Katie Cousins í Val (Staðfest)
Valur var að tilkynna stórfréttir í kvennaboltanum þar sem Íslandsmeistarar síðustu þriggja ára voru að tryggja sér þjónustu Katie Cousins.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25167 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Valur var að tilkynna stórfréttir í kvennaboltanum þar sem Íslandsmeistarar síðustu þriggja ára voru að tryggja sér þjónustu Katie Cousins.
Þróttur Vogum, sem var nálægt því að koma sér upp í Lengjudeildina í haust, er búinn að krækja í Jökul Blængsson.
Sandra Voitane er aftur gengin í raðir ÍBV eftir að hafa spilað eitt sumar með Keflavík. Hún skrifar undir samning við ÍBV sem gildir út næsta sumar.
Bandaríska félagið Charlotte FC hefur staðfest ráðninguna á enska þjálfaranum Dean Smith, en hann gerir tveggja ára samning við félagið.
Emelía Óskarsdóttir er gengin í raðir danska félagsins HB Köge. Félagið greindu frá þessu í dag. Emelía kemur frá Kristianstad í Svíþjóð þar sem hún var í tvö ár en fékk sig lausa þaðan í lok tímabilsins. Hún er uppalin í Gróttu en hefur einnig verið á mála hjá Ballerup-Skovlunde í Danmörku á sínum ferli.
Sádí-Arabíska knattspyrnusambandið er búið að staðfesta Spánverjann Lluís Cortés sem nýjan landsliðsþjálfara kvennaliðsins þar í landi.
Bakvörðurinn Hafrún Rakel Halldórsdóttir hefur gengið í raðir danska félagsins Bröndby. Frá því var greint hér á Fótbolta.net á dögunum að Hafrún Rakel væri að ganga í raðir Bröndby og núna hefur það verið staðfest. Hún skrifar undir tveggja ára samning við félagið.
Hér að neðan má sjá lista yfir 20 vinsælustu fréttir Fótbolta.net í síðustu viku, raðað eftir hversu oft þær eru lesnar. Vandræði Manchester United voru mikið til umfjöllunar í liðinni viku.
KR tilkynnti í dag að félagið hafi fengið unglingalandsliðsmanninn Hrafn Guðmundsson frá Aftureldingu. Hrafn var samningsbundinn Mosfellingunum út tímabilið 2025 svo líklega hefur hann verið keyptur. Hrafn er fyrsti leikmaðurinn sem kemur til KR síðan Gregg Ryder tók við þjálfun liðsins í haust. Í tilkynningu KR er rætt við Gregg sem segir:
Breiðablik tilkynnti í dag að bakvörðurinn Kristinn Jónsson sé genginn í raðir félagsins frá KR. Þetta kemur fram í myndbandi frá félaginu sem var birt á samfélagsmiðlum í dag en þar er ferðast um Kópavoginn á þessum góðviðrisdegi og endað á Kópavogsvelli þar sem Kristinn er kominn í búning Breiðabliks.
<p>Björn Aron Björnsson hefur gengið til liðs við Njarðvík í Lengjudeildinni en hann skrifar undir samning sem gildir til ársins 2025.</p>
Leifur Andri Leifsson, fyrirliði HK, hefur gert nýjan samning við HK og er nú samningsbundinn félaginu út tímabilið 2024. Leifur er 34 ára varnarmaður sem lék 24 leiki með HK í sumar þegar liðið hélt sæti sínu í Bestu deildinni.
<p>Birna Kristín Björnsdóttir er alfarið gengin til liðs við FH og gerir samning út tímabilið 2025.</p>
Fylkir hefur fengið liðsstyrk fyrir komandi átök í Bestu deildinni því í dag var greint frá því að Emma Sól Aradóttir hefði samið við félagið. Hún kemur á lánssamningi út tímabilið, kemur frá HK þar sem hún hefur leikið allan sinn meistaraflokksferil. Hún er fædd árið 2002 og Sumarið 2019 lék hún einn leik með sameiginlegu liði HK/Víkings sem var hennar fyrsti leikur í meistaraflokki.
Norska úrvalsdeildarfélagið Haugesund, sem Óskar Hrafn Þorvaldsson þjálfar, hefur keypt Hlyn Frey Karlsson frá Val. <i>„Hlynur gekk til liðs við okkur fyrir síðasta tímabil og vakti verðskuldaða athygli fyrir frábæra frammistöðu í sumar,"</I> segir í tilkynningu Vals. Hlynur er nítján ára fjölhæfur leikmaður sem valinn var í <a href="https://fotbolti.net/news/07-10-2023/b-urvalslid-arsins-i-bestu-deildinni-2023-b" target="_blank">lið ársins í Bestu deildinni</a> en hann var áður í unglingaliðum Bologna á Ítalíu.
Spænski þjálfarinn Tintín Márquez er nýr þjálfari katarska landsliðsins í fótbolta.
Carlos Carvalhal er nýr þjálfari Olympiakos í Grikklandi, en þetta tilkynnti félagið í gær.
Bayern Munchen hefur fest kaup á spænska kantmanninum Bryan Zaragoza. Hann er leikmaður Granada og mun ganga í raðir þýska félagsins næsta sumar. Hann er 22 ára og lék sinn fyrsta landsleik í október. Hann gekk í raðir Granada árið 2019 og var fyrsta árið hluti af unglingaliði félagsins. Hann hefur verið á mála hjá félaginu allan sinn meistaraflokksferil til þessa, en var á láni hjá El Ejido tímabilið 2020-21. Í 52 deildarleikjum hefur hann skorað tíu mörk.
Stjarnan tilkynnti í dag að Esther Rós Arnarsdóttir væri gengin í raðir félagsins. Esther er 26 ára framherji sem var í þrjú tímabil hjá FH eftirað hafa komið frá uppeldisfélaginu Breiðabliki. Hún spilaði einungis einn leik á sínu fyrsta tímabili með FH, sumarið 2022 skoraði hún fimm mörk og á liðinni leiktíð skoraði hún þrjú mörk.
<p>Númi Kárason er genginn til liðs við Magna og mun taka slaginn með liðinu í 3. deildinni næsta sumar.</p>