann áhuga að spjalda hingað til.
39. mín
Bakfallsspyrnu tilraun
Daníel Karl gerði vel þarna á kantinum og kom með fasta og góða fyrirgjöf en Bjarki Rúnar örlítið fyrir framan boltann og reyndi að bjarga sér með bakfallsspyrnu sem virkaði ekki því miður fyrir áhorfendur.
37. mín
Heiðar markaskorarinn sækir horn fyrir Grindavík.
Rugl lélegt horn sem Daníel Karl nær auðveldlega og hann sækir síðan innkast fyrir Ægir.
36. mín
Jordan Adeyemo fær aðhlynningu. Búin að vera renna svolítið í leiknum og núna verður fyrir höggi.
Virðist þó í góðu lagi með hann.
35. mín
Rúnar Ingi í gegn!
Flott sending frá vörninni. LEIÐ EITT. Dettur frábærlega í fætur Rúnars Inga en hann reynir að vippa yfir Hauk í markinu. Vippaði fremur hátt yfir markið.
34. mín
Sókn Ægis
Var að myndast fínt "momentum" ef ég fæ að sletta með Ægir. Boltinn á hægri kantinum en Daníel Karl tekur sendingu beint útaf. Ætlaðist að fá mann í hlaup gegnum varnarlínuna en það kom heldur betur ekki.
27. mín
Grindavík verið nokkuð örugglega með stjórn á þessum leik en Ægismenn alveg verið líflegir miðað við stöðu þeirra í deildinni fyrir þennan leik. Hafa þó ekki ennþá komist í sitt fyrsta færi ef maður telur aukaspyrnuna ekki með.
21. mín
Sláar skot!
Stefán Jón fær boltann eftir hornið á hægri kantinum og leikur sig nær miðjunni. Á svo gott skot en það fer á ofanverða slána.
20. mín
Fyrsta hornspyrna
Arnar Breki klikkar á fyrirgjöf en fær hornspyrnuna.
18. mín
Grindavík þurfa stigin 3
Markið kemur á góðum tíma því Völsungur var komið yfir og fyrir ofan þá.
Grindavík mun halda sér uppi ef þeir ná að sigla þessum þremur stigum í höfn.
Grindavík
16. mín
LITLA SKOTIÐ!!!!!!

Heiðar Snær Ragnarsson (stoðsending: Haraldur Björgvin Eysteinsson)

Haraldur vinnur boltann framarlega og boltinn fellur vel fyrir Heiðar sem lætur bara vaða og boltinn algjörlega svífur í fjær hornið!!!
Þetta var bara FULLKOMIÐ skot!
Grindavík 1-0!
9. mín
Aukaspyrna Ægirs
Á fínum stað fyrir skot.

Sigurður Óli sem tók skotið og ætlaði undir vegginn. Fékk hann svo aftur en þrumaði honum lengst yfir.
8. mín
Færi
Arnar Breki gerir vel á vinstri kantinum og kemur boltanum fyrir, aftur er það Aron Skúli en skalli hans er slakur og boltinn rennur út úr teignum.
3. mín
Fyrsta skot
Aron Skúli með fyrsta skot leiksins en það er aldrei nálægt því að fara á markið.
Fínt færi svo sem hefði átt að gera betur.
1. mín
Leikur hafinn
Síðasti leikur tímabils þessara liða
Ægir sparkar leiknum í gang!
Fyrir leik
Damir í banni og hetja síðasta leiks á bekknum
Damir Muminovic er ekki með Grindavík í dag vegna uppsafnaðra gulra spjalda.

Mikael Máni Þorfinnsson er á bekknum en hann skoraði sigurmarkið gegn HK.
Fyrir leik
Grindavík
Stór dagur fyrir Grindvíkinga nær og fjær. Við erum með þrjú lið sem keppast um að forðast eitt fallsæti í þessari síðustu umferð. Grindavík á eflaust á pappír auðveldasta verkefni, en fótboltaunnendur vita alveg að það er ekkert auðvelt í þessum elsku bolta heimi. Liðið eru með einu stigi meira en Völsungur sem situr í næst neðsta sæti. Sigur hér í dag hjá Grindavík heldur liðinu uppi í Lengjudeildinni.
Grindavík hafa verið að sækja mikilvæga sigri og 4-3 sigurinn gegn HK í síðustu umferð var heldur betur einn af þeim. Nálægt því að klúðra 3-0 stöðu þangað til 16 ára Mikael Máni mætti og setti sigurmarkið á 92mín. Liðið nærðist eflaust vel af þeim sigri og mæta hér brattir í síðasta leik tímabilsins.
Mynd: Guðmundur Sigurðsson
Aðeins yfir markaskorar Grindavíkur: Rúnar Ingi Eysteinns er með flest mörk liðsins, alls 6stykki. Heiðar Ragnarsson og Rafael Victor báðir með 3mörk. Þar á eftir Arnar Breki sem kom á láni rétt í lok gluggans frá ÍBV er með 2mörk líkt og Gunnleifur Orri Gunnleifsson sem kom frá Breiðablik fyrir tímabilið.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Ægir
Það hefur verið allt annað en fallegt gengið á Ægismönnum. Nokkrir leikir eru frá því að fall var staðfest hjá Þorlákshafnarliðinu sem komu sem sigurvegarar uppúr 2.deild fyrir tímabilið. Þeir hafa tapað núna tíu leikjum í röð, en síðasta stig þeirra kom gegn Grindavík í 0-0 jafntefli. Síðustu þrír leikir hafa verið extra erfiðir, 6-1, 7-0 og 7-2 töp.
Það er þó aldrei nema menn nái að gíra sig upp í leik dagsins, síðasti leikurinn og ekkert annað en að klára algjörlega tankinn.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Markahæstu leikmenn Ægis í sumar eru Jordan Adeyemo með 8mörk, Harley Willard 6mörk og síðan Bjarki Rúnar Jónínuson með 3mörk.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Fyrir leik
Dómaramál
Þorfinnur Gústaf Þorfinnsson er dómari leiksins.
Aðstoðardómari 1 er Óliver Thanh Tung Vú.
Aðstoðardómari 2 er Sveinn Ingi Sigurjónsson Waage.
Dómaraeftirlitsmaður er Jón Magnús Guðjónsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Lokaumferð Lengjudeildarinnar!
Það er komið að lokaumferðinni. Verið velkomin á síðusta leika þessara liða sem mætast á GeoSalmo vellinum í Þorlákshöfn.
Ægir tekur á móti Grindavík hér á slaginu 14:00 líkt og hinir leikirnir.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson


Lengjudeild karla
14:00 Grótta-Völsungur (Vivaldivöllurinn)
14:00 ÍR-Leiknir R. (Þarfaþingsvöllurinn)
14:00 Njarðvík-Afturelding (JBÓ völlurinn)
14:00 Vestri-Þróttur R. (Kerecisvöllurinn)
14:00 Ægir-Grindavík (GeoSalmo völlurinn)
14:00 HK-Fylkir (Kórinn)

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.