Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25111 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR26.07.2025, 09:30

Ruben Kluivert til Lyon (Staðfest)

Lyon hefur staðfest kaupin á hollenska varnarmanninum Ruben Kluivert frá portúgalska félaginu Casa Pia. Kluivert er 24 ára gamall miðvörður en Lyon borgar rúmlega fjórar milljónir evra fyrir hann.

FRÉTTIR25.07.2025, 21:46

Gabríel Aron til ÍR á láni frá Breiðabliki (Staðfest)

Gabríel Aron Sævarsson er genginn til liðs við ÍR á láni frá Breiðabliki. Gabríel Aron er 19 ára gamall og var lykilmaður í liði Keflavíkur fyrri hluta tímabilsins. Hann leikur sem framherji og skoraði 6 mörk í 16 leikjum fyrir Keflavík í sumar.

FRÉTTIR25.07.2025, 17:30

Brighton lánar Cashin til Birmingham (Staðfest)

Eiran Cashin, varnarmaður Brighton, hefur gengið í raðir Birmingham City í Championship-deildinni á eins árs lánssamningi. Þessi 23 ára leikmaður kom til Brighton frá Derby County og spilaði tvívegis fyrir Brighton í ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili.

FRÉTTIR25.07.2025, 16:00

Fylkir fær tvo leikmenn (Staðfest)

Fylkir hefur styrkt sig með tveimur öflugum leikmönnum fyrir kvennaliðið, en þær Hallgerður Kristinsdóttir og Margrét Ingþórsdóttir munu leika með liðinu út yfirstandandi keppnistímabil.

FRÉTTIR25.07.2025, 14:02

Jón Arnar snýr til baka í KR (Staðfest)

Varnarmaðurinn Jón Arnar Sigurðsson er kominn til baka í KR eftir að hafa verið á láni hjá Leikni í Breiðholti fyrri hluta tímabilsins. Jón Arnar lék tólf leiki fyrir Leikni í Lengjudeildinni en liðið situr í ellefta sæti deildarinnar. Jón Arnar er fæddur 2007 og kom við sögu í 15 leikjum með KR í Bestu deildinni í fyrra.

FRÉTTIR25.07.2025, 13:47

Aron Bjarki heim í Völsung (Staðfest)

Varnarmaðurinn Aron Bjarki Jósepsson er búinn að fá félagaskipti í uppeldisfélag sitt Völsung á Húsavík. Aron Bjarki er 35 ára og lék síðast fyrir Völsung árið 2010. Hann gekk svo í raðir KR og var þar í ellefu tímabil. Hann var þrisvar Íslandsmeistari með KR og einu sinni bikarmeistari.

FRÉTTIR25.07.2025, 06:00

Úr Vogunum í Fjölni (Staðfest)

Hinn 23 ára gamli Jón Kristinn Ingason mun leika á láni hjá Fjölni út tímabilið. Hann kemur til félagsins úr röðum Þróttar Vogum.

FRÉTTIR24.07.2025, 17:30

Jesper Lindström til Wolfsburg (Staðfest)

Wolfsburg hefur fengið danska landsliðsmanninn Jesper Lindström frá Napoli. Um lánssamning er að ræða með möguleika á kaupum eftir tímabilið. Þessi 25 ára leikmaður var á láni hjá Everton í ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili. Hann mun klæðast treyju númer 19 í þýsku Bundesligunni.

FRÉTTIR24.07.2025, 17:21

Adam Örn aftur í Leikni (Staðfest)

Varnarmaðurinn Adam Örn Arnarson hefur yfirgefið Fram og er genginn í raðir Leiknis að nýju. <i>„Við bjóðum Adam velkominn en hann skrifaði undir samning í dag og bindum miklar vonir við endurkomu hans til félagsins,"</i> segir í tilkynningu Leiknis. Adam er 29 ára gamall hægri bakvörður sem lék með Leikni í Bestu deildinni 2022 en var á sínu þriðja ári hjá Fram. Hann hefur aðeins leikið tvo leiki í Bestu deildinni í sumar. Leiknismenn vonast til að Adam hjálpi liðinu í baráttu við falldrauginn en Breiðhyltingar, sem mæta HK í Kórnum á morgun, eru í ellefta sæti Lengjudeildarinnar.

