Alisson vill fara til Juventus - Real Madrid sýnir Rice áhuga - Stórlið berjast um Rafel Leao
   mán 01. júní 2026 10:53
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Freyr látinn fara frá Brann (Staðfest)
Mynd: EPA
Norska félagið Brann hefur tilkynnt á heimasíðu sinni að samstarfi félagsins og Freys Alexanderssonar, þjálfara liðsins, sé lokið.

Þar kemur fram að eftir samtal milli félagsins og Freys þá sé samkomulag um að samstarfinu ljúki samstundis. Freyr hefur verið þjálfari liðsins frá því í janúar í fyrra. Hann kom liðinu í deildarkeppni Evrópudeildarinnar á sínu fyrsta tímabili, endaði með liðið í 4. sæti norsku deildarinnar og kom því í vor í úrslitaleik bikarsins.

En gengið í norsku deildinni í ár hefur verið dapurt og þess vegna er farið í breytingar. Liðið hefur tapað þremur leikjum í röð og situr í 11. sæti deildarinnar eftir tólf leiki.

Brann þakkar Frey fyrir sitt framlag á tíma sínum hjá Brann. Honum er sérstaklega hrósað fyrir frábært tímabil í Evrópudeildinni og fólk mun heldur ekki gleyma úrslitaleiknum gegn Bodö/Glimt í bikarnum.

„Á tíma sínum hér hefur Freyr Alexandersson verið duglegur og sýnt persónutöfra. Hann hefur hefur skilið hversu mikilvægt Brann er fyrir Bergen og alla sem eru ánægðir hjá félaginu," segir í tilkynningunni.

Félagið óskar Frey og fjölskyldu hans alls hins besta í framtíðinni. Jonathan Hartmann, aðstoðarmaður Freys, yfirgefur einnig félagið.


Slapp
banner
banner