Höttur hefur landað miðverðinum reynda Dennis Nieblas Moreno frá Grindavík.
Dennis er 35 ára gamall Spánverji sem hefur spilað síðustu tvö tímabil með Grindavík.
Hann lék alla 22 leiki liðsins í Lengjudeildinni á síðasta ári og spilað 16 deildarleiki árið 2024.
Varnarmaðurinn hefur spilað víða á ferlinum og er nú kominn á Egilsstaði.
Höttur/Huginn féll úr 2. deild á síðasta ári og í kjölfari lauk sjö ára samstarfi þeirra. Höttur mun leika í 3. deildinni á komandi tímabili og verður Dennis sterk viðbót við hópinn.


