Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25207 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR14.12.2022, 09:27

Lilja Lív og Rakel Lóa heim í Gróttu (Staðfest)

Þær Lilja Lív Margrétardóttir og Rakel Lóa Brynjarsdóttir hafa skrifað undir samning hjá knattspyrnudeild Gróttu. Lilja og Rakel eru báðar uppaldar hjá félaginu en hafa undanfarin misseri söðlað um í Bestu deild kvenna og Lengjudeildinni. Þetta kom fram í færslu Gróttu á samfélagsmiðlum í gær.

FRÉTTIR13.12.2022, 09:20

Klæmint Olsen í Breiðablik (Staðfest)

Breiðablik hefur fengið færeyska sóknarmanninn Klæmint Andrasson Olsen í sínar raðir frá NSÍ Runavík þar sem hann hefur leikið allan sinn feril. Breiðablik gerir eins árs lánssamning við framherjann. Klæmint er markahæsti leikmaður í sögu Færeyja, hefur skorað 242 mörk í 363 leikjum með NSÍ og er markahæstur í sögu færeysku deildarinnar og færeyska landsliðsins.

FRÉTTIR12.12.2022, 06:00

Þóra og Þórey í Fram (Staðfest)

Frænkurnar, Þóra Rún Óladóttir og Þórey Björk Eyþórsdóttir, skrifuðu í gær undir tveggja ára samning við Fram.

FRÉTTIR11.12.2022, 20:05

Critchley tekur við QPR (Staðfest)

Enski þjálfarinn Neil Critchley er nýr stjóri QPR í ensku B-deildinni en hann skrifaði undir þriggja og hálfs árs samning í dag.

FRÉTTIR11.12.2022, 16:49

Óskar Örn Hauksson í Grindavík (Staðfest)

<p>Grindavík tilkynnti rétt í þessu að Óskar Örn Hauksson sé genginn í raðir félagsins frá Stjörnunni.   Hann samdi við Grindavík út tímabilið 2023.</p>

FRÉTTIR10.12.2022, 15:24

Pétur Bjarnason í Fylki (Staðfest)

<p>Fylkir tilkynnti í dag að framherjinn Pétur Bjarnason sé genginn í raðir félagsins frá Vestra.</p><p>Pétur sem er 25 ára gamall spilaði á dögunum æfingaleik með Fylki og gengur nú í raðir félagsins.</p><p>Hann skrifaði undir þriggja ára samning við Fylki í dag.</p>

FRÉTTIR09.12.2022, 18:00

Þrír markverðir skrifa undir hjá Gróttu (Staðfest)

Grótta tilkynnti á samfélagsmiðlum í dag að þrír markverðir hefðu skrifað undir samninga við félagið fyrir komandi tímabil. Kristófer Leví Sigtryggsson hefur framlengt sinn samning við félagið og þá hefur Grótta krækt í tvo aðra markverði.

FRÉTTIR09.12.2022, 16:37

Hildigunnur í FH (Staðfest)

FH hefur tilkynnt að Hildigunnur Ýr Benediktsdóttir er gengin í raðir félagsins frá Stjörnunni. Hildigunnur er nítján ára sóknarleikmaður sem ákvað að rifta samningi sínum við Stjörnuna eftir síðasta tímabil. Hún hefur nú tekið ákvörðun um að semja við FH.

FRÉTTIR09.12.2022, 14:38

Hákon Ingi snýr heim í ÍA (Staðfest) - Vilja fá Arnleif líka

Hákon Ingi Einarsson er mættur í uppeldisfélagið ÍA frá Kórdrengjum. Þetta hefur félagið staðfest og skrifar Hákon undir tveggja ára samning. Skagamaðurinn Sverrir Mar Smárason, þáttarstjórnandi <i>Ástríðunnar</I> skrifar þá á Twitter að ÍA sé einnig að vinna í því að fá Arnleif Hjörleifsson frá Kórdrengjum. Ef það tekst er ÍA að fá báða bakverðina frá Kórdrengjum. Arnleifur er samningsbundinn út næsta tímabil en samningur Hákonar var útrunninn.

