Fotbolti.net
Besta deildin
Tryggvi Guðmundsson
Besta kvenna
Hásteinsvöllur
ÍBV
ÍBV
2 - 3
Fram
Fram
Allison Patricia Clark 7'1 - 0Allison Grace Lowrey 12'2 - 02 - 128' Hildur María Jónasdóttir2 - 248' Brookelynn Paige Entz2 - 359' Taylor Marie Hamlett
Dómari: Guðmundur Páll Friðbertsson
Leik lokið!
2-3 sigur Fram!!
Fram vinnur gríðarlega mikilvægan 2-3 útisigur í botnbaráttunni.
93. mín
Lítið að frétta akkurat núna.
90. mín
+4 í uppbótartíma.
90. mín
Edda dögg með skot fyrir utan teig og Ashley virtist slá boltann yfir en dómarinn dæmir markspyrnu.
88. mín
Fridrikka með fyrirgjöfina á frá hægri vængnum en Ashley grípur boltann.
86. mín
Taylor vinnur hornspyrnu fyrir Fram.
85. mín
Brookelynn með skotið fyrir utan teig en það er yfir markið.
Fram
84. mín
InnJúlía Margrét Ingadóttir
ÚtSara Svanhildur Jóhannsdóttir
81. mín
Sara Svanhildur með spyrnuna inn á teiginn og boltinn barst út á Brokelynn sem tók skotið en það fer fram hjá markinu.
81. mín
Fram fær aukaspyrnu nælægt hornfánanum hægra megin. Brotið á Hlín.
78. mín
Hættuleg fyrirgjöf frá Hlín inn á teiginn en Alda nær ekki nógu góðum skalla og ÍBV fær boltann að lokum.
Fram
76. mín
InnHlín Heiðarsdóttir
ÚtKatrín S. Vilhjálmsdóttir
75. mín
Olga með skotið fyrir utan teig eftir mikið klafs en skotið fer fram hjá.
74. mín
Alda nálægt því að sleppa í gegn eftir langa sendingu Fram en Sandra gerir vel í vörninni og er á undan henni og kemur boltanum á Guðný.
72. mín
Taylor með skot á vítateigslínu en það er hátt yfir markið.
68. mín
Frábær sending frá Olgu í gegn á Ágústu Maríu sem er nálægt því að koma sér í færi en Fram konur ná að koma boltanum í burtu.
Fram
67. mín
InnUna Rós Unnarsdóttir
ÚtKatrín Erla Clausen
67. mín
Olga kom sér svo í skotfæri stuttu seinna og skotið fór hátt yfir.
66. mín
Katrín aftur með fyrirgjöf frá hægri og finnur Öldu sem tekur á móti boltanum og tekur skotið en það er nokkuð þægilegt fyrir Guðnýju sem ver frá henni.
65. mín
Katrín með fyrirgjöf frá hægri en Guðný kemur út úr markinu og grípur boltann.
ÍBV
64. mín
InnÁgústa María Valtýsdóttir
ÚtAllison Grace Lowrey
ÍBV
64. mín
InnMagdalena Jónasdóttir
ÚtAllison Patricia Clark
ÍBV
64. mín
InnEdda Dögg Sindradóttir
ÚtViktorija Zaicikova
63. mín
Fridrikka með skot fyrir utan teig sem fer fram hjá markinu.
Fram
59. mín
FRAM eru búnar að snúa þessu við!

Taylor Marie Hamlett (stoðsending: Emma Kate Young)

Fram fékk hornspynu og upp úr henni barst boltinn út og það koma fyrirgjöf á fjær og Emmu. Emma setur boltann fyrir markið af stuttu færi og Taylor kemur boltanum í netið!

Staðan orðin 2-3 fyrir Fram!
58. mín
Fridrikka með lúmska sendingu inn á teiginn á Söndru en Harpa gerir vel gegn henni skýlir boltanum til Ashley í markinu.
53. mín
Kristín Klara reynir að finna Allison Clark í gegn en Harpa kemur boltanum í innkast.
Fram
48. mín
Geggjað mark hjá Brookelynn!

Brookelynn Paige Entz

Hún fékk boltann vinstra megin og fór fram hjá Kristínu Klöru og lét vaða á markið og skotið small í fjærhorninu.

Allt orðið jafnt!!
47. mín
OLGA!!
Allison Clark með frábæra sendingu í gegn á Olgu. Hún er komin ein gegn Ashley en enn og aftur ver Ashley mjög vel!
ÍBV
46. mín
InnEydís María Waagfjörð
ÚtHelena Hekla Hlynsdóttir
ÍBV gerir eina breytingu í hálfleik!
45. mín
Seinni hálfleikur hafinn
Þetta er farið af stað aftur!
45. mín
Hálfleikur
2-1 í hálfleik!
ÍBV byrjaði leikinn mun betur og skoruðu tvö góð mörk.

