Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25175 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR08.10.2023, 17:40

X (Twitter) - Kópavogurinn syrgir brottförina

Óskar Hrafn Þorvaldsson stýrði í dag sínum síðasta leik sem þjálfari Breiðabliks, í bili hið minnsta. Hér má sjá þá umræðu sem hefur skapast í kjölfar tíðindanna. Halldór Árnason, aðstoðarþjálfari í þjálfaratíð Óskars, hefur verið ráðinn þjálfari Breiðabliks.

08.10.2023 17:28
Dóri Árna ráðinn þjálfari Breiðabliks (Staðfest)

FRÉTTIR08.10.2023, 17:28

Dóri Árna ráðinn þjálfari Breiðabliks (Staðfest) - Þriggja ára samningur

Halldór Árnason hefur verið ráðinn sem þjálfari meistaraflokks karla hjá Breiðabliki til næstu þriggja ára. Þetta kemur fram í tilkynningu félagsins. Halldór tekur við af Óskari Hrafni Þorvaldssyni sem var látinn fara í dag. Halldór var aðstoðarþjálfari í þjálfaratíð Óskars og unnu þeir áður saman hjá Gróttu. Þetta er annað aðalþjálfarastarf Halldórs á hans ferli en hann var þjálfari KV á árunum 2012-14.

FRÉTTIR08.10.2023, 16:15

Óskar Hrafn hættur með Breiðablik (Staðfest)

Óskar Hrafn Þorvaldsson er hættur með Breiðablik en þetta staðfesti félagið rétt í þessu.

Óskar stýrði liðinu í fjögur tímabil og vann hann Íslandsmeistaratitilinn í fyrra eftir að hafa verið grátlega nálægt því tímabilið áður.

FRÉTTIR06.10.2023, 13:30

Branthwaite skrifaði undir nýjan samning við Everton (Staðfest)

Jarrad Branthwaite miðvörður Everton hefur skrifað undir nýjan samning við félagið til sumarsins 2027. Branthwaite er 21 árs og kom á Goodison Park fræa Carlisle í janúar 2020. Hann lék á láni hjá Blackburn og PSV Eindhoven áður en hann festi sig í sessi hjá Everton á þessu tímabili. Branthwaite var orðaður við Manchester United en ákvað að skrifa undir nýjan samning. Hann var hluti af enska U21 landsliðinu sem vann EM í sumar.

FRÉTTIR06.10.2023, 12:17

John Andrews áfram þjálfari Víkings (Staðfest) - Kristófer Sigurgeirs aðstoðar

John Andrews hefur framlengt samning sinn við Víking og verður hann áfram þjálfari liðsins næstu tvö tímabilin. Í samningnum, sem tilkynnt var um í hádeginu í dag, er ákvæði um framlengingu. Á fréttamannafundi í Víkinni var greint frá því að Kristófer Sigurgeirsson verði John til aðstoðar, verði í fullu starfi sem aðstoðarþjálfari kvennaliðsins. Kristófer var áður aðstoðarmaður Ásmundar Arnarssonar hjá kvennaliði Breiðabliks. Hann tekur við starfinu af Þorsteini Magnússyni sem hefur söðlað um og samið við ÍA.

FRÉTTIR06.10.2023, 12:00

„Bjóst ekki við því að Gylfi yrði í hópnum í þessum glugga"

Íslenska landsliðið kemur saman á mánudag. Framundan eru tveir leikir í undankeppni EM2024; heimaleikir gegn Lúxemborg og Liechtenstein. Það vakti athygli að í landsliðshópnum hjá Age Hareide eru þeir Aron Einar Gunnarsson og Gylfi Þór Sigurðsson. Aron hefur ekki spilað síðan í vor og Gylfi hefur einungis spilað um 20 mínútur eftir endurkomu sína.

FRÉTTIR05.10.2023, 18:22

Binni Gests hættur hjá Þrótti Vogum (Staðfest)

Brynjar Þór Gestsson er hættur hjá Þrótti Vogum eftir að hafa stýrt félaginu síðustu tvö tímabil, en hóf fyrst störf hjá félaginu árið 2017 þegar Þróttarar voru í 3. deild. Hann hefur síðan þá hætt og verið ráðinn aftur í tvígang - fyrst 2020 og svo 2022.

FRÉTTIR05.10.2023, 14:15

Hrannar framlengir við KA (Staðfest)

Hrannar Björn Steingrímsson hefur ákveðið að framlengja samning sinn við KA en samningurinn átti að renna út eftir tímabilið. Í tilkynningu KA segir að Hrannar framlengi út 2025.

FRÉTTIR05.10.2023, 12:11

Patrick Pedersen framlengir við Val (Staðfest)

Valur tilkynnti í dag að félagið hefði framlengt samning sinn við Patrick Pedersen um tvö ár. Samningur danska framherjans var að renna út núna í haust. Hann verður 32 ára í nóvember. „Patrick sem kom fyrst að láni frá danska félaginu Vendsyssel FF 2013 til Vals sló strax í gegn á Hlíðarenda og skömmu síðar var gengið frá endanlegum félagsskiptum," segir í tilkynningu Vals.

FRÉTTIR04.10.2023, 11:48

Hareide: Það er bara ein hugsun í höfði mínu og það er hefnd

„Við verðum að taka sex stig ef við ætlum að eiga einhvern möguleika á því að komast beint á mótið," sagði Age Hareide, landsliðsþjálfari Íslands, á fréttamannafundi í dag. Framundan eru leikir gegn Lúxemborg og Liechtenstein í undankeppni Evrópumótsins. Báðir leikir eru hér heima á Laugardalsvelli.

FRÉTTIR04.10.2023, 11:33

Telur best fyrir Mikael Egil að spila með U21 frekar en að vera á bekknum

Age Hareide landsliðsþjálfari tilkynnti hóp fyrir komandi leiki í morgun. Á fréttamannafundi útskýrði hann þær breytingar sem hann gerir á hópnum og fór yfir meiðslastöðu leikmanna. Jóhann Berg Guðmundsson er meiddur á kálfa og Hörður Björgvin Magnússon er í langtímameiðslum eftir að hafa slitið krossband. Valgeir Lunddal Friðriksson er með brotið bein í fæti og þá er Sævar Atli Magnússon að spila í gegnum meiðsli hjá Lyngby.

FRÉTTIR04.10.2023, 11:16

Gott að hafa Aron og Gylfa með hópnum þó óvíst sé með spiltíma þeirra

„Það er gott að hafa þá í kringum hópinn og það hjálpar yngri leikmönnum," segir Age Hareide landsliðsþjálfari Íslands um Gylfa Þór Sigurðsson og Aron Einar Gunnarsson. Hareide opinberaði í morgun hóp sinn fyrir komandi landsleiki gegn Lúxemborg og Liechtenstein og eru Gylfi og Aron í hópnum. Gylfi lék síðast fyrir Ísland í nóvember 2020.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.