Varnarmaðurinn Ari Leifsson er farinn frá danska B-deildarliðinu Kolding en félagið staðfestir þetta á Instagram í dag.
Ari, sem er 28 ára gamall, kom til Kolding frá norska félaginu Strömsgodset árið 2024.
Hann lék þrjú tímabil með liðinu. Hann lék tíu leiki á fyrsta tímabili sínu og var lykilmaður á öðru tímabilinu áður en hann reif lærvöðva.
Varnarmaðurinn spilaði minna á þessu tímabili vegna meiðsla og var þá oft á bekknum. Hann er nú farinn frá Kolding og er á leið í Val en hann mun formlega ganga í raðir Vals í júlí samkvæmt heimildum Fótbolta.net.
Ari á 4 A-landsleiki og 20 leiki með U21 árs landsliðinu.



