Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25090 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR21.04.2026, 06:00

Atli Þór til Dalvíkur (Staðfest)

Atli Þór Sindrason er genginn til liðs við Dalvík/Reyni á láni frá grönnunum í Þór. Atli er fæddur árið 2007. Hann er uppalinn á Blönduósi en kom í Þór í 4. flokki. Hann kom við sögu í 14 leikjum og skoraði eitt mark í fyrra þegar Þór vann Lengjudeildina. Hann var valinn efnilegasti leikmaður liðsins á lokahófi félagsins.

FRÉTTIR20.04.2026, 18:03

ÍA - KA verður í Akraneshöllinni (Staðfest)

ÍA hefur staðfest að leikur liðsins gegn KA í 3. umferð Bestu deildarinnar verður spilaður inn í Akraneshöllinni á miðvikudaginn næstkomandi. Leikurinn, sem hefst 18:00, átti upphaflega að fara fram á ELKEM vellinum en hann er ekki klár í slaginn.

FRÉTTIR20.04.2026, 16:38

Marco Rose tekur við Bournemouth (Staðfest)

Marco Rose mun taka við Bournemouth af Andoni Iraola sem lætur af störfum sem stjóri liðsins í sumar. Rose hefur skrifað undir þriggja ára samning við félagið.

FRÉTTIR20.04.2026, 14:00

Hagi tekur við Rúmeníu eftir andlát Lusescu (Staðfest)

Rúmenska goðsögnin Gheorghe Hagi er tekinn við sem nýr landsliðsþjálfari Rúmeníu. Hann tekur við af Mircea Lucescu sem lést á dögunum. Lusescu stýrði Rúmenum í 1-0 tapinu gegn Tyrkjum í undanúrslitum HM-umspilsins í mars og varð þar með elsti landsliðsþjálfari sögunnar. Rúmenar áttu síðan æfingaleik við Slóvakíu, en nokkrum tímum fyrir flug fékk Lucescu fyrir hjartað og gat því ekki ferðast í leikinn. Nokkrum dögum síðar lést Lusescu.

FRÉTTIR20.04.2026, 11:11

Valur kaupir fyrirliða U19 af Blikum (Staðfest)

Helga Rut Einarsdóttir er gengin í raðir Vals en félagið hefur keypt hana frá Breiðabliki. Helga kemur í Val eftir eitt ár hjá Breiðabliki þar sem hún varð Íslands- og bikarmeistari. Hún lék áður með Grindavík. Á síðasta tímabili lék hún alls 17 leiki með Blikum.

FRÉTTIR18.04.2026, 07:30

Frá KR í Gróttu (Staðfest)

Bandaríski varnarmaðurinn Maya Camille Neal er gengin til liðs við Gróttu í Lengjudeildinni.

FRÉTTIR17.04.2026, 12:30

Ýmir Geirsson til Grenivíkur (Staðfest)

Ýmir Már Geirsson hefur verið lánaður frá Þór til grannanna í Magna á Grenivík út þetta tímabil. Magni fór upp úr 3. deildinni í fyrra og verður í 2. deild í sumar. Ýmir þekkir vel til á Grenivík því hann lék með liðinu á árunum 2017 og 2021. Ýmir vann sér inn í lið Þórs á síðasta tímabili og gerði vinstri bakvarðarstöðuna að sinni. Hann lék 19 leiki þegar Þór vann Lengjudeildina.

FRÉTTIR17.04.2026, 09:30

Thelma Sól í HK (Staðfest)

Miðjumaðurinn Thelma Sól Óðinsdóttir er gengin til liðs við HK í Lengjudeildinni en hún gerir samning út 2027.

FRÉTTIR16.04.2026, 14:16

Gabríel Snær til Elfsborg (Staðfest)

Gabríel Snær Gunnarsson mun í sumar ganga í raðir sænska félagsins Elfsborg frá ÍA. Sænska félagið kaupir Gabríel og skrifar hann undir þriggja ára samning við félagið. Fótbolti.net greindi frá yfirvofandi félagaskiptum Gabríels til Elfsborg fyrr í vetur. Þeir Ari Sigurpálsson og Júlíus Magnússon eru leikmenn Elfsborg.

FRÉTTIR16.04.2026, 12:16

Bernardo Silva fer frá Man City í sumar (Staðfest)

Manchester City hefur staðfest að Bernardo Silva mun yfirgefa félagið í sumar. Portúgalinn, sem er 31 árs, gekk í raðir City 2017 og hefur hann spilað 451 leik á níu árum hjá félaginu. Hann hefur skorað 76 mörk og átt 77 stoðsendingar. Hann hefur unnið fimmtán stóra titla með félaginu, þar á meðal sex úrvalsdeildartitla og Meistaradeildina einu sinni. Fyrir þetta tímabil var hann gerður að fyrirliða City.

FRÉTTIR16.04.2026, 07:00

Bjarki og Hólmar yfirgefa Leikni (Staðfest)

Leiknir hefur tilkynnt að Hólmar Kári Tryggvason og Bjarki Arnaldarson hafa yfirgefið félagið. Hólmar er framherji fæddur árið 2006 en hann ólst upp hjá ÍR. Hann kom til Leiknis frá spænska liðinu Orihuela í fyrra og kom við sögu í einum leik með aðalliðinu. Hann var þá mikilvægur hlekkur í 2. flokki liðsins. Hann fór ungur að árum til Spánar en hann hóf meistaraflokksferil sinn með CD Thader þar sem m.a. Xavi Simons hóf sinn feril.

FRÉTTIR16.04.2026, 06:00

Unglingalandsliðsmaður frá Val í Ægi (Staðfest)

Miðjumaðurinn Hilmar Óli Viggósson er genginn til liðs við Ægi frá Val. Hann skrifar undir þriggja ára samning við félagið. Hilmar Óli er fæddur árið 2007 en hann hefur spilað með yngri flokkum HK og Breiðabliks en hann gekk til liðs við Val árið 2024 þar sem hann spilaði með 2. flokki félagsins. Hann kom við sögu í einum leik í Lengjubikarnum í vetur.

FRÉTTIR16.04.2026, 06:00

Brynjar Gauti og Henrik Máni í KFG (Staðfest)

KFG hefur fengið liðstyrk en Brynjar Gauti Guðjónsson og Henrik Máni B. Hilmarsson eru gengnir til liðs við félagið. Brynjar Gauti er reynslumikill leikmaður en hann kemur til liðsins frá Fjölni þar sem hann spilaði 14 leiki í Lengjudeildinni á síðustu leiktíð. Hann er uppalinn hjá Víkingi Ó. en hann er með mikla reynslu úr efstu deild með ÍBV, Stjörnunni og Fram.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.