Frakkinn Herve Renard hefur verið rekinn sem landsliðsþjálfari Sádi-Arabíu nú þegar innan við tveir mánuðir eru í að HM 2026 fer af stað.
Renard stýrði Sádi-Arabíu á HM í Katar og tók svo aftur við liðinu í lok árs 2024.
Renard stýrði Sádi-Arabíu á HM í Katar og tók svo aftur við liðinu í lok árs 2024.
„Sádi-Arabía hefur sjö sinnum komist á HM, þar af tvisvar undir minni stjórn. Aðeins einn þjálfari hefur stýrt liðinu bæði í gegnum undankeppnina og HM og það var ég 2022," segir Renard.
Renard á tvo Afríkumeistaratitla á ferilskrá sinni; með Sambíu og Fílabeinsströndinni. Hann stýrði Sádi-Arabíu 2019-2023 áður en Roberto Mancini var ráðinn.
Renard stýrði franska kvennalandsliðinu og kom því í 8-liða úrslit á HM 2023 og Ólympíuleikunum 2024. Hann tók svo aftur við Sádi-Arabíu þegar Mancini hætti eftir aðeins fjórtán mánaða starf.
Samkvæmt fréttum er Georgios Donis, fyrrum landsliðsmaður Grikklands, að taka við af Renard. Hann hefur stýrt félagsliðinu Al Khaleej síðan 2024.
Sádi-Arabía mætir Spáni, Úrúgvæ og Grænhöfðaeyjum í H-riðli á HM.