FRÉTTIR09.12.2022, 14:09

Slóvenskur miðvörður í Grindavík (Staðfest)

Grindavík hefur fengið miðvörðinn Marko Vardic í sínar raðir. Hann hefur verið án félags síðan í sumar þegar hann yfirgaf NK Triglav. Vardic er 27 ára gamall Slóveni sem hefur spilað í heimalandinu, í Belgíu og í Þýskalandi á sínum ferli.

FRÉTTIR09.12.2022, 13:41

Kristinn Freyr í Val (Staðfest)

Kristinn Freyr Sigurðsson er mættur aftur á Hlíðarenda, hann gengur í raðir Vals eftir eitt ár hjá FH. Kiddi, eins og hann er oftast kallaður, er þrítugur sóknarsinnaður miðjumaður sem á varð Íslandsmeistari með Val tímabilin 2018 og 20 og bikarmeistari árin 2015 og 16.

FRÉTTIR09.12.2022, 10:19

Kian Williams frá Keflavík í úrvalsdeildina í Kanada (Staðfest)

Englendingurinn Kian Williams, sem leikið hefur með Keflavík undanfarin ár, hefur samið við kanadíska félagið Valour FC sem leikur í úrvalsdeildinni þar í landi. Kian er 22 ára gamall sóknarsinnaður miðjumaður sem kom til Íslands í sumarglugganum 2019 og lék þá með Magna.

FRÉTTIR09.12.2022, 09:16

Bjarni Gunnarsson heim í Fjölni (Staðfest)

Bjarni Gunnarsson er kominn aftur heim í Fjölni og mun spila með liðinu í Lengjudeildinni á komandi tímabili. Bjarni er 29 ára sóknarmaður sem uppalinn er í Fjölni en kom í HK frá ÍBV í sumarglugganum 2016 eftir tvö og hálft tímabil í Eyjum. Bjarni snýr aftur í Grafarvoginn eftir tíu ára fjarveru. Hann hefur á sínum ferli spilað 202 leiki og skorað í þeim 39 mörk. Á síðasta tímabili lék Bjarni aðeins þrjá leiki í deild og bikar með HK. Fjölnir hafnaði í fjórða sæti í Lengjudeildinni á síðasta tímabili.

FRÉTTIR08.12.2022, 15:43

Alexander Veigar tekur slaginn með Grindavík næsta sumar (Staðfest)

Grindavík tilkynnti rétt í þessu að Alexander Veigar Þórarinsson hefði skrifað undir samning við félagið sem gildir út næsta tímabil. Alexander hefur undanfarin tvö tímabil leikið með GG í 4. deildinni eftir að hafa lagt Grindavíkurskóna á hilluna eftir tímabilið 2020.

FRÉTTIR08.12.2022, 11:40

Luis Enrique lætur af störfum (Staðfest)

Luis Enrique hefur látið af störfum sem þjálfari spænska landsliðsins, hann mun ekki halda áfram í því starfi. Spænska fótboltasambandið var að senda frá sér yfirlýsingu þess efnis.

FRÉTTIR08.12.2022, 06:00

Esther Júlía til Grindavíkur (Staðfest)

Grindavík hefur samið við Esther Júlíu Gustavsdóttur til næstu tveggja ára og mun hún verða markmaður liðsins á komandi tímabili. Esther er 17 ára gömul og hefur verið viðloðandi yngri landsliðs Íslands. <i>&bdquo;Þarna er á ferðinni mjög efnilegur markmaður sem við í Grindavík höfum mikla trú á,"</I> segir í tilkynningu Grindavíkur.

FRÉTTIR07.12.2022, 16:40

Pétur Bjarnason kveður Vestra (Staðfest)

Pétur Bjarnason mun ekki spila með Vestra á næsta tímabili. Þetta kemur fram í tilkynningu Vestra í dag. <i>&bdquo;Pétur hefur ákveðið að söðla um og flytja til Reykjavíkur. Stjórn knattspyrnudeildar Vestra vill þakka Pétri fyrir öll þau góðu ár sem hann hefur leikið fyrir félagið og óskum við honum velfarnaðar hjá nýju félagi."

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.