Fram konur virtust hálfsofandi í upphafi leiks en náðu að vinna sig inn í leikinn og minnkuðu muninn.
45. mín
Taylor með skot úr teginum en Jessica kemur sér fyri boltann og Fram fær horn.
45. mín
Þarna munaði litlu!!
Sara Svanhildur með hornspyrnuna fyrir Fram og Alda nær frábærum skalla af smá færi en Guðný með frábæra vörslu!!
45. mín
+2 í uppbótartíma.
44. mín
AVERY!!
Olga með frábæran bolta á nær og Avery nær skallanum en Ashley með algjörlega geggjaða markvörslu. ÍBV fær horn í kjölfarið.
43. mín
ÍBV fær aukaspyrnu á fínum stað úti vinstra megin við teiginn.
42. mín
Kristín Klara með góða fyrirgjöf frá vinstri og Allison Lowrey tekur boltann í fyrsta en skotið er yfir markið.
42. mín
Fridrikka gerir vel úti vinstra megin. Fer fram hjá Katrínu Erlu og ætlar að senda fyrir en boltinn fer af varnarmanni og aftur fyrir.
37. mín
ÍBV fékk aukaspynu á miðjum vallarhelmingi Fram. Olga tók spyrnuna og eftir mikið klafs á teignum barst boltinn aftur til hennar.

Hún kom með aðra fyrirgjöf á Avery sem nær að skjóta á markið en Ashley kemur út og Fram konur ná einhvern veginn að koma boltanum í burtu.
35. mín
Sara Svanhildur með góða hornspyrnu inn á teiginn og Alda stekkur hæst en skallinn frá henni fer fram hjá markinu.
32. mín
Olga með frábæra fyrirgjöf á fjær og Helen Hekla sendir boltann aftur fyrir markið en Harpa er á undan Lowrey í boltann og færið rennur út í sandinn.
31. mín
Klaufalegt hjá Jessicu missir boltann nálægt teignum og Taylor nær til boltans og keyrir að teignum og tekur skotið en það er frekar laust á beint á Guðnýju.
29. mín
Alda með skot fyrir utan teig en það er beint á Guðnýju.
Fram
28. mín
Fram minnkar muninn!!

Hildur María Jónasdóttir

Boltinn barst til Hildar fyrir utan teiginn og hún gerir virkilega vel. Tekur boltann með sér til hliðar og lætur bara vaða og boltinn svífur yfir Guðnýju í markinu!
25. mín
Viktorija tíaði boltann upp á Söndru í spyrnunni og hún tók skotið sem fór hátt yfir.
24. mín
ÍBV fær aukaspyrnu á hættulegum stað rétt fyrir utan teig.
23. mín
Fín sókn hjá Fram. Katrín Erla kom boltanum út á Taylor sem kom með fyrirgjöf út í teiginn en Sandra nær að koma boltanum frá.
21. mín
Alda í færi. Boltinn barst til hennar inn markteig en skot hennar fer í varnarmann og aftur fyrir. Fram fær hornspyrnu.
19. mín
FÆRI HJÁ ÍBV!!!
Fyrsta Allsion Clark sem fékk boltann utarlega í teignum og tók skotið sem Ashley varði vel frá henni út í teiginn.

Lowrey tók frákastið og tók þrumuskot en Ashley með frábæra markvörslu. Varði boltann í slánna og aftur fyrir!
16. mín
Brookelyn með fyrirgjöf frá vinstri sem Kristín Klara hreinsar í burtu.
ÍBV
12. mín
2-0!!

Allison Grace Lowrey (stoðsending: Allison Patricia Clark)

Lowrey fékk sendingu í gegn frá nöfnu sinni og setur boltann fram hjá Ashley í markinu.
11. mín
Sandra með langan bolta fram inn á teiginn úr aukaspynu. Boltinn dettur svo fyrir Avery og hún tekur skotið en Ashley ver frá henni.
9. mín
Clark með fyrirgjöf inn á teiginn og Lowrey nær skallanum en hann er laus og fer fram hjá markinu.
ÍBV
7. mín
Clark kemur ÍBV yfir!!

Allison Patricia Clark

Eftir klafs á teignum barst boltinn til Allison Clark og hún setti boltann örugglega í hornið!
6. mín
Allison Clark með flotta fyrirgjöf frá hægri og Emma Young ætlar að hreinsa en hittir boltann illa og er eiginlega nálægt því að setja boltann í eigið mark en boltinn yfir og ÍBV fær horn.
4. mín
Viktorija tekur skotið fyrir utan teig en Isabelle Rose nær að koma sér fyrir skotið.
1. mín
Fram fær fyrsta horn leiksins!
1. mín
Leikur hafinn
Allison Lowrey sparkar þessu af stað!
Þetta er farið af stað!

Heimakonur eiga upphafsspyrnuna.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.