Borja Iglesias, þjálfari Völsungs var sáttur með frammistöðu liðs síns eftir 1-0 tap í Kórnum gegn HK í kvöld.
Lestu um leikinn: HK 1 - 0 Völsungur
„Mér fannst frammistaða liðsins góð, en það er of dýrt að vera fá á sig mörk úr föstum leikatriðum, víti í seinasta leik gegn Fylki og svo núna úr horni.''
Á 39. mínútu þurfti Tómas Bjarni Baldursson, leikmaður Völsungar að fara útaf vegna höfuðmeiðsla sem hann fékk eftir samstuði við Sigurð Gunnar úr HK. Aðspurður hvort hann hefði einhverjar fréttir af honum var svarið einfalt, en það var nei.
Borja var tilkynntur sem þjálfari Völsungs í seinustu viku og er þetta annar leikur hans á hliðarlínunni hjá þeim. Borja kemur frá Spáni og þjálfaði unglingalið Eibar seinast áður en hann kom norður á Húsavík.
Borja var spurður út í hvernig það er að vera kominn til Völsungs en því miður erfitt var að skilja svar hans þar sem enska er ekki móðurmál hans.
Völsungur spilar sinn næsta leik sunnudaginn 31. maí, en þeir eiga heimaleik gegn Ægi.
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum fyrir ofan.























