Fotbolti.net
07.12.22 - 16:40
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Pétur Bjarnason kveður Vestra (Staðfest)

Pétur Bjarnason kveður Vestra (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Pétur Bjarnason mun ekki spila með Vestra á næsta tímabili. Þetta kemur fram í tilkynningu Vestra í dag.

„Pétur hefur ákveðið að söðla um og flytja til Reykjavíkur. Stjórn knattspyrnudeildar Vestra vill þakka Pétri fyrir öll þau góðu ár sem hann hefur leikið fyrir félagið og óskum við honum velfarnaðar hjá nýju félagi."
„Pétur hóf feril sinn árið 2014 þá aðeins 16 ára gamall og hefur leikið allan sinn feril fyrir vestan. Leikirnir eru orðnir 211 og mörkin 76 talsins. Gangi þér vel Pétur og takk fyrir allt!" segir í tilkynningunni.

Pétur er 25 ára gamall framherji sem spilaði á dögunum æfingaleik með Fylki. Hann er samningsbundinn Vestra út næsta tímabil.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.