Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25149 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR11.05.2024, 06:00

PSV kaupir Tillman frá Bayern (Staðfest)

Hollenska félagið PSV Eindhoven hefur gengið frá kaupum á bandaríska sóknartengiliðnum Malik Tillman frá Bayern München en þetta kemur fram í tilkynningu frá hollenska meistaraliðinu.

FRÉTTIR10.05.2024, 18:17

Mbappe yfirgefur PSG í sumar (Staðfest)

Kylian Mbappe, sóknarmaður Paris Saint-Germain og franska landsliðsins, hefur staðfest að hann sé á förum frá PSG í sumar en hann sendi frá sér myndbandstilkynningu á samfélagsmiðlum í kvöld.

FRÉTTIR10.05.2024, 17:30

Guðjón Orri í KFK (Staðfest)

KFK í 3. deildinni hefur borist liðsstyrkur fyrir komandi átök í sumar því markvörðurinn Guðjón Orri Sigurjónsson hefur fengið félagaskipti til félagsins frá ÍBV.

FRÉTTIR10.05.2024, 13:09

Sveinn Margeir fer í UCLA (Staðfest)

Sveinn Margeir Hauksson, leikmaður KA, mun ekki klára tímabilið með KA en hann er á leið í háskólanám í Bandaríkjunum í haust. Sveinn er að hefja nám í UCLA háskólanum í borg englanna. Það er <i>Soccer & Education USA</I> sem greinir frá þessu á samfélagsmiðlum sínum. <i>„UCLA spilar í Big 10 í NCAA D1,"</I> segir í færslu fyrirtækisins sem hjálpar íþróttamönnum að komast á skólastyrk í Bandaríkjunum. NCAA D1 er sterkasta deildin í háskólaboltanum. <i>„KA hefur sagt að það muni ekki standa í vegi fyrir strákum sem vilja fara í nám,"</I> sagði Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, við Fótbolta.net þegar spurt var út í mögulegt háskólanám Sveins vestanhafs.

FRÉTTIR10.05.2024, 12:42

Gunnar Vatnhamar framlengir við Víking (Staðfest)

Víkingur hefur náð samkomulagi við Gunnar Vatnhamar um framlengingu á samningi hans við félagið. Fyrri samningur átti að renna út eftir yfirstandandi tímabil. Nýr samningur gildir til þriggja ára, út tímabilið 2027.

FRÉTTIR10.05.2024, 11:19

Eysteinn nýr framkvæmdastjóri KSÍ (Staðfest)

Eysteinn Pétur Lárusson hefur verið ráðinn nýr framkvæmdastjóri KSÍ og mun hefja störf þann 1. september. Þangað til mun Jörundur Áki Sveinsson halda áfram að sinna starfinu. Eysteinn mun láta af störfum hjá Breiðabliki þar sem hann hefur verið framkvæmdastjóri og taka við starfinu í Laugardalnum af Klöru Bjartmarz sem hætti eftir síðasta ársþing sambandsins. <i>„Það var afar ánægjulegt að sjá hversu margir hæfir einstaklingar sóttu um starf framkvæmdastjóra,"</I> segir Þorvaldur Örlygsson formaður KSÍ í yfirlýsingu sem sjá má í heild hér að neðan.

FRÉTTIR10.05.2024, 07:52

Óskar Hrafn hættur með Haugesund (Staðfest)

Norska félagið Haugesund hefur tilkynnt að Óskar Hrafn Þorvaldsson sé ekki lengur þjálfari liðsins. Fram kemur í yfirlýsingu á vef Haugesund að Óskar hafi tilkynnt stjórn félagsins það í gær að hann ætlaði sér að hætta störfum. Ekki kemur fram í tilkynningunni af hverju hann hættir.

FRÉTTIR07.05.2024, 14:30

Thiago Silva í Fluminense (Staðfest)

Brasilíski varnarmaðurinn Thiago Silva hefur skrifað undir samning við Fluminense í heimalandinu. Hann mun enda magnaðan feril sinn þar.

FRÉTTIR03.05.2024, 17:00

Wolves fær Doyle alfarið frá City (Staðfest)

Úlfarnir munu tryggja sér Tommy Doyle, miðjumann Manchester City, þann 1. júlí og borgar aðeins tæplega 5 milljónir punda. Þessi 22 ára miðjumaður hefur spilað 30 leiki fyrir Wolves á lánssamningi á þessu tímabili og félagið hefur nú nýtt sér ákvæði um að fá hann alfarið.

FRÉTTIR03.05.2024, 10:50

Keflavík fékk tvo leikmenn eftir að glugginn lokaði (Staðfest)

Keflavík fékk leikheimild fyrir tvo erlenda leikmenn eftir að félagaskiptaglugginn lokaði. Það eru þær Oliwia Marta Sieminska og Regina Solhaug Fiabema. Oliwia fær félagaskipti frá Póllandi, hún er fædd árið 1998. <i>„Oliwia hefur æft með okkur í einhvern tíma og býr í Keflavík. Við vildum bara fá félagskiptin í gegn og taka síðan stöðuna,"</I> sagði Jonathan Glenn, þjálfari Keflavíkur, við Fótbolta.net eftir leikinn gegn Fylki í gær.

FRÉTTIR02.05.2024, 16:38

Eiður Jack í Þrótt Vogum (Staðfest)

Eiður Jack Erlingsson hélt í Vogana á lokadegi félagaskiptagluggans í síðustu viku og skrifaði undir lánssamning við Þrótt. Hann kemur frá hinum Þrótturunum, Þrótti Reykjavík. Eiður er fæddur árið 2005 og kom við sögu í tveimur leikjum með Þrótti R. á síðasta tímabili í Lengjudeildinni.

FRÉTTIR02.05.2024, 13:30

Hinn umtalaði Will Still hættir með Reims (Staðfest)

Englendingurinn Will Still mun ekki stýra Reims í Frakklandi á næsta tímabili en þetta var tilkynnt í dag. Í yfirlýsingu félagsins kemur fram að um sameiginlega ákvörðun sé að ræða.

FRÉTTIR02.05.2024, 11:00

Rangnick sagði nei við Bayern - Áfram með Austurríki (Staðfest)

Ralf Rangnick hefur staðfest að hann muni vera áfram landsliðsþjálfari Austurríkis. Rangnick, sem er fyrrum stjóri Manchester United, hefur verið í viðræðum við Bayern München. Búist var við því að hann myndi taka við fyrrum Þýskalandsmeisturunum af Thomas Tuchel sem lætur af störfum eftir tímabilið.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.