Savinho sterklega orðaður við Tottenham
Tottenham Hotspur tókst að koma í veg fyrir óvænt fall í lokaumferð úrvalsdeildartímabilsins og ætlar félagið að styrkja sig í sumarglugganum.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25089 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Tottenham Hotspur tókst að koma í veg fyrir óvænt fall í lokaumferð úrvalsdeildartímabilsins og ætlar félagið að styrkja sig í sumarglugganum.
Andres Iniesta hefur landað sínu fyrsta þjálfarastarfi en hann var kynntur sem nýr stjóri Gulf United í Dúbaí. Liðið spilar í næstefstu deild í Sameinuðu arabísku furstadæmunum og var félagið stofnað árið 2019. Í liðinu má finna fyrrum úrvalsdeildarleikmanninn Leroy Fer og fyrrum framherja sænska landsliðsins, Robin Quaison. Iniesta er 42 ára gamall og hefur unnið að þjálfaragráðum síðustu misseri. Hann lagði skóna á hilluna fyrir tveimur árum eftir að hafa gert garðinn frægan með Barcelona og spænska landsliðinu. Hann fer álíka leið og fyrrum liðsfélagi sinn Xavi en hann hóf þjálfaraferilinn með Al Sadd í Katar áður en hann tók síðar við Barcelona.
Liverpool ákvað að fara í stjórabreytingu og er Andoni Iraola líklegur til þess að taka við starfinu. Jón Daði Böðvarsson hefur þá ekki verið með Selfossi í síðustu tveimur leikjum. Hér að neðan má sjá lista yfir 20 vinsælustu fréttir Fótbolta.net í síðustu viku, raðað eftir hversu oft þær eru lesnar.
Davide Ancelotti er tekinn við Hákoni Arnari Haraldssyni og félögum í Lille. Hann skrifar undir tveggja ára samning við félagið. Davide er 36 ára Ítali og er sonur hins sigursæla þjálfara, Carlo Ancelotti. Davide hefur aðstoðað föður sinn hjá Real Madrid, Bayern München, Napoli, Everton og nú síðast hjá brasilíska landsliðinu. Hann mun enn aðstoða pabba sinn á HM þrátt fyrir ráðninguna hjá Lille. Liðið endaði í 3. sæti í Ligue 1 á síðustu leiktíð og verður því með í Meistaradeildinni á næstu leiktíð. Þrátt fyrir það var ákveðið að segja skilið við Bruno Genesio sem hafði stýrt liðinu í tvö ár.
Norska félagið Brann hefur tilkynnt á heimasíðu sinni að samstarfi félagsins og Freys Alexanderssonar, þjálfara liðsins, sé lokið. Þar kemur fram að eftir samtal milli félagsins og Freys þá sé samkomulag um að samstarfinu ljúki samstundis. Freyr hefur verið þjálfari liðsins frá því í janúar í fyrra. Hann kom liðinu í deildarkeppni Evrópudeildarinnar á sínu fyrsta tímabili, endaði með liðið í 4. sæti norsku deildarinnar og kom því í vor í úrslitaleik bikarsins. En gengið í norsku deildinni í ár hefur verið dapurt og þess vegna er farið í breytingar. Liðið hefur tapað þremur leikjum í röð og situr í 11. sæti deildarinnar eftir tólf leiki.
James Milner, leikjahæsti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar, hefur lagt skóna á hilluna. Milner, sem er fertugur, hóf ferilinn með Leeds fyrir rétt tæpum aldarfjórðungi, 2002. Hann lék síðast með Brighton en hann tilkynnti um ákvörðun sína á samfélagsmiðlum fyrr í morgun.
Brasilíski miðvörðurinn Dante hefur formlega tilkynnt að skórnir séu komnir upp í hillu eftir frábæran feril. Þetta sagði hann í viðtali eftir að hafa hjálpað Nice að bjarga sér frá falli úr frönsku deildinni.
Varnarmaðurinn Ari Leifsson er farinn frá danska B-deildarliðinu Kolding en félagið staðfestir þetta á Instagram í dag.
Liverpool hefur staðfest að Ibrahima Konate muni yfirgefa félagið þegar samningur hans við félagið rennur út í sumar. Liverpool náði ekki samkomulagi við franska miðvörðinn um nýjan samning og því er þetta niðurstaðan.
ÍR tilkynnti í gær að Róbert Kolbeins Þórarinsson væri búinn að skrifa undir tveggja ára samning við félagið. Róbert er varnarmaður fæddur árið 2004. Hann spilaði síðast í háskólanum Eckerd College í Bandaríkjunum þaðan sem hann er nýútskrifaður.
Gunnlaugur Jónsson hefur verið ráðinn þjálfari 2. flokks Hauka. Gunnlaugur er fótboltaáhugafólki vel kunnur, bæði sem fótboltamaður og sem þjálfari. Hann hefur þjálfað Þrótt, Selfoss, Val, KA, HK, ÍA og Álftanes.
Enska úrvalsdeildarfélagið Liverpool hefur sent frá sér tilkynningu þar sem greint er frá því að Arne Slot hafi verið látinn taka poka sinn.
Enski landsliðsmaðurinn Anthony Gordon er genginn í raðir Barcelona frá Newcastle. Barcelona náði samkomulagi við Newcastle um kaupverð upp á um 70 milljónir punda og félagið vann Bayern Munchen í baráttunni um enska sóknarmanninn.
KR hefur staðfest félagaskipti hins efnilega Fannars Heimissonar til Nordsjælland í Danmörku. Hann skrifar undir þriggja ára samning við Nordsjælland.
Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, hefur framlengt samning sinn við félagið um fjögur ár. Fyrri samningur var í gildi út næsta tímabil. Hann mun áfram gegna stöðu yfirmanns fótboltamála og þjálfara meistaraflokks karla.
Víkingur hefur samið við Sölva Stefánsson (2007) en hann skrifar undir þriggja og hálfs árs samning við félagið. Hann kemur til liðsins frá danska félaginu AGF. Hann gekk til liðs við AGF frá Víkingi árið 2023 en hann spilaði einn leik með Víkingi áður en hann fór út. Hann er að jafna sig eftir að hafa slitið krossband á síðasta ári.
Landsliðskonan Telma Ívarsdóttir er farin frá Inter og á leið aftur til Rangers í Skotlandi. Inter greinir frá þessu á <i>Instagram</i>.
Borja Iglesias, þjálfari Völsungs var sáttur með frammistöðu liðs síns eftir 1-0 tap í Kórnum gegn HK í kvöld.
Enski landsliðsmaðurinn Anthony Gordon er á leið til Barcelona frá Newcastle United. Hann mun gangast undir læknisskoðun á morgun og í kjölfarið skrifa undir langtímasamning.
Danski markvörðurinn Kasper Schmeichel hefur lagt hanskana á hilluna eftir farsælan feril en hann tilkynnti þetta í viðtali við <i>TV2</i>.