Arsenal og Chelsea hafa áhuga á Bergvall - Emery á blaði Man Utd
   mán 20. apríl 2026 14:00
Kári Snorrason
Hagi tekur við Rúmeníu eftir andlát Lusescu (Staðfest)
Gheorge Hagi.
Gheorge Hagi.
Mynd: EPA
Rúmenska goðsögnin Gheorghe Hagi er tekinn við sem nýr landsliðsþjálfari Rúmeníu. Hann tekur við af Mircea Lucescu sem lést á dögunum.

Lusescu stýrði Rúmenum í 1-0 tapinu gegn Tyrkjum í undanúrslitum HM-umspilsins í mars og varð þar með elsti landsliðsþjálfari sögunnar.

Rúmenar áttu síðan æfingaleik við Slóvakíu, en nokkrum tímum fyrir flug fékk Lucescu fyrir hjartað og gat því ekki ferðast í leikinn. Nokkrum dögum síðar lést Lusescu.

Rúmenía komst ekki á HM en fyrsta verkefni Hagi verður gegn Georgíu og Wales í vináttuleikjum í júní.

Sonur Gheorghe Hagi, Ianis Hagi, er í rúmenska landsliðinu og á hann að baki yfir 50 landsleiki fyrir þjóð sína.
Slapp
banner
banner
banner