Alexander Helgi Sigurðarson er mættur til Njarðvíkur á láni frá KR út þetta tímabil.
Alexander er 29 ára gamall miðjumaður sem er uppalinn hjá Breiðabliki.
Hann á yfir hundrað meistaraflokksleiki á vegum KSÍ og fjölmarga Evrópuleiki, en hann var hluti af liði Blika sem vann Íslandsmeistaratitilinn árið 2024.
Á síðasta ári skipti hann yfir í KR þar sem hann lék 17 leiki í Bestu deildinni.
Hann hefur einnig spilað fyrir Víking Ólafsvík hér heima ásamt því að hafa leikið erlendis með unglingaliðum AZ Alkmaar og sænska liðinu Vasalunds IF.
Alexander á að baki átján landsleiki og tvö mörk fyrir yngri landslið Íslands.
Njarðvík fór alla leið í umspil um sæti í Bestu deildina á síðustu leiktíð en datt út í undanúrslitum fyrir nágrönnum sínum í Keflavík. Davíð Smári Lamude tók við Njarðvík af Gunnari Heiðari Þorvaldssyni eftir síðustu leiktíð.



