Arsenal með augastað á Rogers - PSG veitir Liverpool samkeppni - Grealish fær annað tækifæri hjá City
   mið 27. maí 2026 18:48
Brynjar Ingi Erluson
Schmeichel hættur (Staðfest)
Mynd: EPA
Danski markvörðurinn Kasper Schmeichel hefur lagt hanskana á hilluna eftir farsælan feril en hann tilkynnti þetta í viðtali við TV2.

Schmeichel, sem er 39 ára gamall, ýjaði að því í mars að þetta yrði hans síðasta tímabil.

Hann missti af síðustu mánuðum tímabilsins vegna meiðsla, en hann gekkst undir aðgerð á öxl í mars og var ljóst að hann yrði frá næsta árið.

Markvörðurinn flakkaði um næstu árin, fyrst á láni í neðri deildunum og síðar hjá Notts County og Leeds United áður en hann samdi við Leicester City.

Þar kom hann sér í goðsagnatölu með því að vinna óvænt ensku úrvalsdeildina árið 2016 og síðar enska bikarinn 2021. Árið 2022 yfirgaf hann Leicester og söðlaði um í Evrópu hjá Anderlecht og Nice áður en hann fór til Celtic árið 2024.

Hann varð skoskur deildarmeistari með Celtic bæði árin, en hefur nú ákveðið að kalla þetta gott.

„Ég mun leggja hanskana á hilluna þegar samningur minn við Celtic rennur út í júní. Þessi ákvörðun var tekin fyrir mig, en ég ráðfærði mig við fjölmarga skurðlækna og sérfræðinga varðandi öxlina og þeir sögðu mér að ég ætti ekki að búast við því að snúa aftur í að spila á hæsta stigi. Ég hef hugsað þetta lengi en nú tel ég rétta tímann til að hætta,“ sagði Schmeichel við TV2.

Magnaður ferill hjá Schmeichel sem vann átta titla og fjölmörg einstaklingsverðlaun. Hann lék 120 A-landsleiki með Dönum og fór á fimm stórmót.
Slapp
banner
banner
banner