Víkingur hefur samið við Sölva Stefánsson (2007) en hann skrifar undir þriggja og hálfs árs samning við félagið.
Hann kemur til liðsins frá danska félaginu AGF. Hann gekk til liðs við AGF frá Víkingi árið 2023 en hann spilaði einn leik með Víkingi áður en hann fór út. Hann er að jafna sig eftir að hafa slitið krossband á síðasta ári.

Hann snýr aftur í Víkina þann 17. júlí þegar félagaskiptaglugginn opnar. Sölvi er miðvörður en hann hefur spilað 24 leiki fyrir yngri landslið Íslands og skorað eitt mark.
„Sölvi er einn af efnilegustu hafsentum landsins og er uppalinn víkingur. Hann fór aðeins í 2 ár til AGF og er nú á leiðinni heim og það gleður okkur mikið að taka á móti honum aftur. Hann er svo sannarlega framtíðarmaður og er með gríðarlega hátt þak til að ná langt," segir Kári Árnason sem er yfirmaður fótboltamála hjá Víkingi.
Sölvi Stefánsson (f. 2007) hefur gert þriggja og hálfs árs samning við Knattspyrnudeild Víkings. Danska liðið AGF keypti Sölva árið 2023 frá Víking en hann snýr heim í Hamingjuna þegar glugginn opnar aftur 17.júlí næstkomandi. Sölvi hóf knattspyrnuferilinn sinn með Víking og… pic.twitter.com/e0ywt1KAij
— Víkingur Fótbolti (@vikingurfc) May 28, 2026