Arsenal og Chelsea hafa áhuga á Bergvall - Emery á blaði Man Utd
   mán 20. apríl 2026 16:38
Kári Snorrason
Marco Rose tekur við Bournemouth (Staðfest)
Mynd: EPA
Marco Rose mun taka við Bournemouth af Andoni Iraola sem lætur af störfum sem stjóri liðsins í sumar. Rose hefur skrifað undir þriggja ára samning við félagið.

Samningur Iraola rennur út í sumar og tilkynnti hann nýverið að hann ætlaði ekki að framlengja samning sinn. Hann hefur stýrt Bournemouth frá árinu 2023 og náð þar eftirtektarverðum árangri.

Bournemouth situr nú í 8. sæti ensku úrvalsdeildarinnar og hefur aðeins tapað einum deildarleik á árinu.

Rose hefur verið án starfs frá því í mars 2025 þegar honum var sagt upp störfum hjá RB Leipzig. Þar áður stýrði hann Dortmund, Borussia Mönchengladbach og RB Salzburg.


Slapp
banner
banner
banner