Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25112 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR24.07.2025, 11:30

Víðir fær tvo leikmenn á láni (Staðfest)

Víðir Garði hefur fengið tvo leikmenn á láni en félagið er í harðri fallbaráttu í 2. deild. Valur Hákonarson kemur frá Keflavík og Erlendur Guðnason kemur frá Njarðvík.

FRÉTTIR24.07.2025, 09:45

Andrea Rán snýr aftur í FH (Staðfest)

FH hefur fengið frábæran liðsstyrk fyrir átökin sem eru framundan í Bestu deild kvenna því Andrea Rán Hauksdóttir hefur samið við félagið. Hún kemur aftur til FH eftir að hafa spilað með Tampa Bay í Bandaríkjunum frá því í fyrra.

FRÉTTIR23.07.2025, 19:10

Hugo Ekitike til Liverpool (Staðfest)

Englandsmeistarar Liverpool hafa fest kaup á franska sóknarmanninum Hugo Ekitike frá þýska félaginu Eintracht Frankfurt fyrir 79 milljónir punda.

FRÉTTIR23.07.2025, 13:37

Botnlið Aftureldingar fær tvo erlenda leikmenn (Staðfest)

Afturelding, sem er á botni Lengjudeildar kvenna, hefur bætt við sig tveimur erlendum leikmönnum fyrir seinni hluta tímabilsins. Bri­ana Esteves kemur frá TA WPSL í Bandaríkjunum og getur spilað flestar stöður á vellinum. Hún mun styrkja Aftureldingu sóknarlega á vellinum.

FRÉTTIR23.07.2025, 09:58

Ferguson á lánssamningi til Roma (Staðfest)

Írski sóknarmaðurinn Evan Ferguson er genginn í raðir Roma á eins árs lánssamningi frá Brighton. Síðasta tímabil var erfitt fyrir Ferguson, hann glímdi við meiðsli og náði sér svo ekki á strik og færðist aftar í goggunarröðinni hjá Brighton. <i>„Hann vill spila reglulega og þetta er tækifæri fyrir hann í sterkri deild og með möguleika á því að spila í Evrópukeppni,"</i> segir Fabian Hurzeler, stjóri Brighton. Ferguson var lánaður til West Ham í seinni hlusta síðasta tímabils en spilaði bara átta leiki undir stjórn Graham Potter. Hann er 20 ára gamall og var tilnefndur sem besti ungi leikmaðurinn tímabilið 2022-23 þegar hann skoraði níu mörk fyrir Brightob. Hann hefur hinsvegar aðeins skorað eitt mark í félagsliðabolta síðan í nóvember 2023 og ólíklegt var að hann fengi mikið að spila í upphafi nýs tímabils ef hann hefði verið áfram hjá Brighton.

FRÉTTIR23.07.2025, 09:48

Brynjar Ingi til Greuther Fürth (Staðfest)

<i>„Þýskur fótbolti hefur verið markmið mitt í langan tíma. Þegar ég var í viðræðunum var ég strax ákveðinn í að ég vildi koma hingað,"</i> segir Brynjar Ingi Bjarnason sem er búinn að semja við þýska félagið Greuther Fürth.

FRÉTTIR22.07.2025, 17:25

Óli Hrannar tekur við Hamri (Staðfest)

Ólafur Hrannar Kristjánsson hefur verið ráðinn þjálfari Hamars í Hveragerði. Óli var síðast þjálfari Leiknis í Reykjavík, sem er í næst efstu deild, en var látinn fara þaðan eftir erfiða byrjun á tímabilinu.

FRÉTTIR22.07.2025, 14:52

Birnir Breki til ÍA (Staðfest) - Semur út 2029

Birnir Breki Burknason er genginn í raðir ÍA sem kaupir hann frá uppeldisfélaginu HK. Birnir Breki er skapandi leikmaður sem fæddur árið 2006. Hann gerir fjögurra og hálfs árs samning við ÍA, samningurinn gildi út 2029. Hann er annar leikmaðurinn sem ÍA fær í glugganum því áður hafði Jonas Gemmer komið frá Danmörku. Birnir Breki á að baki þrjá leiki fyrir U19 ára landsliðið, fór á reynslu til Hammarby í vetur og Víkingur sýndi honum áhuga. Hann hefur skorað fimm mörk í 44 leikjum í deild og bikar á ferlinum, þrjú þeirra komu í Bestu deildinni í fyrra og tvö í Lengjudeildinni á þessu tímabili. ÍA, sem er á botni Bestu deildarinnar, spilar ekki leik á næstunni, næsti skráði leikur er gegn Val þriðjudaginn 5. ágúst.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.