FRÉTTIR24.07.2025, 17:13

Mosquera í Arsenal (Staðfest)

Cristhian Mosquera er formlega orðinn leikmaður Arsenal en félagið hefur gengið frá kaupum á honum frá Valencia. Mosquera er spænskur U21 landsliðsmaður og miðvörður sem getur einnig spilað sem hægri bakvörður. Hann hefur spilað 90 leiki fyrir Valencia. Mosquera er keyptur til að koma í stað Takehiro Tomiyasu sem yfirgaf Arsenal í sumar. Honum er ætlað að keppa við miðverði Arsenal, þá William Saliba og Gabriel Magalhaes, um sæti í liðinu. <i>„Þetta er tækifæri sem ég gat ekki látið renna mér úr greipum. Ég er kominn í risastórt sögufrægt félag. Ferill minn hefur þróast hraðar en ég bjóst við og ég hef þurft að þroskast hratt,"</i> segir Mosquera við heimasíðu Arsenal. Arsenal hafði áður í glugganum keypt Martin Zubimendi, Kepa Arrizabalaga, Christian Nörgaard og Noni Madueke. Þá er Viktor Gyökeres nálægt því að ganga í raðir félagsins.

FRÉTTIR24.07.2025, 17:00

Newcastle fær efnilegan Kóreumann (Staðfest)

Newcastle United hefur fengið til sín Suður-kóreska vængmanninn Seung-soo Park frá Suwon Bluewings í heimalandi hans. Hann fer fyrst í U21 liðið hjá Newcastle. Park er 18 ára gamall og hefur spilað 28 aðalliðsleiki fyrir Bluewings, skorað eitt mark og átt þrjár stoðsendingar. Park á fimm U20 leiki með Suður-Kóreu og segir að það sé mikill heiður að ganga í raðir Newcastle United. <i>„Þetta er stórt skref fyrir mig og ég er gríðarlega þakklátur fyrir þá trú sem félagið hefur á mér. Ég er spenntur fyrir því að þróast hérna, læra af þjálfurunum og gera allt sem ég get til að verða eins góður leikmaður og hægt er,"</i> segir Park.

FRÉTTIR24.07.2025, 16:30

Axel Ívars snýr aftur í Kára (Staðfest)

Axel Freyr Ívarsson er mættur aftur í Kára á láni frá Fjölni út yfirstandandi tímabil. Axel er kraftmikill og hraður vinstri kantmaður sem skoraði níu mörk í 3. deild með Kára síðasta sumar. Kári vann 3. deildina á síðasta ári og var Axel þar algjör lykilmaður.

FRÉTTIR24.07.2025, 15:00

Ísak Aron í ÍR (Staðfest)

Varnarmaðurinn Ísak Aron Ómarsson hefur skrifað undir tveggja ára samning við Íþróttafélag Reykjavíkur. Ísak er uppalinn HK-ingur og á að baki sex leiki í Bestu deildinni með þeim. Hann er fæddur árið 2004 en í sumar hefur hann verið á láni hjá toppliði 2. deildarinnar, Ægi.

FRÉTTIR24.07.2025, 14:30

Grótta fær Andra Frey frá Aftureldingu (Staðfest)

Framherjinn Andri Freyr Jónasson er genginn í raðir Gróttu á láni frá Aftureldingu út tímabilið. Andri er 27 ára og uppalinn Mofellingur. Hann hefur spilað allan sinn feril með Aftureldingu fyrir utan tvö tímabil með Fjölni. Í sumar hefur Andri komið við sögu í sjö leikjum í Bestu deildinni með Aftureldingu en í fyrra lék hann 18 leiki þegar Mosfellingar tryggðu sér sæti í efstu deild í fyrsta sinn. Alls á hann að baki 205 KSÍ leiki og hefur í þeim skorað 88 mörk, þar af 24 mörk í 30 leikjum í C-deild.

FRÉTTIR24.07.2025, 13:04

Milan búið að kaupa Estupinan frá Brighton (Staðfest)

Pervis Estupinan hefur gengið í raðir ítalska liðsins AC Milan frá Brighton fyrir um 17 milljónir punda. Ekvadorski landsliðsvarnarmaðurinn hefur verið reglulegur byrjunarliðsmaður hjá Brighton síðan hann gekk í raðir félagsins frá Villarreal 2022 og skorað fimm mörk í 104 leikjum. Hann verður fyrsti Ekvadorinn til að spila fyrir AC Milan.

FRÉTTIR24.07.2025, 11:30

Víðir fær tvo leikmenn á láni (Staðfest)

Víðir Garði hefur fengið tvo leikmenn á láni en félagið er í harðri fallbaráttu í 2. deild. Valur Hákonarson kemur frá Keflavík og Erlendur Guðnason kemur frá Njarðvík.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.